Vill svör um samskipti Katrínar við Björk og Gretu Thunberg Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar vill fá svör frá Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra um samskipti hennar, Bjarkar Guðmundsdóttir og sænska loftslagsaðgerðasinnans Gretu Thunberg. Innlent 27. október 2022 08:58
„Það væri náttúrulega bara stórslys“ Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að það yrði menningarlegt stórslys ekki aðeins fyrir Íslendinga heldur veröldina alla ef íslensk tunga dæi út og enska væri tekin upp hér á landi. Katrín ræddi málefni íslenskunnar í Íslandi í dag, sem sjá má hér að ofan. Í innslaginu er að sönnu farið um víðan völl – líkt og fyrirsögnin ber með sér. Innlent 27. október 2022 08:56
Matarskortur – samvinnuverkefni þjóða Í liðnum mánuði lagði undirrituð land undir fót ásamt þremur öðrum þingmönnum. Ferð okkar var heitið á allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York. Þessi heimsókn okkar var virkilega fróðleg og upplýsandi. En meðan á heimsókninni stóð var haldinn neyðarfundur í þinginu þar sem til umræðu var ályktun aðildarríkja þar sem innlimun Rússa á fjórum héruðum í austanverðri Úkraínu var fordæmd. Þessi neyðarfundur var sá 11. frá upphafi en Sameinuðu þjóðirnar voru stofnaðar árið 1945. Hér var því um sögulegan viðburð að ræða, enda lifum við sögulega tíma. Skoðun 27. október 2022 07:00
Bjarni segir engin átök hafa verið á milli hans og Guðlaugs Þórs „Við höfum ekki rætt þessi mál. Það hafa ekki verið nein átök á milli okkar, bara ágætis samstarf verð ég að segja. Að því leytinu til kæmi mér á óvart ef þetta endaði með einhverjum átökum um forystuna í flokknum,“ segir Bjarni Benediktsson um mögulegt formannsframboð Guðlaugs Þórs Þórðarsonar. Innlent 27. október 2022 06:50
Kristrún og Bjarni saka hvort annað um fáfræði um efnahagsmál Fjármálaráðherra er með frumvarp í undirbúningi þannig að hægt verði að slíta ÍL sjóði á næsta ári en segist helst vilja semja við kröfuhafa þannig að ekki þurfi að leggja frumvarpið fram. Stjórnarandstöðuþingmenn saka ráðherra um að ætla að varpa skuld sjóðsins yfir á lífeyrissjóðina. Innlent 26. október 2022 19:20
„Það á ekki að fara að gera neitt“ Óvissa ríkir um hvort ríkið muni taka Kumbaravog til leigu fyrir á sjötta tug hælisleitenda. Bæjarráð Árborgar fékk tilkynningu um að búið væri að ákveða það og bókaði í framhaldinu að það hefði verið gert án samráðs við sig. Rekstaraðili er tvísaga um hvað sé að gerast á Kumbaravogi. Innlent 26. október 2022 19:01
Kraumar undir niðri í aðdraganda landsfundar Sjálfstæðisflokksins Orðrómur um hugsanlegt framboð Guðlaugs Þórs Þórðarsonar umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra til formanns Sjálfstæðisflokksins á komandi landsfundi er enn ein vísbending um að Guðlaugur Þór og formaðurinn Bjarni Benediktsson gangi ekki í takt. Og að innan flokks skipist menn í sveitir. Líklega er um að ræða eitt verst geymda leyndarmál í íslenskum stjórnmálum. Innlent 26. október 2022 15:35
Heimilt að fá hausverk um helgar Ég hef lagt fram frumvarp á Alþingi til breytinga á lyfjalögum, sem afnemur skilyrði laganna um að sala lausasölulyfja í almennum verslunum sé háð fjarlægð frá apóteki. Með öðrum orðum að heimila sölu lausasölulyfja í öllum almennum verslunum. Skoðun 26. október 2022 13:32
