Rekstrartap Sony aldrei verið hærra Náttúruhamfarir í Asíu á síðasta ári og sterk staða japanska jensins eru sögð vera helstu ástæðurnar fyrir rekstrartapi tæknifyrirtækisins Sony á síðasta ári. Leikjavísir 10. maí 2012 13:43
Xbox 360 leikjatölvan bönnuð í Þýskalandi Bandaríski farsímaframleiðandinn Motorola Mobility hefur fengið lögbann á nokkrar vörur tæknifyrirtækisins Microsoft í Þýskalandi. Það var dómstóll í Mannheim sem komst að þessari niðurstöðu í dag. Viðskipti erlent 2. maí 2012 12:03
Angry Birds Space niðurhalað 50 milljón sinnum Angry Birds Space, nýjasta viðbótin við Angry Birds tölvuleikinn, hefur verið niðurhalað 50 milljón sinnum frá því að hún fór í almenna sölu í síðasta mánuði. Leikjavísir 30. apríl 2012 15:31
Versta rekstrarár í sögu Nintendo Japanski tölvuleikjaframleiðandinn Nintendo tapaði 533 milljónum dollara á síðasta ári eða um 67 milljörðum íslenskra króna. Leikjavísir 26. apríl 2012 11:35
Unnið með skrímslum og legógeimskipum hjá CCP Höfustöðvar tölvuleikjaframleiðands CCP eru ævintýralegur vinnustaður þar sem skrímsli, tæknilegó, fiskar, rafmagnstrommusett og spilakassar, svo eitthvað sé nefnt, setja mark sitt á vinnuumhverfið. Viðskipti innlent 13. apríl 2012 17:07
Næsta PlayStation kölluð "Orbis" Tæknifréttasíðan Kotaku greindi frá því fyrr í vikunni að næsta PlayStation leikjatölvan verði kölluð "Orbis.“ Leikjavísir 29. mars 2012 22:30
"Besta Fanfestið til þessa" „Þetta var besta Fanfestið til þessa," segir Oddur Örn Halldórsson, Fanfest stjórnandi og viðburðarstjóri CCP. Rúmlega þúsund EVE Online spilarar og tölvuleikjaaðdáendur heimsóttu Hörpuna um helgina og áttu þar góða stund saman. Leikjavísir 26. mars 2012 15:22
Angry Birds niðurhalað 10 milljón sinnum á þremur dögum Finnski tölvuleikjaframleiðandinn Rovio tilkynnti á samskiptasíðunni Twitter um helgina að nýjastu útgáfunni af Angry Birds tölvuleiknum hefði verið niðurhalað tíu milljón sinnum á þremur dögum. Leikjavísir 26. mars 2012 13:06
Einn vinsælasti tölvuleikur veraldar uppfærður Ný útgáfa af tölvuleiknum Angry Birds fór í almenna sölu í dag. Tvö ár eru síðan finnski tölvuleikjaframleiðandinn Rovio kynnti fyrstu útgáfu leiksins og hafa vinsældir þessa krúttlega tölvuleiks aukist gríðarlega. Leikjavísir 22. mars 2012 21:30
Árshátíð CCP - DUST 514 heimsfrumsýndur "Við erum beinlínis að taka yfir Hörpuna," segir Eldar Ástþórsson, verkefnastjóri markaðsdeildar CCP. Fanfest hátíðin hófst í dag en þar mun tölvuleikjaframleiðandinn CCP heimsfrumsýna nýjustu afurð sína - DUST 514. Leikjavísir 22. mars 2012 16:25
Lego framleiðir geimskip byggt á tölvuleiknum EVE "Það er verið að fljúga inn módeli sem verður til sýnis á Fanfest,“ segir Eldar Ástþórsson, verkefnastjóri markaðsdeildar hjá CCP. Leikjavísir 21. mars 2012 09:00
Geimfari kynnti nýjasta Angry Birds tölvuleikinn Bandarískur geimfari um borð í Alþjóðlegu Geimstöðinni var fenginn til að opinbera nýjustu viðbót við Angry Birds tölvuleikina. Geimfarinn notaði tækifærið og upplýsti áhorfendur um grunnkenningar eðlisfræðinnar. Leikjavísir 12. mars 2012 23:45
Nýja útgáfan af iPad er miklu betri - 4G net og betri skjár Apple kynnti nú síðdegis nýjan iPad og er gert ráð fyrir að hann komi í verslanir þann 16. mars næstkomandi. Tim Cook, forstjóri tölvurisans, segir að nýja útgáfán verði á sama verði og iPad 2 sem kom út í apríl á síðasta árið. Nýr iPad var ekki það eina sem kynnt var á blaðamannafundinum í dag því Apple ætlar að gefa út nýja útgáfu af Apple TV, sem hefur verið vinsælt hjá notendum til að ná í til dæmis sjónvarpsþætti og kvikmyndir. Viðskipti erlent 7. mars 2012 19:32
"Þetta er framtíð tölvunotkunar" Nýjasta stýrikerfi Microsoft, Windows 8, var opinberað í gær. Fyrstu viðbrögð frá sérfræðingum og neytendum eru afar jákvæð. Viðskipti erlent 1. mars 2012 14:01
MacBook Air valin fartölva ársins 2011 Ritstjórar tæknifréttasíðunnar Engadget hafa birt sitt val á græjum ársins 2011. Snjallsími Samsung, Galaxy Nexus, var valinn sími ársins. Þá var MacBook Air valin fartölva ársins. Viðskipti erlent 27. febrúar 2012 12:55
Nota Angry Birds til að koma í veg fyrir ofbeldi Lögregluyfirvöld í Suður-Kóreu hafa opinberað nýja herferð gegn ofbeldi í skólum landsins. Leitað var til tölvuleikjaframleiðandans Rovio eftir aðstoð. Leikjavísir 23. febrúar 2012 21:00
