„Hún er komin til að vera“ Agnar Már Másson skrifar 2. febrúar 2026 21:28 Laufey Lín var tók á móti sínum öðrum Grammy-verðlaunum í gær, 1. febrúar. Getty Doktor í tónlistafræðum og gangrýnandi telur alveg ljóst að Laufey Lín sé ekki „einhver einsmellungur“ eftir að íslenska söngkonan hlaut í gær sín önnur Grammy-verðlaun. Það hafi verið frábært af hennar hálfu að lofa listnám sitt í þakkarræðunni.
Laufey Lín Jónsdóttir hlaut í gærkvöldi sinn annan Grammy-lúður, í þetta sinn fyrir plötuna „A Matter of Time“ en fyrri verðlaunin hlaut hún einmitt 2024 fyrir plötuna „Bewtiched“. Arnar Eggert Thoroddssen, doktor í tónlistarfræðum og gagnrýnandi rýndi í glæsilegan árangur Laufeyjar í beinni í kvöldfréttatíma Sýnar. „Það er búið að vera ótrúlegt að fylgjast með þesssu ævintýri,“ sagði Arnar, sem sagði íslensku stjörnuna koma sífellt á óvart. Hann kvaðst aðeins einu sinni áður séð söngkonu ná slíkum hæðum með því að lífga upp á gamlan stíl, eins og Laufey gerir með djassinn. „Það er Amy Winehouse,“ sagði Arnar Eggert, en í Winehouse sótti mikinn innblástur í sálartónlist frá 7. áratugnum. „Og það er verið að matreiða þetta ofan í yngri kynslóðir og eldri kynslóðir líka. Þannig að þessar miklu vinsældir koma mér þannig séð á óvart en auðvitað fer hjartað á rás þegar maður sér svona fréttir.“ Arnar svaraði aðspurður að honum fyndist Laufeyju hefði tekist að öðlast varanlegan sess í hópi þeirra bestu. „Nú eru tvö verðlaun í sama flokki, þannig að fólk getur ekki annað gert en að veita henni athygli. Þetta er ekki einhver einsmellungur. Hún er komin til að vera og næstu ár verða mjög forvitnileg.“ Í þakkarræðu sinni sagði Laufey eiga tónlistar- og listnámi sín allt að þakka. „Við megum ekki skera niður fjárframlög til lista, það er svo mikilvægt,“ sagði Laufey. Aranar sagði það frábært að Laufey hefði gert listnám að umfjöllunar efni sínu í ræðunni. „Að hún hafi nýtt þennan vettvang til að undirstrika hvað þetta skiptir miklu máli er frábært,“ sagði Arnar og bætti við að gott starf væri unnið í tónlistarskólum á Íslandi.
Menning Tónlist Grammy-verðlaunin Laufey Lín Mest lesið „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Lífið „Ég ræð ferðinni“ Lífið „Þetta gekk eins og í lygasögu“ Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Lífið Stórum hluta kærunnar vísað frá Lífið Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr Lífið Edrú í sorg: Sonarmissir, á hnefanum og eiginkonan hættir að anda Áskorun Fleiri fréttir „Þú munt verða stórkostleg söngkona“ Söguleg stund í KR heimilinu Falinn gjóður vann Músíktilraunir Segist skilin út undan vegna MAGA-tengingar sinnar Elegans og elskhugar í eftirpartýi hjá Laufeyju Óvæntustu deilur ársins: „Ég hata ekki börn“ Jay-Z breytir um nafn... aftur Laufey sigursælust og Todmobile heiðruð Birnir fær gullplötu fyrir Dyrnar Hringdu kannski-stjarnan orðin mamma Áhrifamestu augnablikin í Kórnum: Flókin líkamsímynd, Bieber-aðdáun og sungið á íslensku Herra Hnetusmjör er söngvari ársins „Takk fyrir mig Ísland, mitt draumaland“ Myndaveisla: Töfrandi stemning á stórtónleikum Laufeyjar Boy George keppir fyrir San Marínó Hollt að sinna húsverkum og fá engin hrós Opna Laufeyjarverslun fyrir tónleikana „Þú ert stærsta súperstjarnan á plánetunni jörð“ Þekktasta söngleikjalag allra tíma í nýjum búning Ástin það besta í heiminum Sjá meira