

Veitingastaðir
Fréttir af starfsemi veitingastaða á Íslandi.

Opna pílu- og veitingastað á gamla Stjörnutorgi
Alþjóðlega veitingastaða- og afþreyingakeðjan Oche kemur til með að taka yfir pláss hins gamla Stjörnutorgs Kringlunnar frá og með sumarbyrjun.

Krónan brást strax við
Krónan áréttar að í nóvember á síðasta ári var samningi við Wok On sagt upp með samningsbundnum uppsagnarfresti. Var þetta gert í kjölfar fregna af matvælalagernum í Sóltúni. Á þessum tímapunkti lá ekki fyrir það sem komið hefur fram í fjölmiðlum síðustu daga um rekstur þessara staða; rökstuddur grunur um mansal og annað glæpsamlegt athæfi. Þegar það lá fyrir var stöðunum lokað, samningi rift og merkingar teknar niður.

Eik var ekki kunnugt um skattalagabrot Kristjáns og slítur samstarfi
Eik fasteignafélagi var ekki kunnugt um skattalagabrot Kristjáns Ólafs Sigríðarsonar, sem var ráðinn rekstrarstjóri nýrrar mathallar á Glerártorgi á Akureyri. Eik hefur nú slitið samstarfi við Kristján. Sturla G. Eðvarðsson framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Eik tekur við rekstrarstjórn á meðan framhald ræðst.

Úrskurðuð í áframhaldandi gæsluvarðhald
Sex manns voru úrskurðuð í áframhaldandi tveggja vikna gæsluvarðhald vegna gruns um mansal, peningaþvætti, brot á atvinnuréttindum útlendinga og skipulagða glæpastarfsemi.

Sindri smakkaði engisprettu en sagði nei við ormum
Food & Fun fór fram um helgina og kláraðist á sunnudagskvöldið. Hátíðin hefur aldrei verið stærri og sífellt fleiri Íslendingar vilja prófa öðruvísi mat eins og sést á áhuganum.

Fær ekki íþróttaundanþágu og þarf að borga vask af minigolfinu
Forsvarsmenn Minigarðsins þurfa að greiða virðisaukaskatt af rukkuðum aðgangseyri að minigolfvelli staðarins. Þeir kærðu ákvörðun Ríkisskattstjóra þess efnis og töldu undanþágu vegna íþróttastarfsemi eiga við um minigolfið. Yfirskattanefnd hélt nú ekki.

„Þetta er alveg skelfileg meðferð á starfsfólki“
Formaður MATVÍS segir meðferðina á starfsfólki hjá fyrirtækjum Davíðs Viðarssonar hafa verið skelfilega. Ábendingum um slæma meðferð á starfsfólki á öðrum stöðum hefur fjölgað eftir að upp komst um málið.

Innlit inn í furðuhúsið sem gleypti Grillið
Furðulegt hús, sem risið hefur ofan á Hótel Sögu í stað Grillsins sögufræga, er aðeins til bráðabirgða. Inni í húsinu er verið að endurreisa Grillið í upprunalegri mynd eftir að miklar skemmdir komu í ljós á byggingunni sem fyrir var.

Veitingamenn slegnir og kalla eftir skilvirkara eftirliti
Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði kallar eftir að vinnustaðaeftirlit verði eflt. Veitingamenn séu slegnir eftir umfangsmiklar lögregluaðgerðir í tengslum við meint mansal á veitingastöðum Davíðs Viðarssonar í síðustu viku.

Vill broskarl eða súrkarl í glugga veitingastaða
Formaður Neytendasamtakanna kallar eftir því að úttektir heilbrigðiseftirlita verði aðgengilegar almenningi með einföldum hætti við komu á veitingastaði. Slík upplýsingagjöf sé mikið neytendamál enda hvetji hún forsvarsmenn staðina til að standa sig betur auk þess sem matvælaöryggi eykst.

Greiddi sautján milljónir fyrir aðstoð við að koma hingað og vinna
Alþýðusamband Íslands, stéttarfélög og lögregla hafa ítrekað fengið skilaboð um bága stöðu starfsmanna Quang Lé, sem einnig er þekktur undir nafninu Davíð Viðarsson.

Rannsaka hvort Davíð hafi þegið milljónir fyrir að koma fólki til landsins
Lögregla rannsakar hvort að Davíð Viðarsson og fleiri sem eru nú í gæsluvarðhaldi vegna umfangsmikillar rannsóknar lögreglu á vinnumansali hafi þegið greiðslur frá víetnömsku fólki fyrir aðstoð við að koma þeim til landsins. Þetta herma heimildir fréttastofu.

Segja Wok On ekki tengjast mathöllinni og slíta markaðssamstarfi
Forsvarsmenn mathallarinnar Borg29 í Borgartúni í Reykjavík segja veitingastaðinn Wok On í Borgartúni ekki tengjast mathöllinni og sé ekki í beinu viðskiptasambandi við Borg29. Fyrirtækin hafi þó verið í markaðssamstarfi, sem hafi nú verið slitið.

Þögull sem gröfin um söluna á Wok On til Davíðs
Kristján Ólafur Sigríðarson, stofnandi og fyrrverandi eigandi og framkvæmdastjóri Wok on veitingastaðanna, segir lögreglu ekki hafa rætt við sig í tengslum við umfangsmiklar aðgerðir embættisins víða um land í gær. Hann segist enda ekki tengjast málinu með nokkrum hætti.

Með rekstur og fasteignir út um alla borg
Athafnamaðurinn Davíð Viðarsson á fjölmörg félög og rekur fjölda veitingastaða og verslana í Reykjavík. Heildareignir félaganna sem Davíð á nema 1,2 milljarði króna.

