

Menning
Sviðslistir, bókmenntir, sagnfræði, tónlist, myndlist og aðrar listasýningar.

Tónleikastöðum fækkar: „Þetta er bara sorgleg þróun“
Rekstraraðilar segja togstreitu milli hótelgeirans og tónlistarbransans verða til þess að æ fleiri tónleikastaðir þurfi að víkja úr miðborginni. Þróunin sé sorgleg.

Fimm ákærðir í tengslum við andlát Perry
Fimm hafa verið handteknir og ákærðir í tengslum við andlát leikarans Matthew Perry. Meðal þeirra eru þrír læknar en allir ákærðu eru sagðir hafa selt Perry ketamín og lagt sig fram um að leyna því hvað dró hann til dauða.

Handtekinn í tengslum við andlát Matthew Perry
Einstaklingur hefur verið handtekinn í suðurhluta Kaliforníu í Bandaríkjunum í tengslum við andlát Hollywood leikarans Matthew Perry. Perry lést eftir að hann tók inn of stóran skammt af ketamíni.

Forstöðumaðurinn fannst í Salnum
Axel Ingi Árnason hefur verið ráðinn forstöðumaður Salarins í Kópavogi. Hann hefur starfað hjá Salnum frá árinu 2022. Tæpt ár er síðan forstöðumaður Salarins til tólf ára lét af störfum og gagnrýndi áhugaleysi meirihlutans í bæjarfélaginu á starfseminni.

„Ég á mjög auðvelt með að standa með þessu öllu saman“
„Ég hefði aldrei getað látið mig dreyma um að fá að upplifa allt það sem ég er búin að upplifa,“ segir tónlistarkonan Steinunn Jónsdóttir, jafnan tengd við hljómsveitirnar Reykjavíkurdætur og Amabadama. Hún er að vinna að sólóplötu og fagnar því að áratugur sé liðinn frá því að fyrsti smellur Amabadama fór út.

Tugir þúsunda krefjast afsökunarbeiðni frá Raygun
Margir munu minnast Ólympíuleikanna í París fyrir frammistöðu ástralska breikdansarans sem sló í gegn á netmiðlum heimsins en landar hennar eru allt annað en sáttir.

Pétur Jökull er Pj Glaze
Pétur Jökull Jónasson sem ákærður er fyrir aðild að innflutningi á tæplega hundrað kílóum af kókaíni og réttað hefur verið yfir síðustu daga í Héraðsdómi Reykjavíkur er líka tónlistarmaður. Hann hefur gefið út raftónlist undir listamannsnafninu Pj Glaze. Þá spilaði hann líka á hljómborð í rafhljómsveitinni Dr. Mister & Mr. Handsome.

Halldór Bragason lést í eldsvoðanum
Tónlistarmaðurinn Halldór Bragason lést þegar eldur kom upp á heimili hans við Amtmannsstíg í Reykjavík í gær. Halldór, betur þekktur sem Dóri, var meðal lykilmanna í blústónlistarsenunni hér á landi.

Gísla Pálma refsað fyrir akstur undir áhrifum
Rapparinn Gísli Pálmi Sigurðsson hefur verið dæmdur til að greiða 420 þúsund krónur í sekt fyrir að aka án ökuleyfis og undir áhrifum. Þetta er í annað sinn sem Gísli Pálmi er gripinn við akstur undir áhrifum á hálfu ári.

Ljósbrot í forvali til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna
Á blaðamannafundi í morgun tilkynnti franska leikkonan Juliette Binoche, forseti Evrópsku kvikmyndaakademíunnar, að Ljósbrot undir leikstjórn Rúnars Rúnarssonar hafi verið valin til forvals Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna.

Óður til kvenlíkamans í öllu sínu veldi
„Fellingar, hrukkur, appelsínuhúð, gæsahúð, skvabb, mjúkar línur, beinaber svæði. Sambandið milli kropps og vatns verður rannsakað,“ segja sviðslistakonurnar Sigríður Ásta Olgeirsdóttir og Snædís Lilja Ingadóttir sem standa fyrir verkinu Konukroppar og umbreyta sundlaug í leikhús.

Blake Lively umdeild forsíðustúlka septemberblaðsins
Súperstjarnan og leikkonan Blake Lively prýðir forsíðu septemberblaðs Vogue sem er jafnframt alltaf stærsta útgáfa ársins hjá tímaritinu. Forsíðan minnir á gamaldags Hollywood glamúr og hafa netverjar tjáð skiptar skoðanir á þessu vali. Lively hefur sömuleiðis verið gagnrýnd fyrir markaðssetningu á nýrri kvikmynd sem hún fer með aðalhlutverk í.

Sonur Benedikts og Evu kominn með nafn
Sonur Benedikts Brynleifssonar trommuleikara og Evu Brink fjármálastjóra var skírður við hátíðlega athöfn í heimahúsi í gær. Drengurinn, sem komin í heiminn 4. júní síðastliðinn, fékk nafnið Frosti Brink. Eva deildi gleðifréttunum í færslu á Instagram.

Raygun svarar gagnrýnisröddum
Nokkrir keppendur á Ólympíuleikunum hafa vakið mikla athygli fyrir frammistöðu sína en síðustu daga hefur ástralski breikdansarinn Raygun átt sviðið.

Sjáðu einstakar æfingar ástralska prófessorsins í breikdansinum
Breikdans er ný íþrótt á Ólympíuleikunum og ein þeirra sem sló í gegn í greininni er hin ástralska Rachael Gunn (Raygun), þó ekki endilega fyrir góða frammistöðu.

