Mikil vonbrigði í Mosó með áframhaldandi urðun í bakgarðinum Ljóst er að ekki verður hægt að loka urðunarstað Sorpu í Álfsnesi fyrir lok árs 2023 líkt og samið var um fyrir tveimur árum. Viðræður Sorpu við sveitarfélög um framtíðarurðunarstað fyrir höfuðborgarsvæðið hefur enn engan árangur borið. Innlent 15. september 2022 14:23
Kannabisfnykur kom upp um ræktanda Lögreglan fann í gær kannabisræktun í Hafnarfirði eftir að hafa fundið kannabislykt úr íbúðinni sem ræktað var í. Einnig fundust tilbúin efni þar og ræddi lögregla við einn mann sem grunaður er í málinu. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Innlent 13. september 2022 06:27
Fjarlægðu skriðdýr af vettvangi fíkniefnasölu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ræddi í gærkvöldi við húsráðendur á heimili þar sem fíkniefnasala fór fram. Á heimilinu var skriðdýr sem var fjarlægt en óheimilt er að eiga slíkt dýr hér á landi. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu en ekki er vitað af hvaða tegund skriðdýrið var. Innlent 12. september 2022 07:45
Slökktu greiðlega eld á byggingarstað í Kvíslartungu Eldur kom upp í húsi í Kvíslartungu í Mosfellsbæ á fjórða tímanum í dag. Mikill viðbúnaður var vegna eldsins en greiðlega gekk að slökkva hann. Innlent 5. september 2022 15:46
Olís-spá karla 2022-23: Í skuld eftir skelfinguna síðast Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Aftureldingu 7. sæti Olís-deildar karla í vetur. Handbolti 3. september 2022 10:00
„Þetta er stórkostlegur staður en þetta getur orðið besti staður á jörðinni“ Hundrað og þrítugasti rampur verkefnisins Römpum upp Íslands var tekinn í notkun í dag við sumarbúðir fatlaðra barna og ungmenna í Reykjadal. Ramparnir sem áður voru við sumarbúðirnar voru komnir til ára sinna og því ljóst að þörf væri á breytingum. Foreldrar stefna á að bæta aðstöðuna enn frekar þar sem ramparnir eru aðeins fyrsta skrefið. Innlent 2. september 2022 22:30
Stúkusætið víkur fyrir heitum potti í Mosfellsbæ Afturelding býður upp á nýjung í íslenskum fótbolta annað kvöld þar sem áhorfendum býðst að horfa á leik liðsins við Fylki í Lengjudeild karla úr heitum potti. Mosfellingar hafa bryddað upp á þó nokkrum nýjungum á áhorfendapöllunum í sumar. Íslenski boltinn 1. september 2022 15:01
Eva bjargar átta ára snáða úr ógöngum Frásögn af átta ára dreng sem var kominn illilega af leið í strætisvagni í vikunni hefur vakið nokkra athygli víða á samfélagsmiðlum. Drengurinn er búsettur í Mosfellsbæ en var óvænt kominn í Grafarvog og vissi ekki almennilega hvað var að gerast. Eva Najaaraq Kristinsdóttir, 17 ára nemi við Fjölbrautarskólann í Ármúla, tók málin í sínar hendur. Innlent 1. september 2022 10:30
Eldur kom upp á veitingastað í Mosfellsbæ Eldur kom upp á veitingastað í verslunarkjarnanum við Háholt 14 í Mosfellsbæ í nótt. Innlent 1. september 2022 08:06
Mikil samstaða í hópi fjallabrunara eftir slysið í Úlfarsfelli Sautján ára strákur sem slasaðist alvarlega í hjólreiðakeppni á laugardag undirgekkst aðgerð um helgina en hann hlaut áverka á baki. Meðstjórnandi Hjólreiðasambands Íslands segir viðbragð á staðnum hafa verið fumlaust en verkferlar við slíkum slysum verði til umræðu á næsta fundi sambandsins. Mikil samstaða sé í fámennum hóp þeirra sem keppa í fjallabruni og hugur allra hjá drengnum, sem er vel þekktur í þeirra heimi. Innlent 29. ágúst 2022 13:33