Katrín telur hatursorðræðu hafa aukist og von á þingsályktunartillögu Forsætisráðherra telur að hatursorðræða hafi aukist í samfélaginu og von er á þingsályktunartillögu með aðgerðum gegn henni eftir áramót. Hún segir málið þó snúið og að greina þurfi á milli hvassrar gagnrýni og hatursorðræðu. Innlent 26. október 2022 13:00
Sofandi í bílskrjóðum við Alþingi Það hefur verið athyglisvert að fylgjast með málflutningi Sjálfstæðismanna á Alþingi, en þeir berjast nú sem aldrei fyrr í nafni frelsis og mannréttinda gegn félagslegum réttindum verkafólks. Aðferðir þeirra þurfa reyndar ekkert að koma á óvart, enda hefur flokkurinn löngum gengið erinda auðvaldsins. Skoðun 26. október 2022 11:31
Ríki og sveitarfélög gangi í takt! Sveitarstjórnarmenn á Íslandi sátu á dögunum árlega fjármálaráðstefnu sveitarfélaga þar sem m.a. var fjallað um stöðu sveitarfélaganna, horfur í efnahagsmálum, innviðauppbyggingu og fjárhagsáætlanir. Skoðun 26. október 2022 10:31
Hafa keypt lyfið Paxlovid til meðhöndlunar á Covid-sjúklingum Íslensk heilbrigðisyfirvöld hafa samið um kaup á lyfinu Paxlovid til meðhöndlunar einstaklinga sem eru smitaðir af kórónuveirunni (SARS-CoV-2 ) og í hættu á að veikjast alvarlega af völdum hennar. Innlent 26. október 2022 10:03
Andstæðingur stéttarfélaga? Frelsi launafólks til að velja sér stéttarfélag hefur verið mikið til umræðu upp á síðkastið, bæði á Alþingi og í samfélaginu í kjölfar frumvarps til laga um félagafrelsi á vinnumarkaði sem við þingmenn Sjálfstæðisflokksins lögðum nýlega fram. Skoðun 26. október 2022 10:00
Kæmi Bjarna á óvart ef landsfundur sæi ástæðu til að skipta honum út Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að það kæmi sér á óvart ef landsfundur Sjálfstæðisflokksins sæi ástæðu til að skipta um forystu flokksins á þessum tímapunkti kjörtímabilsins. Innlent 26. október 2022 09:20
Hverjir gæta hagsmuna launafólks? Eftir að þingmenn Sjálfstæðisflokksins lögðu fram frumvarp um félagafrelsi á vinnumarkaði hefur ýmis gagnrýni á frumvarpið litið dagsins ljós. Næstum öll sú gagnrýni var á þann veg að frumvarpið feli í sér skerðingu á réttindum launafólks án þess að rökstyðja þá fullyrðingu eða nefna dæmi um hvernig einstaka greinar frumvarpsins eiga að skerða réttindi launafólks. Skoðun 26. október 2022 08:00
Ertu á sjéns? Þegar fólk lendir á sjéns, þá er mikilvægt að hafa nokkra hluti á hreinu: Eru allir til í þetta? Hvar eru getnaðarvarnirnar? Skoðun 26. október 2022 07:00
Segja Guðlaug Þór velta því fyrir sér að sækjast eftir formannsembættinu Samkvæmt áreiðanlegum heimildum veltir Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, því nú fyrir sér að bjóða sig fram til formennsku í Sjálfstæðisflokknum. Innlent 26. október 2022 06:45
Fimm ný ríkisstörf á Akureyri Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hyggst flytja fimm opinber sérfræðistörf til Akureyrar. Nýtt teymi verður stofnað í bænum og 21 stöðugildi verða á skrifstofum stofnunarinnar á Akureyri. Ráðherra fagnar fjölgun opinberra starfa á landsbyggðinni. Innlent 25. október 2022 21:13
Fimmta tilraun til breytinga á útlendingalögum hafin á Alþingi Þingmenn tókust harkalega á um stöðu fólks sem sækir um alþjóðlega vernd á Íslandi á Alþingi í dag. Dómsmálaráðherra segir stefna í að fjörutíu sinnum fleiri sæki um vernd á þessu ári en fyrir tíu árum. Stjórnarandstöðuþingmenn sökuðu ráðherra um brot á ýmsum lögum. Innlent 25. október 2022 19:21
