Icelandair

Boeing fékk pantanir í smíði á fimmtíu 737 MAX-þotum
Boeing-verksmiðjurnar hafa á flugsýningunni í Dubai síðustu daga fengið pantanir í smíði á samtals fimmtíu 737 MAX-þotum, þrátt fyrir að vélarnar hafi verið kyrrsettar undanfarna átta mánuði.

Icelandair setur stefnuna á enn meiri sjálfvirkni
Flugfélagið hefur einsett sér að auka sjálfvirkni í reksti sínum og því fyrirséð að störf hjá flugfélaginu muni breytast.

Enginn mun verða skikkaður í hælaskó
Icelandair tilkynnti á nýafstöðnu Heimsþingi kvenleiðtoga fyrirheit sín um kynjajafnrétti. Fyrirtækið ætlar meðal annars að fjölga karlflugþjónum og samræma reglur um milli kynja varðandi einkennisfatnað starfsmanna.

Flugvél Icelandair snúið við til Keflavíkur
Bilun kom upp í afísingarbúnaði.

„Markmiðið er skýrt - að halda kostnaði í lágmarki“
Flugfélagið Play hyggst spara allt að sjö milljarða króna með minni yfirbyggingu og einfaldari kjarasamningum á næstu þremur árum, ef marka má fjárfestakynningu félagsins.

Flugvél Icelandair snúið við til Keflavíkur eftir að brunaboði fór í gang
Flugvélin lenti heilu og höldnu í Keflavík á níunda tímanum.

Boðað varaflugvallagjald sagt ólöglegt
Forstjóri Icelandair segir áform um varaflugvallagjöld ólögleg og varhugaverð og brjóta gegn EES-samningi. Isavia lýsir áhyggjum af samblöndun byggðastefnu og reksturs Keflavíkurf lugvallar.

Icelandair rauk upp meðan Bogi og Eva kynntu uppgjörið
Búið er að bókfæra hluta Boeingbótanna en flugfélagið áætlar þó að kostnaður vegna innleiðingar og gagnsetningar vélanna komi fram eftir áramót.

Icelandair og Boeing ná samkomulagi um frekari bætur
Viðræður er enn sagðar standa yfir um frekari bætur vegna kyrrsetningar Max-vélanna.

Vélum beint til Akureyrar vegna atviks á flugbrautinni í Keflavík
Hættustigi var lýst yfir á Keflavíkurflugvelli í morgun eftir að draga þurfti litla vél af flugbrautinni eftir að sú rakst í kant við enda flugbrautar.

Viðbúnaður á Keflavíkurflugvelli vegna lítils eldneytis í vél
Viðbúnaður var á Keflavíkurflugvelli eftir að boð barst um að lítið eldsneyti væri í vél Icelandair á leið til landsins.

Icelandair sendi jákvæða afkomuviðvörun í Kauphöll
Horfur í rekstri Icelandair Group á árinu 2019 eru betri en gert hafði verið ráð fyrir.

Icelandair reiknar ekki með MAX-vélum fyrr en í febrúar
Icelandair hefur uppfært flugáætlun sína í janúar og febrúar á næsta ári. Félagið gerir ekki ráð fyrir að Boeing 737 MAX flugvélar verði komnar aftur í rekstur fyrr en í lok febrúar 2020.

Tillaga um sex borgarhátíðir
Menningar-, íþrótta- og tómstundaráð leggur til við borgarráð að Myrkir músíkdagar og Reykjavík Dance Festival bætist í hóp borgarhátíða 2020-2022.

Þær íslensku fá félagsskap á Spáni frá Norðmönnum
Boeing 737 MAX-þotur Icelandair, sem komnar eru til vetrardvalar í Lleida á Spáni, hafa nú fengið félagsskap fleiri samskonar véla. Norska flugfélagið Norwegian fylgdi í kjölfarið.

Fjórar Boeing MAX-þotur Icelandair flognar til vetrarstöðvanna á Spáni
Fjórar Boeing 737 MAX 8-þotur Icelandair hafa núna verið ferjaðar frá Keflavíkurflugvelli til borgarinnar Lleida í Katalóníu, um 160 kílómetra vestnorðvestur af Barcelona.

