Argentína mætir Bandaríkjunum í átta liða úrslitum Riðlakeppninni í körfubolta karla á Ólympíuleikunum lauk i gær og því er ljóst hvaða lið mætast í útsláttarkeppninni. Körfubolti 16. ágúst 2016 11:00
Ásdís faldi sig fyrir fjölmiðlamönnum Ásdís Hjálmsdóttir er mætt á sína þriðju Ólympíuleika og að þessu sinni með nýja taktík. Sport 16. ágúst 2016 08:00
Aldrei verið í betra formi Terry McHugh, þjálfari Ásdísar Hjálmsdóttur, hrósar bæði líkamlega og andlega þættinum hjá þessum 31 árs gamla spjótkastara sem keppir í nótt á Ólympíuleikum í þriðja sinn. Stefnan er sett á úrslitin en til þess þarf að kasta 63 metra. Sport 16. ágúst 2016 07:00
Heimamaðurinn vann ótrúlegan sigur í stangarstökkinu Brasilíumaðurinn Thiago Braz da Silva varð Ólympíumeistari í stangarstökki karla í nótt eftir að hafa barist um gullið við heimsmethafann og Ólympíumeistarann Renaud Lavillenie frá Frakklandi. Sport 16. ágúst 2016 03:04
Skutlaði sér í mark og vann Ólympíugull | Myndir Shaunae Miller frá Bahamaeyjum er nýr Ólympíumeistari í 400 metra hlaupi kvenna eftir að hafa unnið æsispennandi úrslitahlaup á Ólympíuleikunum í Ríó í nótt. Sport 16. ágúst 2016 02:20
Strákarnir hans Dags mæta Katar í átta liða úrslitunum | Þessi lið mætast Katar varð í nótt síðasta liðið til að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum í handbolta karla á Ólympíuleikunum í Ríó. Handbolti 16. ágúst 2016 02:15
Rudisha náði í annað ÓL-gull í 800 metra hlaupi karla Kenýamaðurinn David Rudisha er Ólympíumeistari í 800 metra karla en hann vann úrslitahlaupið á Ólympíuleikunum í Ríó í nótt. Sport 16. ágúst 2016 01:56
Rosaleg rigning í Ríó í nótt | Myndir Hlé var gert á úrslitahluta frjálsíþróttakeppni Ólympíuleikanna í Ríó í nótt vegna öfgafullra veðuraðstæðna. Sport 16. ágúst 2016 00:16
Svíar kvöddu með stórsigri Svíar unnu stórsigur, 30-19, á Brasilíumönnum í lokaleik sínum á Ólympíuleikunum í Ríó. Handbolti 15. ágúst 2016 23:00
Horfði á sigur Liverpool áður en hann setti heimsmetið Suður-Afríkumaðurinn Wayde van Niekerk sló í gær eitt af þessum langlífu heimsmetum frjálsra íþrótta þegar hann tryggði sér Ólympíugull í 400 metra hlaupi karla. Sport 15. ágúst 2016 21:12
Liðsfélagi Eyþóru vann Simone Biles og varð Ólympíumeistari Sanne Wevers, liðsfélagi Eyþóru Elísabetar Þórsdóttur í hollenska landsliðinu í fimleikum, varð í dag nýr Ólympíumeistari á jafnvægisslá á Ólympíuleikunum í Ríó. Sport 15. ágúst 2016 20:45
Aníta þeirra Pólverja setti heimsmet og tók gullið Við Íslendingar eigum Anítu Hinriksdóttur á Ólympíuleikunum í Ríó en Pólverjar eiga líka sína Anítu og sú gerði eitthvað í dag á leikunum í Ríó sem aldrei hefur verið gert áður. Sport 15. ágúst 2016 20:20
Danir töpuðu og misstu 2. sætið Danir töpuðu með þriggja marka mun, 33-30, fyrir Frökkum í síðasta leik þeirra í A-riðli handboltakeppninnar á Ólympíuleikunum í Ríó í dag. Handbolti 15. ágúst 2016 19:20
Lochte neitaði að hlýða ræningjunum Eins og fram kom á Vísi í gær var bandaríski sundmaðurinn Ryan Lochte rændur snemma sunnudags, þegar hann sneri heim úr samkvæmi í Ríó þar sem Ólympíuleikarnir fara fram. Sport 15. ágúst 2016 17:15
Freyr formaður sat með fjölskyldu og þjálfara heimsmetshafans Freyr Ólafsson, formaður Frjálsíþróttasambands Íslands, er mættur til Ríó til að fylgjast með sínu fólki en bæði Ásdís Hjálmsdóttir og Aníta Hinriksdóttir keppa í þessari viku. Sport 15. ágúst 2016 16:30
