
Landspítalinn

„Hvar er þríeykið okkar sem teiknar upp kröftuga aðgerðaáætlun?“
Helga Vala Helgadóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, var gestur í Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í dag og ræddi þar geðheilbrigðismál sem hún segir olnbogabarn innan heilbrigðiskerfisins.

Gera sér vonir um að sjá fyrir enda rannsóknarinnar
Andlát sem varð á geðdeild Landspítalans í ágúst síðastliðnum, þar sem hjúkrunarfræðingur er grunaður um að hafa orðið sjúklingi að bana, er enn til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Alþjóðlegi óráðsdagurinn
Í dag er alþjóðlegi óráðsdagurinn haldinn hátíðlega víða um heim. Af þessu tilefni verður haldið málþing um óráð á Landspítalanum og það verður á opnu streymi á facebook síðu Landspítalans og öllum velkomið að fylgjast með.

„Einhvern veginn hefur okkur tekist að krafla okkur í gegnum þetta“
Þeim hefur fækkað nokkuð síðustu daga sem greinst hafa með kórónuveiruna. Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítalans, vonast til að það sé til marks um að faraldurinn sé loksins á niðurleið.

Ráðherra skipar starfshóp um réttarstöðu heilbrigðisstarfsfólks
„Ég tel nauðsynlegt að taka þessi mál upp að nýju og nýta þá vinnu sem fyrir liggur í þessum efnum,“ segir Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra, sem hefur ákveðið að taka til skoðunar réttarstöðu heilbrigðisstarfsfólks í tengslum við tilkynningar og rannsókn alvarlegra atvika í heilbrigðisþjónustu.

Sonur Sigga Storms kominn úr öndunarvél
Sigurður Þ. Ragnarsson borgarfulltrúi og veðurfréttamaður með meiru segir stefna í kraftaverk en syni hans hefur verið haldið sofandi í tvo og hálfan mánuð vegna alvarlegrar líffærabilunar.

Tímabundinn kúfur sem þarf að komast í gegnum
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra segir erfiða stöðu á Landspítalanum og öðrum heilbrigðisstofnunum vegna fjölgunar sjúklinga með Covid-19 vera kúf sem komast þurfi í gegnum. Sem hingað til þurfi að treysta á „þolgæði okkar takmarkaða mannauðs í heilbrigðiskerfinu“.

Sjúklingar þurft að bíða á börum inni í sjúkrabílum
Mjög alvarleg staða er á bráðamóttöku Landspítalans, sem að stórum hluta má rekja til hinnar gríðarlegu útbreiðslu Covid á landinu nú, að sögn yfirlæknis. Sjúklingar hafa neyðst til að bíða í sjúkrabílum eftir þjónustu og þá er mörgum sinnt á göngum spítalans, sem yfirlæknir segir algjörlega óásættanlegt.

Hundrað manns á sjúkrahúsum landsins með Covid-19
Alls eru hundrað manns nú inniliggjandi á sjúkrahúsum landsins með Covid-19 og hafa aldrei verið fleiri. 2.656 greindust með Covid-19 í gær, ýmist í hraðprófum eða þá PCR-prófum.

Álagið á heilbrigðisstofnanir nú meira en áður í faraldrinum
Staðan heldur áfram að þyngjast á heilbrigðisstofnunum og sjúkrahúsum landsins viku fyrir viku og hefur ekki verið meira álag vegna Covid frá því að faraldurinn hófst fyrir rúmum tveimur árum. Þetta kemur fram í nýjum pistli sóttvarnalæknis en hann leggur til ýmis tilmæli til landsmanna í ljósi útbreiðslunnar.

Engin stemmning fyrir takmörkunum þó spítalinn sé að þrotum kominn
Landspítalinn stendur ráðalaus frammi fyrir fjölgun innlagna vegna Covid-19. Aldrei hafa fleiri legið inni á spítalanum með veiruna en stjórnendur hans efast þó um að stjórnvöld grípi til samkomutakmarkana á ný til að hefta útbreiðslu faraldursins.

Enn fjölgar sjúklingum á Landspítala með Covid-19
77 sjúklingar liggja nú inni á Landspítalanum með Covid-19 og hefur þeim fjölgað um átta á milli daga. Karlmaður á níræðisaldri með Covid-19 lést á legudeild á spítalanum í gær.

Heilbrigðisráðherra minnir fólk á sinna persónubundnum sýkingavörnum
„Við þurfum öll að sýna ábyrgð með hegðun okkar þar til bylgja faraldursins gengur yfir,“ er haft eftir Willum Þór Þórssyni heilbrigðisráðherra í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins, þar sem fólk er hvatt til að sinna persónubundnum sýkingavörnum.

Óprúttnir aðilar seldu Landspítala ónothæfan hlífðarbúnað:Fleiri fyrirtæki lentu í því sama
Óprúttnir aðilar nýttu sér neyðarástandið sem skapaðist í upphafi kórónuveirufaraldursins og seldu Landspítalanum ófullnægjandi hlífðarbúnað. Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segir slíkt hafa komið upp hjá fleiri fyrirtækjum í faraldrinum.

Tveir karlmenn á áttræðisaldri með Covid-19 létust á Landspítala
Tveir karlmenn á áttræðisaldri með Covid-19 létust á gjörgæsludeild Landspítalans í gær.