Slasaði hjólreiðamaðurinn undirgekkst aðgerð í nótt Karlmaður sem slasaðist alvarlega í reiðhjólakeppni á Úlfarsfelli í gær fór í aðgerð í nótt og liggur enn á Landspítalanum. Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti manninn á sjúkrahús í gær en talið var að áverkar mannsins væru þess eðlis að ekki væri öruggt að flytja hann með sjúkrabíl. Innlent 28. ágúst 2022 11:24
Vitni að slysinu fengu áfallahjálp Vitni að hjólreiðaslysinu á Úlfarsfelli í Mosfellsbæ í dag fengu áfallahjálp frá Rauða krossinum. Maður slasaðist alvarlega í slysinu en hann var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á sjúkrahús um hádegisbilið í dag. Innlent 27. ágúst 2022 19:34
Fluttur með þyrlu eftir að hann slasaðist í hjólreiðakeppni Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti slasaðan hjólreiðamann á sjúkrahús rétt eftir hádegi í dag. Maðurinn slasaðist í hjólreiðakeppni á Úlfarsfelli í Mosfellsbæ. Innlent 27. ágúst 2022 14:52
Líf og fjör í túninu heima Bæjarhátíðin í Túninu heima er nú í fullum gangi en hún fer jafnan fram síðustu helgina í ágúst. Lífið 27. ágúst 2022 12:54
Tap Strætó aldrei verið meira Á fyrstu sex mánuðum ársins tapaði Strætó um 600 milljónum króna og hefur tapið aldrei verið meira. Takmarkanir vegna heimsfaraldurs og erfiðleikar með nýtt greiðslukerfi, Klappið, settu strik í reikninginn en rekstrargjöld jukust um tólf prósent milli ára. Innlent 26. ágúst 2022 22:19
Skítugasta hlaup ársins á laugardaginn „Við hjá Krónunni höfum ávallt hvatt okkar starfsfólk og viðskiptavini til að huga að heilsusamlegu líferni og ekki síst að hafa gaman og því lá þátttaka okkar í Drulluhlaupinu í augum uppi. Við hlökkum til að hlaupa af stað inn í skemmtilegasta og drullugasta viðburð ársins og vonumst til að sjá sem flesta,“ segir Fanney Bjarnadóttir, verkefnastjóri lýðheilsumála hjá Krónunni en Drulluhlaup Krónunnar fer fram í Mosfellsbæ á laugardaginn. Lífið samstarf 12. ágúst 2022 08:55
Líflegt í Leirvogsá Leirvogsá er búin að eiga ágætt sumar og þessa dagana er hún í aldeilis frábæru vatni og það sem meira er að það er töluvert af laxi í henni. Veiði 11. ágúst 2022 09:30
Tengivagn á hliðina á hringtorgi Tengivagn sem dreginn var af fóðurbíl fór á hliðina á hringtorgi á mótum Vesturlandsvegs og Ásavegs í Mosfellsbæ skömmu fyrir hádegi í dag. Innlent 9. ágúst 2022 14:23
„Ömurlegt að fá svona kvikindi inn í sín híbýli“ Einhver gæti kallað það glæp gegn mannkyni en þjófahyski gerði sér lítið fyrir og braust inn í geymslu Gunnars V. Andréssonar ljósmyndara og stálu myndavélum hans eins og þær lögðu sig. Innlent 8. ágúst 2022 10:35
Dekkið þeyttist yfir á öfugan vegarhelming og framan á bíl Fjögurra bíla árekstur varð á Vesturlandsvegi í Kollafirði klukkan hálf þrjú í gær. Hjólbarði losnaði af kerru sem bíll var með í eftirdragi, þeyttist yfir á öfugan vegarhelming og framan á bíl sem kom úr gagnstæðri átt, með þeim afleiðingum að fjórar bifreiðar skullu saman. Innlent 1. ágúst 2022 08:00