Þrír karlar og þrjár konur í vikulangt gæsluvarðhald
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun fara fram á vikulangt gæsluvarðhald yfir þremur körlum og þremur konum í tengslum við umfangsmiklar lögregluaðgerðir í gær. Ekki hefur fengist staðfest hvort Davíð Viðarsson, eigandi fjölda fyrirtækja sem lokað var í gær, sé meðal þeirra.

„Algjör forsendubrestur í viðskiptasambandi okkar við Wok On“
Forsvarsmaður Gróðurhússins í Hveragerði segir að unnið sé að því að slíta viðskiptasambandi við veitingastaðinn Wok On, sem er í mathöll Gróðurhússins. Staðnum var lokað í gær í umfangsmiklum aðgerðum lögreglu.

Aðgerðirnar standa enn yfir
Umfangsmiklar aðgerðir lögreglu vegna gruns um mansal, peningaþvætti, og skipulagða glæpastarsemi standa enn yfir. Þetta staðfestir Grímur Grímsson yfirlögregluþjónn í samtali við fréttastofu.

Slíta samningi við Wok On
Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, segist ekki hafa upplýsingar um lögregluaðgerðir í tengslum við mansal, peningaþvætti og skipulagða glæpastarfsemi, en útibúum Wok On í verslunum Krónunnar var lokað í aðgerðum lögreglunnar í dag.

Hvernig keyra á fyrirtæki í þrot?
Þær rekstraraðstæður sem þið keppist við að semja um á veitingamarkaði eru ekkert annað en ósjálfbærar fyrir fyrirtækin sem starfa á veitingamarkaði.

Eigandi Vy-þrifa orðinn eini eigandi Wokon
Davíð Viðarsson, framkvæmdastjóri og eigandi þrifafyrirtækisins Vy-þrifa sem er til rannsóknar hjá lögreglu meðal annars fyrir mansal er orðinn einn eigandi og framkvæmdastjóri Wokon ehf. sem rekur samnefnda veitingastaði á höfuðborgarsvæðinu og víða um land.

Stofnandi Wok On dæmdur fyrir skattsvik
Kristján Ólafur Sigríðarsson, stofnandi og fyrrverandi eigandi veitingastaðarins Wok On, hefur hlotið níu mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundinn til þriggja ára, í Héraðsdómi Reykjaness fyrir skattsvik. Honum er einnig gert að greiða 87,4 milljónir í sekt til ríkissjóðs ellegar sitja inni í 360 daga.

Noona kaupir SalesCloud
Noona Labs ehf., sem á og rekur markaðstorgið Noona og rekstrarumsjónarkerfið Noona HQ, hefur fest kaup á öllu hlutafé í hugbúnaðarfyrirtækinu SalesCloud ehf., sem hefur um áraraðir þróað sölu- og greiðslukerfi fyrir veitingastaði, bari, hótel og ýmsa afþreyingu hér á landi og í Svíþjóð.

Gjaldþrota veitingamaður mátti ekki borga þrjátíu kúlur fyrir kókið
Greiðslu gjaldþrota veitingamanns til Coca-Cola Europacific Partners Ísland ehf. upp á tæplega þrjátíu milljónir króna hefur verið rift af Landsrétti. Maðurinn nýtti fjármuni frá gjaldþrota fyrirtæki sínu til þess að greiða skuld sem hann hafði gengið í sjálfskuldarábyrgð fyrir.

Vonbrigði að allir gestakokkar hátíðarinnar séu karlkyns
Matarhátíðin Food & Fun hefst í 23. sinn í byrjun næsta mánaðar. Að vanda tekur fjöldi gestakokka þátt. Tvær konur í veitingageiranum á Íslandi segja það stinga verulega í stúf að allir séu þeir karlkyns. Framkvæmdastjóri hátíðarinnar segir óheppni hafa valdið því að fáar konur taki þátt.

Tímabilið þegar allir fóru í tíu ljósatíma fyrir fermingu
María Rún Hafliðadóttir forstjóri Gleðipinna, sem rekur tíu veitingastaði á höfuðborgarsvæðinu, segist ein þeirra sem túperaði hárið í rot á Duran Duran tímabilinu og fór í tíu ljósatíma í beit fyrir fermingu. Eins og allir unglingar gerðu á þeim tíma.

Smitandi pest í skemmtiferðaskipi: Íslenskt veitingafólk gáttað á lélegum sóttvörnum
Íslensk hjón, sem reka hótel og veitingastað í Flóahreppi, furðuðu sig á lélegum smitvörnum á skemmtiferðaskipi þegar magapest geisaði um borð á dögunum, svo mjög að yfirmaður veitingastaðanna um borð fékk frá þeim tiltal.

Frægir úr fjölmörgum áttum í funheitu partýi
Margt var um manninn á veitingastaðnum Brút í Pósthússtræti á dögunum þar sem skálað var fyrir því að febrúar væri rúmlega hálfnaður og daginn tekið að lengja. Boðið var upp á léttar veitingar, vín og kokteila með tilheyrandi gleði og fram eftir kvöldi.

Boraði í nefið og nuddaði puttanum í pizzadeigið
Forsvarsmenn Domino's pizzakeðjunnar í Japan hafa beðist afsökunar vegna starfsmanns sem boraði í nefið og nuddaði svo puttanum í pizzadeigið.

Hætt við að hætta með kartöflusalatið eftir tugi kvartana
Rekstraraðilar N1 bensínstöðva hafa hætt við að hætta að bjóða viðskiptavinum upp á pylsu með kartöflusalati eftir að tugir kvartana bárust starfsmönnum. Rekstrarstjóri segir að kartöflusalatið hafi átt að víkja fyrir franskri pylsu, en nú verði bæði í boði.