CCP með 8 milljarða í tekjur á síðasta ári Tekjur tölvuleikjaframleiðandans CCP námu 66 milljónum dollara á síðast ári eða um 8 milljörðum íslenskra króna. Leikjavísir 22. febrúar 2012 14:12
Ný Xbox leikjatölva kynnt á næsta ári Nýjasta leikjatölva Microsoft verður að öllum líkindum opinberuð haustið 2013. Talið er að grafík leikjatölvunnar verði 6 sinnum öflugri en núverandi geta Xbox 360 tölvunnar. Erlent 25. janúar 2012 11:32
Yfir 800 milljarða hagnaður á þremur mánuðum Hagnaður Microsoft, stærsta hugbúnaðarfyrirtækis í heimi, nam 6,64 milljörðum dollara á síðustu þremur mánuðum síðasta árs, eða sem nemur 823 milljörðum króna. Það er örlítil hagnaðarminnkun frá sama tímabili ársins á undan. Viðskipti erlent 20. janúar 2012 17:56
Apple og Sony á lista yfir verstu tæknimistök 2011 Það má segja að tækniiðnaðurinn hafi blómstrað á árinu 2011. En þrátt fyrir miklar framfarir í snjallsímatækni er ljóst að mörg feilspor voru tekin. Vefsíðan Engadget hefur tekið saman það helsta sem fór úrskeiðis hjá tæknifyrirtækjum á árinu. Leikjavísir 30. desember 2011 20:59
Playstation Vita vinsæl en þó gölluð Þrátt fyrir gríðarlegar vinsældir leikjatölvunnar Playstation Vita hafa notendur hennar lýst yfir vonbrigðum með snertiskjá tölvunnar. Playstation Vita fór í sölu um helgina og er hefur nú þegar selst í rúmlega 300.000 eintökum. Leikjavísir 20. desember 2011 16:42
Segir nýja leikjatölvu frá Microsoft væntanlega Tölvuleikjaframleiðandi í Bandaríkjunum hefur gefið til kynna að Microsoft muni opinbera nýja leikjatölvu á næstu vikum. Hann sagði hugmyndir Microsoft vera afar metnaðarfullar. Viðskipti erlent 17. nóvember 2011 21:49
Fengu verðlaun fyrir tölvuleikinn Relocator Nýverið lauk leikjahönnunarkeppninni Game Creator á vegum Icelandic Gaming Industry. Keppnin hófst formlega í byrjun september, að því er fram kemur í tilkynningu, „þar sem keppendur áttu kost á því að mæta á vinnustofur á vegum IGI til að fá aðstoð og álit á sinni vinnu. Vinnustofurnar voru fjórar í heild sinni þar sem fjallað var um leikjahönnun, forritun, frumgerðarsmíði og lokavinnustofa tileinkuð ahliða aðstoð og álitagjöf. Umsjón vinnustofanna var í höndum reyndra aðila úr iðnaðinum, m.a. frá fyrirtækjunum CCP Games og Gogogic.“ Leikjavísir 15. nóvember 2011 10:56
Tölvuþrjótar ráðast á Steam Kreditkorta- og persónuupplýsingar tæplega 35 milljón notenda tölvuleikjaþjónustunnar Steam eru í hættu. Þetta tilkynnti Gabe Newell, stofnandi og stjórnarformaður Valve. Leikjavísir 11. nóvember 2011 21:35
Angry Birds er vinsælasti tölvuleikur veraldar Tölvuleikurinn Angry Birds er sá vinsælasti í heimi. Í tilkynningu frá framleiðanda leiksins, Rovio, kemur fram að náð hefur verið í leikinn 500 milljón sinnum. Leikjavísir 2. nóvember 2011 21:45
Íslenskur fótboltaleikur í farsímann "Þessi leikur hefur verið til í mörg ár, hefur verið spilaður í fjörutíu manna hópi. En það er fyrst núna að við ætlum að koma með hann fram í dagsljósið enda teljum við okkur þekkja vel það sem drífur þátttakendur áfram,“ segir Sigurður Jónsson, tölvufræðingur og framkvæmdarstjóri tölvufyrirtækisins Digon Games. Leikjavísir 24. október 2011 12:00
CCP segir upp 20 prósent starfsmanna Íslenska fyrirtækið CCP, sem framleiðir meðal annars tölvuleikinn Eve Online sem hefur notið gríðarlegra vinsælda um allan heim, hefur ákveðið að segja upp tuttugu prósent starfsmanna en um 600 starfa hjá fyrirtækinu núna. Þrjátíu og fjórum verður sagt upp í Reykjavík, flestir þeirra Íslendingar. Leikjavísir 19. október 2011 14:30
Nýr tölvuleikur Plain Vanilla seldur hjá Apple Íslenska leikjafyrirtækið Plain Vanilla hefur tilkynnt að nýr tölvuleikur þess, The Moogies, sem ætlaður er fyrir iPhone, iPad og iPod touch verði á næstunni settur á markað í Apple netversluninni. Plain Vanilla hefur hannað og framleitt leikinn hér á landi í samvinnu við bandaríska tölvuleikjaútgefandann Chillingo. Leikjavísir 11. október 2011 14:41
Kepptu í fótbolta-Angry Birds Tölvuleikurinn Angry Birds er einn sá vinsælasti í heimi í dag en tveir háskólanemar í Bandaríkjunum ákváðu að slá til og keppa í heimatilbúnni fótboltaútgáfu af leiknum. Leikjavísir 8. október 2011 23:30