Lögreglan varar fólk við að auglýsa ferðalög á samfélagsmiðlum fyrir helgi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu verður með hefðbundið eftirlit um Verslunarmannahelgina. Hún biður íbúa á svæðinu að hafa augun opin með grunsamlegum mannaferðum en innbrotsþjófar herji gjarnan á yfirgefin heimili á þessari helgi. Innlent 28. júlí 2022 13:36
Rúmar tvær milljónir króna á mánuði fyrir að stýra Mosfellsbæ Bæjarráð Mosfellsbæjar gerði ráðningarsamning við Regínu Ásvaldsdóttur, nýjan bæjarstjóra Mosfellsbæjar, í gær. Samkvæmt ráðningarsamningi fær Regína rúmlega tvær milljónir króna í mánaðarlaun, ökutækjastyrk að andvirði 150 þúsund króna auk greidds síma og nets. Innlent 15. júlí 2022 10:01
Regína verður bæjarstjóri Mosfellsbæjar Regína Ásvaldsdóttir hefur verið ráðin bæjarstjóri í Mosfellsbæ. Hún mun gegna starfinu til 2026 en hún er fyrir sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og hefur unnið þar í fimm ár. Fyrir það var hún bæjarstjóri Akraneskaupstaðar. Innlent 11. júlí 2022 10:26
Fimmtán ára vill bæjarstjórastólinn: „Ég hef allavega stuðning félaga minna“ Mosfellingur á sextánda aldursári hefur sótt um stöðu bæjarstjóra í sveitarfélaginu. Meðal stefnumála hans er að styðja betur við kennara og gera Mosó að grænna samfélagi. Lífið 5. júlí 2022 20:07
Þau sóttu um stöðu bæjarstjóra í Mosfellsbæ Alls sóttu þrjátíu um stöðuna bæjarstjóra í Mosfellsbæ sem auglýst var laust til umsóknar á dögunum. Fimm drógu umsóknir sínar til baka. Nýr bæjarstjóri mun taka við stöðunni af Haraldi Sverrissyni sem gengdi stöðunni síðustu fimmtán árin. Í hópi umsækjanda er fjöldi einstaklinga sem hafa gegnt stöðu bæjar- eða sveitarstjóra í öðrum sveitarfélögum. Innlent 4. júlí 2022 21:01
Framkvæmdir í Bláfjöllum komnar á fullt Framkvæmdir við tvær nýjar stólalyftur í Bláfjöllum eru komar á fullt. Reiknað er með að önnur þeirra verði kominn í gagnið á næstu skíðavertíð. Innlent 30. júní 2022 11:42
Í fyrsta sinn hægt að fá klippingu á fótboltaleik í kvöld Knattspyrnudeild Aftureldingar býður upp á skemmtilega nýjung á leiknum við Þór í Mosfellsbæ í kvöld. Hægt verður að fá klippingu á meðan á leik stendur. Íslenski boltinn 24. júní 2022 08:30
Metnaðarfull 17. júní dagskrá hjá mörgum sveitarfélögum Þjóðhátíðardagurinn verður haldinn með pompi og prakt. Venju samkvæmt er metnaðarfull dagskrá víða um land. Fyrsti þjóðhátíðardagurinn í þrjú ár sem ber ekki merki heimsfaraldursins gengur nú í garð og eru landsmenn eflaust tilbúnir í hátíðarhöld. Lífið 15. júní 2022 16:31
Mannúðlegra að fá hlaðna byssu frá ríkinu en fátæktarfjötra Kona á fimmtugsaldri sem notar hjólastól eftir að hafa fengið heilablóðfall fyrir tveimur áratugum missti húsnæðisbætur um áramótin og lifir nú á sextán þúsund krónum á mánuði. Formaður Öryrkjabandalagsins segir ábyrgðina liggja hjá sveitarfélaginu. Innlent 13. júní 2022 19:46
Þrír handteknir fyrir ógnandi framkomu og hótanir Þrír menn voru handteknir af lögreglu í nótt á þremur ólíkum stöðum og vistaðir í fangageymslu fyrir ógnandi framkomu og hótanir. Fyrst var tilkynnt um mann í annarlegu ástandi í Hafnarfirði sem var mjög æstur og hafði verið að ógna fólki. Lögregla handtók hann og setti í fangaklefa sökum ástands. Innlent 13. júní 2022 06:47