Handbolti

Fram stein­lá gegn ný­liðunum og FH vann Þór

Sindri Sverrisson skrifar
Þorgeir Bjarki Davíðsson og félagar fögnuðu frábærum sigri í dag.
Þorgeir Bjarki Davíðsson og félagar fögnuðu frábærum sigri í dag. Olís-deildin

Einu og hálfu ári eftir langþráðan Íslandsmeistaratitil hafa Framarar átt afar erfitt uppdráttar í Olís-deild karla í handbolta í haust og þeir steinlágu gegn nýliðum Víkings á heimavelli í dag, 36-28. FH vann Þór á Akureyri, 37-30.

Fram var 17-16 yfir í hálfleik og var marki yfir þegar korter var til leiksloka, 25-24. Þá skelltu gestirnir í lás og skoruðu fimm mörk í röð og unnu á endanum átta marka sigur.

Hornamaðurinn Jón Karl Einarsson skoraði þrjú mörk úr hraðaupphlaupum og endaði með átta mörk úr átta skotum fyrir Víkinga. Kristján Helgi Tómasson og Elvar Otri Hjálmarsson urðu næstmarkahæstir með fimm mörk hvor.

Hjá Fram var Haukur Ingi Hauksson markahæstur með sjö mörk úr þrettán skotum og Marel Baldvinsson skoraði fimm úr ellefu skotum.

Sigurinn kom Víkingi upp fyrir Fram í 7. sæti en liðin eru með sex stig hvort líkt og Þór í 9. sæti.

Þórsarar töpuðu 37-30 á heimavelli gegn FH-ingum sem þar með eru með 13 stig í 3. sæti, fimm stigum frá toppliði Hauka nú þegar hlé er að taka við til 12. nóvember vegna landsleikja.

Einar Rafn Eiðsson og Ómar Darri Sigurgeirsson voru markahæstir FH með sex mörk hvor og Gunnar Kári Bragason skoraði fimm en alls skoruðu ellefu leikmenn FH í leiknum.

Hjá Þór var Bertram Simonsen markahæstur með átta mörk og Hafþór Már Vignisson skoraði sjö.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×