Adele trúlofuð
Breska tónlistarkonan Adele er trúlofuð. Hún greindi sjálf frá þessu á tónleikum í Munchen í Þýskalandi.

Spilaði „Imagine“ til að róa æsta keppendur
Þegar keppendur í úrslitaleik kvenna í strandblaki á Ólympíuleikunum fóru að rífast átti plötusnúður ás uppi í erminni.

Óli Egils snýr sér að Ladda eftir Bubba
Þetta er Laddi! er ný stórsýning eftir Ólaf Egil sem frumsýnd verður í Borgarleikhúsinu í vetur. Í sýningunni hyggst Ólafur Egill í samvinnu við Völu Kristínu Eiríksdóttur skyggnast inn í kollinn á Þórhalli Sigurðssyni, einum ástsælasta listamanni þjóðarinnar.

Mælir með að muna eftir sólarvörn og gleðinni í göngunni
Yfir fjörutíu atriði taka þátt í gleðigöngunni í miðborg Reykjavíkur á morgun. Götur umhverfis gönguleiðina verða lokaðar fyrir bílaumferð frá átta í fyrramálið til sex annað kvöld. Göngustýra hvetur alla sem vilja til að gera sér ferð í bæinn og taka þátt í gleðinni.

Þriðja ungmennið handtekið í tengslum við Swift-tónleikana
Austurríska lögreglan handtók þriðja ungmennið í tengslum við fyrirhugaða árás á tónleika bandarísku tónlistarkonunnar Taylor Swift í gærkvöldi. Sá sem var handtekinn er sagður hafa verið í sambandi við grunaðan höfuðpaur.

Stjörnurnar streyma á Sólheima
Það iðar allt af lífi og fjöri á menningarveislu Sólheima í Grímsnesi í sumar þar sem boðið er upp á ókeypis tónlistardagskrá alla laugardaga með landsþekktu listafólki.

Tileinkar lagið trans fólki: „Hefur verið mikill tilfinningarússíbani“
„Þetta lag skiptir mig svo miklu máli því það er svo persónulegt, þannig ég hlakka til að frumflytja það í kvöld en ég er líka smá stressuð,“ segir Helga Margrét Clarke söngkona. Helga samdi lag um nána manneskju í hennar lífi sem kom út sem trans fyrir tæplega ári síðan en lagið verður frumflutt í Gamla bíó í kvöld.

Mannmergð í Vín: Swift tónleikunum en ekki söngröddinni
Mannmergð er á Kartner Strasse í Vínarborg þar sem aðdáendur bandarísku poppstjörnunnar Taylor Swift hafa komið saman að skiptast á vinaböndum og syngja þekkta slagara söngkonunnar.

Ætluðu að drepa eins marga og þeir gætu
„Ástandið var alvarlegt og ástandið er alvarlegt, en við getum líka fullyrt að við komum í veg fyrir harmleik,“ segir Gerhard Karner, innanríkisráðherra Austurríkis um hryðjuverkaárás sem tveir táningar eru grunaðir um að hafa áætlað að fremja í Vín, í kringum tónleika poppstjörnunnar Taylor Swift í borginni.

May December: Seint koma sumir en koma þó
Kvikmyndin May December er ein þeirra Óskartilnefndu kvikmynda frá því í fyrra sem íslenskir áhorfendur voru sviknir um en hún kom ekki íslensk kvikmyndahús, né á íslenskt Netflix (þar sem hún var frumsýnd víðsvegar). Á dögunum birtist hún hins vegar óvænt á Voddinu, löngu eftir að allir voru hættir að pæla í henni.

Ingi Bauer, VÆB og Stefán Berg bjóða upp á Stemningu
Nýtt lag frá Stefáni Berg, Inga Bauer og söngvakeppnisstrákunum í VÆB er komið á streymisveitur. Lagið ber heitið Stemning og fjallar um stemningu, að sögn þeirra félaga.

Tónleikum Taylor Swift frestað: „Best að þessu sé slaufað þó að það sé rosalega sárt“
Þrennum tónleikum poppstjörnunnar Taylor Swift í Vín í Austurríki hefur verið frestað vegna mögulegrar öryggis- og hryðjuverkaógnar. Fyrstu tónleikarnir áttu að fara fram á morgun, aðrir á föstudag og þriðju á laugardag.

Ari Ólafs tekur stórt stökk: „Þetta er draumur að rætast“
Ari Ólafsson söngvari og leikari mun taka þátt í alþjóðlegri uppsetningu á söngleik Andrew Lloyd Webber um Óperudrauginn. Ari hafði farið í prufur í þrígang áður en hann fékk hlutverk í verkinu og mun því ferðast með leikhópnum um hinar ýmsu borgir Evrópu næsta árið. Ari segir draum sinn vera að rætast en stefnan sé þó tekin á að finna sér starf hér heima til að vera nær fjölskyldunni og nýfæddum syni.

Þorvaldur Halldórsson látinn
Tónlistarmaðurinn Þorvaldur Halldórsson er látinn tæplega áttræður eftir glímu við veikindi. Hann hafði verið búsettur á Spáni í nokkurn tíma.

Snæbjörn nýr leikhússtjóri í Tjarnarbíói
Snæbjörn Brynjarsson safnstjóri og leikhúsgagnrýnandi hefur verið ráðinn nýr leikhússtjóri í Tjarnarbíói. Hann tekur við starfinu af Söru Martí Guðmundsdóttur sem hefur gegnt hlutverkinu undanfarin tvö ár.