Maxarnir tóku stóran sveig framhjá loftrýmum Bretlands og Frakklands
Boeing MAX-þoturnar tvær frá Icelandair, sem ferjaðar voru milli Íslands og Spánar í gær, fóru ekki stystu leið milli áfangastaðanna, heldur tóku stóran sveig út á Atlantshaf.

Maxarnir náðu án vandræða til vetrarstöðvanna á Spáni
Tveimur Boeing 737 MAX-vélum Icelandair var flogið frá Íslandi í dag til vetrargeymslu á Spáni. Þetta var í fyrsta sinn frá kyrrsetningu MAX-vélanna fyrir sjö mánuðum að vélar þessarar tegundar frá Icelandair tóku á loft.

Hér má sjá fyrsta flugtak Boeing MAX-þotu Icelandair í sjö mánuði
Tvær Boeing 737 MAX-vélar Icelandair flugu frá Keflavíkurflugvelli í morgun áleiðis til Spánar. Þetta var í fyrsta sinn frá kyrrsetningu MAX-vélanna um heim allan fyrir sjö mánuðum að vélar þessarar tegundar frá Icelandair tóku á loft.

Fyrsta Boeing Max-vélin flogin til Spánar
Áætlað er að ferjuflug Boeing 737 MAX-vélar Icelandair hefjist núna klukkan níu. Fyrsta vélin tekur þá á loft frá Keflavíkurflugvelli og verður henni flogið til Spánar.

Icelandair lækkaði enn í Kauphöll
Á undanförnum sjö dögum nemur lækkunin tíu prósentum.

Á 10 prósent í Loftleiðum Cabo Verde
Björgólfur Jóhannsson, fyrrverandi forstjóri Icelandair Group, á 10 prósenta hlut í Loftleiðum Cabo Verde sem keyptu í febrúar 51 prósents hlut í ríkisflugfélaginu Cabo Verde Airlines á Grænhöfðaeyjum. Þetta kemur fram í ársreikningi.

Icelandair hefur aldrei flutt fleiri farþega til Íslands
Frá byrjun júní og út september fjölgaði farþegum til Íslands um 30 prósent og það sem af er ári hefur félagið flutt tæplega eina og hálfa milljón farþega til landsins.

Þegar byrjað að ferja þorra hópsins úr landi
Veðurofsi gærdagsins hafði áhrif á um 2200 farþega Icelandair.

DHL hættir hjá Icelandair Cargo
DHL hefur nú þegar samið við nýja aðila.

Farþegar sitja fastir í flugvélum á Keflavíkurflugvelli
Mikið hvassviðri er á Reykjanesi og fjölmargir farþegar sitja fastir í flugvélum á flugbrautinni vegna veðursins. Öllum flugferðum Icelandair síðdegis, alls fjórtán, hefur verið aflýst.

Aflýsa öllum flugferðum Icelandair vegna veðurs
Sú ákvörðun hefur verið tekin hjá Icelandair að aflýsa svo öllum brottförum flugvéla Icelandair frá Keflavíkurflugvelli seinni partinn í dag vegna veðurs.

Ferjuflug MAX-véla Icelandair tefst enn
Fyrirséð er að ferjuflug Boeing 737 MAX-véla Icelandair hefst ekki í þessari viku, og dregst fram yfir helgi, að minnsta kosti. Öflun tilskilinna leyfa hefur reynst flóknari og tímafrekari en vonast var til.

Þurftu að snúa við vegna bilunar og lentu þá í veðrinu
Flugvél Icelandair sem lagði af stað til Óslóar um klukkan átta í morgun var snúið við eftir um klukkustundarflug vegna tæknibilunar.

Þarf nýjar tryggingar við sölu Icelandair Hotels til Berjaya
Við kaup Berjaya á meirihluta í íslensku hótelkeðjunni virkjast ákvæði í samningunum um breytingar á eignarhaldi í félaginu (e. change of control) og við það fellur úr gildi móðurfélagsábyrgð Icelandair.