Þreyttur á argaþrasi um sjávarútveg Hagnaður íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja fyrir afskriftir hefur ekki verið hærri um árabil en arðgreiðslur námu næstum tuttugu milljörðum króna í fyrra. Veiðigjöldin voru hins vegar lægri en fyrir þremur árum. Forstjóri Samherja segir þreytandi að hlusta á eilífar deilur um veiðigjöld. Þau eigi að vera hófleg. Innlent 25. október 2022 18:39
Átján brottvísanir barna á þessu ári Útlendingastofnun hefur tekið átján ákvarðanir um brottvísun barna til Grikklands það sem af er ári. Kærunefnd útlendingamála hefur staðfest allar ákvarðanirnar. Kallað hefur verið á lögreglu í sextán tilfellum. Innlent 25. október 2022 17:46
Nokkrir dagar í Íslandsbankaskýrslu Umsagnarfrestur um skýrslu Ríkisendurskoðunar um sölu á eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka rennur út í dag og nokkrir dagar eru væntanlega í birtingu. Innlent 25. október 2022 15:18
Fólk færir störf Fyrr í dag var haldinn fundur á starfsstöð Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á Akureyri þar sem tilkynnt var að fimm sérfræðistörf á sviði brunabótamats yrðu auglýst. Verða þau störf staðsett á Akureyri. Skoðun 25. október 2022 15:01
Mörður eyddi athugasemd Karls um meint dáðleysi Kjartans Þung undiralda er fyrir væntanlegan Landsfund Samfylkingarinnar sem haldinn verður um helgina. Ýmsar væringar innan flokks hafa leitað upp á yfirborðið í vikunni. Innlent 25. október 2022 14:37
Auknar strandveiðar hafi neikvæð áhrif á stöðugleika og erlenda markaði Forstjóri útgerðafyrirtækisins Samherja segir að þrisvar sinnum hærra verð hafi verið greitt fyrir eldislax í Bretlandi og Þýskalandi en íslenskan þorsk. Ástæðan fyrir þessum verðmun sé einkum vegna skorts á stöðugleika í framboði á þorski. Stöðugleikinn hafi minnkað því veiðiheimildir hafi færst í auknum mæli frá stórútgerð til smærri útgerða. Innlent 25. október 2022 14:30
Bein útsending: Gefa áfallastjórnun stjórnvalda háa einkunn Nefnd sem skipuð var til að greina áfallastjórnun íslenskra stjórnvalda í Covid-19 faraldrinum hefur skilað forsætisráðherra skýrslu sinni og var hún rædd á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun. Nefndin mun kynna skýrsluna í málstofu í Norræna húsinu kl. 14.30 í dag. Innlent 25. október 2022 14:22
Fjörutíu börn komast ekki í skóla Ríflega fjörutíu börn flóttafólks komast ekki í grunnskóla vegna þess að ríki og nokkur sveitarfélög hafa enn ekki samið. Forstjóri Vinnumálastofnunar sem vistar um þúsund manns í skammtímavistun segir brýnt að leysa málið. Innlent 24. október 2022 23:08
Nýr framkvæmdastjóri borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins Maríjon Ósk Nóadóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri borgarstjórnarhóps Sjálfstæðisflokksins. Maríjon hefur starfað fyrir Sjálfstæðisflokkinn sem lögfræðingur upp á síðkastið. Innlent 24. október 2022 19:01
Áforma að bjóða fjárfestum að kaupa allt að 40 prósenta hlut í Ljósleiðaranum Stjórn Ljósleiðarans, sem er alfarið í eigu Orkuveitu Reykjavíkur (OR), hefur samþykkt að auka hlutafé félagsins þar sem stefnt er að því að selja hina nýju hluti til utanaðkomandi fjárfesta. Gert er ráð fyrir að eignarhlutur Orkuveitunnar verði ekki minni en 60 prósent að loknu hlutafjárútboðinu. Innherji 24. október 2022 18:15
Ungliðar leggjast gegn nafnatillögu Marðar og Kristjáns Ungliðahreyfing Samfylkingarinnar, Ungt jafnaðarfólk, leggst gegn þeirri tillögu að nafni Samfylkingarinnar verði breytt í Jafnaðarflokkurinn. Tillagan hefur verið lögð fyrir landsfund flokksins sem hefst á föstudag og stendur fram á laugardag. Innlent 24. október 2022 13:33