Lærisveinar Dags unnu B-riðilinn Þýskaland vann sannfærandi sigur, 31-25, á Egyptalandi í dag og tryggði sér um leið sigurinn í B-riðli Ólympíuleikanna. Handbolti 15. ágúst 2016 16:10
Þurfti að rýma JFK út af Bolt Það þurfti að rýma hluta af JFK-flugstöðinni í nótt þar sem öryggisverðir héldu að einhver hefði hleypt af skotvopni. Sport 15. ágúst 2016 15:15
Sjáðu ótrúlegt heimsmetshlaup Van Niekerk Suður-Afríkumaðurinn Wayde van Niekerk átti óvæntasta afrek Ólympíuleikanna til þessa er hann sló 17 ára gamalt heimsmet Michael Johnson í 400 metra hlaupi. Sport 15. ágúst 2016 14:45
Pólverjar þurfa aðstoð frá Degi Slóvenía vann öruggan sigur, 25-20, á Póllandi í lokaumferð riðlakeppni handboltans á Ólympíuleikunum. Handbolti 15. ágúst 2016 14:03
Íslensk list prýðir hótel í Ríó Verk íslensku listakonunnar Kristjönu S. Williams prýða Hótel Belmond Copacabana í Ríó í tilefni af Ólympíuleikunum. Þetta eru myndbandsverk sem varpað er á framhlið hússins, gluggalistaverk á bakhliðinni og vegglistaverk innandyra. Menning 15. ágúst 2016 13:45
Sjáðu sögulegt hlaup Bolt Usain Bolt vann gull í 100 m hlaupi karla á þriðju Ólympíuleikum sínum í röð. Sport 15. ágúst 2016 13:32
Er ekki næsta Bolt eða Phelps heldur fyrsta Simone Biles Fimleikastúlkan Simone Biles hefur heldur betur slegið í gegn á ÓL í Ríó. Sport 15. ágúst 2016 13:00
Bein útsending: Ólympíuleikarnir í Ríó Vísir er með beina sjónvarpsútsendingu frá völdum keppnisgreinum á Ólympíuleikunum í Ríó. Sport 15. ágúst 2016 12:00
Einn Rússi fær að taka þátt í frjálsíþróttakeppninni Það er nú orðið ljóst að einn rússneskur íþróttamaður verður með í frjálsíþróttakeppni Ólympíuleikanna þó svo alþjóða frjálsíþróttasambandið hafi sett alla rússneska frjálsíþróttamenn í bann frá leikunum. Sport 15. ágúst 2016 10:00
Sögulegt gull hjá Murray Breski tenniskappinn Andy Murray skráði sig í sögubækurnar í gær er hann vann gullverðlaun í tenniskeppni Ólympíuleikanna. Sport 15. ágúst 2016 09:30
Kórónuðu ótrúlegt ár í Ríó Síðustu tólf mánuðir hafa heldur betur verið einstakir í sundinu þökk sé framgöngu tveggja frábærra íslenskra sundkvenna sem báðar komust í úrslit á Ólympíuleikunum í Ríó. Hrafnhildur Lúthersdóttir og Eygló Ósk Gústafsdóttir eru frábærir sendiherrar íslenska sundsins og meðal þeirra bestu í bringu- og baksundi. Nú tekur við verðskuldað frí áður en stelpurnar takast á við næstu áskoranir. Sport 15. ágúst 2016 07:00
Sú kólumbíska breytti silfri í gull Caterine Ibargüen frá Kólumbíu varð í nótt Ólympíumeistari í þristökki kvenna eftir flotta keppni á Ólympíuleikvanginum í Ríó. Sport 15. ágúst 2016 02:26
Usain Bolt: Einhver sagði að ég gæti orðið ódauðlegur Usain Bolt var í miklu stuði í nótt eftir sigur sinn í 100 metra hlaupi karla á Ólympíuleikunum í Ríó en hann var að vinna 100 metra hlaupið á þriðju Ólympíuleikunum í röð. Sport 15. ágúst 2016 02:11
Bætti sautján ára heimsmet Michael Johnson Suður-Afríkumaðurinn Wayde van Niekerk tryggði sér í nótt sigur í 400 metra hlaupi karla á Ólympíuleikunum í Ríó en hann vann úrslitahlaupið með sannfærandi hætti og á nýju heimsmeti. Sport 15. ágúst 2016 01:59
Usain Bolt Ólympíumeistari í 100 metra hlaupi í þriðja sinn Jamaíkamaðurinn Usain Bolt tryggði sér í nótt sigur í 100 metra hlaupi karla á þriðju Ólympíuleikunum í röð. Áhorfendur á Ólympíuleikvanginum í Ríó héldu mikið með Bolt og púuðu á Justin Gatlin. Það var því mikill fögnuður þegar Bolt kom fyrstur í mark. Sport 15. ágúst 2016 01:45