Úrbætur á LSH fyrir krabbameinssjúka og tilboð Krabbameinsfélagsins
Á aðalfundi Krabbameinsfélagsins í maí 2021 var samþykkt að veita 450 milljón króna fjárstuðning til Landspítalans með því skilyrði að sú upphæð færi til byggingar nýrrar dagdeildar fyrir blóð- og krabbameinslækningar í svokallaðri K-byggingu spítalans við Hringbraut.

Stjórnvöld hafa ekki þegið 450 milljóna króna framlag Krabbameinsfélagsins til uppbyggingar nýrrar dagdeildar
Húsnæðismál blóð- og krabbameinslækninga á Landspítalanum eru í miklum ólestri en þrátt fyrir þetta hafa stjórnvöld enn ekki gengið að tilboði Krabbameinsfélagsins um 450 milljóna króna framlag til úrbóta.

Landspítali á neyðarstigi en unnið að afléttingu takmarkana
Landspítali er á neyðarstigi og 55 sjúklingar eru inniliggjandi með Covid á spítalanum. Farsóttanefnd skoðar möguleika á afléttingum á takmörkunum innan spítalans vegna faraldursins en ólíklegt að hratt verði farið af stað.

Telur hugsanlegt að um 70% landsmanna hafi smitast
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir áætlar að fjöldi þeirra sem hafi smitast af kórónuveirunni sé um tvöfalt meiri en hafi formlega greinst sýktur. Hugsanlegt sé að um 70% landsmanna hafi nú þegar smitast af COVID-19. Þess vegna sé ekki óvarlegt að ætla að hámarki faraldursins verði náð innan tveggja til þriggja vikna og að í framhaldi af því fari nýgreiningum að fækka.

Runólfur tekinn til starfa sem forstjóri Landspítala
Runólfur Pálsson hefur hafið störf sem forstjóri Landspítala. Í ávarpi sínu á vef Landspítala segist Runólfur taka við starfinu af stolti og auðmýkt. Hann segir árangur spítalans á ýmsum sviðum hafa vakið eftirtekt og að sá árangur sé starfsfólki spítalans að þakka en lýsir þó yfir áhyggjum eftir kórónuveirufaraldurinn.

Bjartsýn á að Covid-stormurinn gangi yfir á næstu vikum
Farsóttanefnd Landspítala segir enn mikið álag á spítalanum vegna Covid en 53 sjúklingar eru nú inniliggjandi með Covid, þar af tveir á gjörgæslu og báðir í öndunarvél. Tvö ár eru liðin frá því að fyrsti einstaklingurinn greindist smitaður hér á landi og frá því að fyrsti Covid sjúklingurinn var lagður inn. Veikindin eru nú vægari og telur spítalinn líklegt að Covid stormurinn gangi yfir á næstu vikum.

3.372 greindust innanlands í gær
Í gær greindust 3.412 með Covid-19 hér á landi. Þar af greindust 40 á landamærunum. Það gera 3.372 innanlandssmit sem greindust í gær.

Skilur pressuna á afléttingar en hvetur fólk til að fara áfram varlega
Forstjóri Landspítalans telur að það megi spyrja sig hvort saman fari hljóð og mynd varðandi allsherjarafléttingar sóttvarnatakmarkana hér á landi. Landspítalinn er sem stendur á neyðarstigi, hæsta mögulega viðbúnaðarstigi, vegna mikils álags.

Landspítali færður á neyðarstig
Landspítali hefur verið færður á neyðarstig. Farsóttarnefnd tók þessa ákvörðun og tók nýtt ástand gildi klukkan 14 í dag.

Óttast mikið álag um helgina: „Nú verður þjóðin eins og kýr á vorin“
Már Kristjánsson, yfirlæknir á smitsjúkdómadeild Landspítala, segir ljóst að aukið álag verði á spítalanum um helgina þegar engar takmarkanir vegna Covid verða í gildi. Reynslan sýnir að í kjölfar afléttinga verði veldisvöxtur á fjölda tilfella í samfélaginu sem hefur síðan áhrif á spítalann.

Jáeindaskanninn bilaði á einkar óheppilegum tíma
Bilun kom upp í jáeindaskanna Landspítalans 15. febrúar og er von á því að hann komist aftur í notkun á föstudag. Þurft hefur að fresta rannsóknum á rúmlega tuttugu sjúklingum vegna þessa.

Einn á gjörgæslu
42 liggja á Landspítalanum með Covid-19. Einn er á gjörgæslu, ekki í öndunarvél.

Landspítalinn býst ekki við að kalla fólk úr einangrun
Landspítalinn hyggst ekki sækja um undanþágur frá einangrun fyrir starfsfólk sitt nema brýna nauðsyn beri til, að sögn forstjórans. Sóttvarnalæknir segir að forsendur séu fyrir því að veita slíkar undanþágur í ljósi mikillar útbreiðslu kórónuveirusmita og mönnunarvanda á heilbrigðisstofnunum.

Létta á reglum um einangrun og smitgát fyrir starfsmenn
Landspítalinn hefur nú tekið fyrsta skref í átt að því að reyna að leysa mönnunarvanda vegna fjölda smitaðra starfsmanna. Framvegis mega þríbólusettir og einkennalausir starfsmenn spítalans mæta til vinnu beint eftir fimm daga einangrun.

Forsendur fyrir því að heimila covid-smituðu heilbrigðisstarfsfólki að mæta til vinnu
Sóttvarnalæknir telur forsendur fyrir því að heimila starfsfólki heilbrigðisstofnana að mæta til vinnu, sé það einkennalaust. Þegar hefur eitt hjúkrunarheimili fengið undanþágu frá einangrun.