
Birtist í Fréttablaðinu

Getur ÞÚ verið símalaus í einn dag?
Það er ekkert launungarmál að mörg erum við orðin háð símunum okkar, bæði til vinnu og til afþreyingar.

Afskriftir með leynd
Bankamál heimsins eru enn í ólestri þótt tíu ár séu nú liðin frá því að Bandaríkin og mörg Evrópulönd fengu hrollvekjandi áminningu um alvarlegar brotalamir í bankarekstri.

Traktornum var breytt í golfbíl hjá tollinum
Áttræður Eyfirðingur er ósáttur við að dráttarvél sem hann keypti að utan til að auðvelda snjómokstur á heimreiðinni sé tolluð sem golfbíll. Verðið hækkaði um hálfa milljón.

Stórt skref í meðhöndlun mænuskaða
Tvíþætt meðferð sem byggir á markvissri raförvun og sjúkraþjálfun hefur skilað einstökum árangri í Sviss. Þrír einstaklingar, sem allir eru lamaðir fyrir neðan mitti, geta nú gengið, með og án örvunar.

Hlaðborð fyrir tónlistarnördin
ÚTÓN stendur fyrir pallborðsumræðu og fyrirlestrum í næstu viku tengdum Airwaves-hátíðinni. Þetta er í fjórða sinn sem þessi viðburður fer fram.

Veiðigjöld gagnrýnd eystra
Bæjaryfirvöld í Fjarðabyggð leggjast gegn nýju frumvarpi Kristjáns Þórs Júlíussonar um veiðigjöld.

Gleymdist stóriðjan?
Hinn 10. sept. kynnti ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur aðgerðaáætlun í loftlagsmálum.


Rafvagnar spara Strætó 80 þúsund dísillítra í ár
Níu rafmagnsknúnir vagnar eru nú í notkun en alls hafa verið fest kaup á fjórtán.

Markvisst unnið að fjölgun menntaðra á leikskólum
Ágúst Bjarni Garðarsson, formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar, segir það verkefni næstu ára að auka menntun starfsmanna á leikskólum bæjarins og að um landlægt vandamál sé að ræða.

Minnast látinna í Víkurgarði
Klukkan 18 verður helgistund í Dómkirkjunni en síðan verður gengið í Víkurgarð og ljós lögð á leiði þar.

Efnunum eytt á Spáni
Fíkniefnum sem haldlögð voru af spænskum lögregluyfirvöldum í svokölluðu Skáksambandsmáli var eytt áður en frekari greining, sem íslenska lögreglan óskaði eftir, hafði farið fram.

Býst við hærri fargjöldum á næstunni
Starfandi forstjóri Icelandair Group segist hafa "enga trú“ á öðru en að flugfargjöld muni hækka í takt við hækkanir á olíuverði. Greinandi Landsbankans segir hugsanlegt að flugfélög séu hrædd um að verðhækkanir muni koma niður á eftirspurninni.

Sigurður Atli í hluthafahóp ÍV
Félag Sigurðar Atla Jónssonar og Nönnu Margrétar Gunnlaugsdóttur hefur eignast ríflega 1,5 prósenta eignarhlut í Íslenskum verðbréfum (ÍV), samkvæmt nýjum hluthafalista verðbréfafyrirtækisins.

Nýtt lyklafrumvarp
Svokölluð lyklafrumvörp hafa verið lögð fram á Alþingi a.m.k. fimm sinnum frá hruni.

Norræn samvinna
Norðurlöndin eru okkur Íslendingum mjög verðmæt. Menning okkar og tungumál eru svipuð og auðveldara er að sækja sér nám og vinnu á Norðurlöndunum samanborið við önnur svæði.

Reglugerðafargan
Undanfarin ár hafa forsíður blaðanna reglulega greint frá hrakandi geðheilsu íslenskra ungmenna. Þeim líði almennt verr nú en áður. Að sjálfsvíg séu algengasta dánarorsök ungra karlmanna.

Minning látinna og snjallsímar
Næsti sunnudagur, 4. nóvember, er merkilegur fyrir þær sakir að þá er minning látinna haldin í kirkjum landsins í tilefni af allra heilagra messu sem er löng og djúphugsuð hefð.

Hagsmunir hluthafa í öndvegi
Fréttir af afsögn tveggja stjórnarmanna í VÍS í síðustu viku komu flestum á óvart.

Umbreytingar í fjármálaþjónustu
Það hefur ekki farið fram hjá mörgum að miklar umbreytingar eiga sér stað í fjármálaþjónustu nú þegar fjártæknin er farin að bjóða upp á fjölmörg ný tækifæri.

Sektar Landsbankann um hálfa milljón á dag
Landsbankinn hefur þurft að greiða Fjármálaeftirlitinu 23 milljónir króna í sekt frá því í september. Eftirlitið sektar bankann um hálfa milljón á dag til þess að knýja á um að hann selji hlut sinn í Eyri.

Hætt í starfshópi um hvítbók um fjármálakerfið
Sylvía Kristín Ólafsdóttir, sem hefur átt sæti í starfshópi sem vinnur að hvítbók um framtíðarsýn og stefnu fyrir íslenska fjármálakerfið, hefur hætt öllum störfum fyrir hópinn.

Vilja svör frá Landsrétti
Skrifstofustjóri Landsréttar segir að séð verði til þess að hægt verði að koma alveg í veg fyrir að þeir sem ganga í dómsal verði myndaðir. Fréttaljósmyndarar ósáttir.

Bestseller á Íslandi tapaði 105 milljónum
Bestseller á Íslandi rekur meðal annars tískuvöruverslanirnar Vero Moda, Vila, Jack & Jones, Selected og Name It.

Snærós leitar hefnda
Verðlaunablaðamaðurinn Snærós Sindradóttir leitar að sögum um hefnd. Hugmyndin er að gefa þessar sögur út en hugmyndin fæddist í fæðingarorlofi sem hún er í. Sögurnar mega vera langar eða stuttar, fyndnar eða dramatískar.

Menntunarleysi starfsmanna á leikskólum veldur áhyggjum
Fáir starfandi einstaklingar á leikskólum Hafnarfjarðar eru með menntun sem slíkir eða 29 prósent. Oddviti Miðflokksins segir stöðuna grafalvarlega og það blekkingu að hægt sé að halda uppi öflugu skólastarfi með stefnu núverandi meirihluta. Formaður bæjarráðs vildi ekki ræða málið þegar eftir því var leitað.

Vísuðu frá kæru vegna hávaða frá sláttuvélum á golfvellinum í Grafarholti
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála (ÚUA) vísaði á dögunum frá kæru íbúa í Ólafsgeisla í Grafarholti sem kvartað hafði yfir hávaða frá sláttuvélum á Grafarholtsvelli.

Umdeilt að senda hermenn að Mexíkó
Flóttamannalestin hélt áfram í átt að Bandaríkjunum í gær. Málið mikið rætt í kosningabaráttunni. 5.000 hermenn verða sendir til að tryggja öryggi á landamærunum við Mexíkó. Trump forseti ætlar að hætta að veita börnum ólöglegra innflytjenda ríkisborgararétt.

Á Ísland að vera rándýrt?
Það er mál manna að Ísland sé nú rándýrt land heim að sækja.

Landlæknir kallar á eftirlit með óhefðbundnum lækningum
Ekkert eftirlit er með heilsutengdri starfsemi utan heilbrigðisgeirans. Landlæknir segir þar ýmsar hættur geta leynst, líkt og í máli meðhöndlarans sem Fréttablaðið greindi frá á dögunum. Embættið hyggst koma á samtali við velferð