Meistararnir enn með fullt hús stiga á toppi deildarinnar Englandsmeistarar Manchester City unnu öruggan 5-1 sigur er liðið tók á móti Fulham í ensku úrvalsdeildinni í dag. City er eina liðið í deildinni sem enn er með fullt hús stiga. Enski boltinn 2. september 2023 16:02
Jói Berg og félagar steinlágu gegn Tottenham | Vandræði Chelsea halda áfram Heung-Min Son var allt í öllu í liði Tottenham er liðið vann öruggan 2-5 sigur gegn Jóhanni Berg Guðmundssyni og félögum hans í Burnley í ensku úrvalsdeildinni í dag. Á sama tíma mátti Chelsea þola 0-1 tap gegn Nottingham Forest. Fótbolti 2. september 2023 16:01
Búist við 200 milljóna risatilboði frá Sádi-Arabíu í Salah Þrátt fyrir að félagsskiptaglugginn í stærstu deildum Evrópu hafi lokað í gær er enn um vika eftir af glugganum í Sádi-Arabíu. Búist er við því að Al-Ittihad muni bjóða 200 milljónir punda í Mohamed Salah, leikmann Liverpool. Fótbolti 2. september 2023 15:15
Hólmbert og félagar á toppinn Hólmbert Aron Friðjónsson og félagar hans í Holstein Kiel lyftu sér á topp þýsku B-deildarinnar í knattspyrnu er liðið vann 2-1 sigur gegn Paderborn í dag. Fótbolti 2. september 2023 14:29
Sheffield United og Everton skiptu fyrstu stigunum á milli sín Sheffield United og Everton gerðu 2-2 jafntefli er liðin mættust í fyrsta leik dagsins í fjórðu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag. Bæði lið nældu sér þar með í sitt fyrsta stig á tímabilinu. Fótbolti 2. september 2023 13:30
Móðir, verslunareigandi og bikaróð: „Fann að það var eitthvað rosalegt að fara að gerast“ Nadía Atladóttir fyrirliði Víkings í Lengjudeild kvenna hefur haft í nægu að snúast í sumar, hún er móðir, verslunareigandi og bikaróð, en hún fer með liði sínu í Bestu deildina á næstu leiktíð. Fótbolti 2. september 2023 12:46
Óttar Magnús lánaður til Vis Pesaro Knattspyrnumaðurinn Óttar Magnús Karlsson er genginn til liðs við Vis Pesaro í ítölsku C-deildinni á láni frá Venezia. Fótbolti 2. september 2023 11:32
Blikar hefja leik í Ísrael og enda í Póllandi Fyrsti leikur Breiðabliks í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu fer fram í Tel Aviv í Ísrael er liðið heimsækir Maccabi Tel Aviv síðar í þessum mánuði. Fótbolti 2. september 2023 11:01
Úrvalsdeildarfélögin bættu eyðslumetið um tæpa 74 milljarða Félagsskiptagluggi stærstu deilda Evrópu lokaði í gær og eins og svo oft áður var nóg að gera hjá félögum í ensku úrvalsdeildinni. Aldrei hafa félög þar í landi eytt jafn háum fjárhæðum í einum glugga eins og nú. Fótbolti 2. september 2023 09:31
„Upplifði hliðar á Gylfa sem ég hafði ekki séð áður“ Freyr Alexandersson, þjálfari Lyngby, kveðst stoltur af Gylfa Þór Sigurðssyni, nýjum leikmanni liðsins. Hann og félagið muni aðstoða Gylfa Þór við að komast aftur inn í rytmann sem fylgir atvinnumennsku í fótbolta eftir tveggja ára útlegð hans frá íþróttinni. Fótbolti 2. september 2023 08:01
Ætlar að halda áfram að verja sig „þar til sannleikurinn kemur í ljós“ Luis Rubiales, forseti spænska knattspyrnusambandsins, ætlar að halda áfram að verja sig „þar til sannleikurinn kemur í ljós.“ Fótbolti 2. september 2023 07:00
Gluggadagurinn: Gravenberch til Liverpool og nafnarnir Joao Felix og Cancelo til Barcelona Félagsskiptaglugginn í öllum helstu deildum Evrópuboltans lokaði í kvöld og bárust tíðindi um félagsskipti í allan dag og lang fram eftir kvöldi. Íþróttadeild Vísis var með puttann á púlsinum og fylgdist með öllu því helsta. Fótbolti 1. september 2023 23:30
Greenwood farinn á láni til Spánar Enski knattspyrnumaðurinn Mason Greenwood er genginn í raðir Getafe á láni frá Manchester United. Fótbolti 1. september 2023 22:46
Mark með síðustu spyrnu leiksins galopnaði fallbaráttuna Selfoss vann gríðarlega mikilvægan 1-0 sigur er liðið tók á móti Gróttu í fallbaráttuslag Lengjudeildarinnar fyrr í kvöld. Fótbolti 1. september 2023 22:15
Egypski auðkýfingurinn Al Fayed látinn Egypski auðkýfingurinn Mohamed Al Fayed, sem var meðal annars eigandi Harrods verslunarinnar og enska knattspyrnuliðslins Fulham FC, er látinn 94 ára að aldri. Al Fayed lætur lífið rétt rúmlega 26 árum eftir að sonur hans Dodi Fayed og Díana prinsessa fórust í bílslysi í París þann 31. ágúst 1997. Fayed hélt því fram að dauði þeirra hafi verið skipulagður af bresku leyniþjónustunni. Erlent 1. september 2023 21:57
Gravenberch orðinn leikmaður Liverpool Hollenski landsliðsmaðurinn Ryan Gravenberch er genginn í raðir Liverpool frá Þýskalandsmeisturum Bayern München. Fótbolti 1. september 2023 21:31
Bowen og Zouma skutu West Ham á toppinn West Ham lyfti sér á topp ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu er liðið vann góðan 1-2 útisigur gegn Luton Town í kvöld. Fótbolti 1. september 2023 20:56
Tíu leikmenn AC Milan héldu út gegn Roma og liðið enn með fullt hús stiga AC Milan er enn með fullt hús stiga í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu eftir góðan 1-2 útisigur gegn Roma í kvöld. Gestirnir frá Mílanóborg þurftu að leika síðasta hálftíma leiksins manni færri. Fótbolti 1. september 2023 20:46
Dortmund kastaði frá sér tveggja marka forskoti gegn nýliðunum Borussia Dortmund þurfti að sætta sig við 2-2 jafntefli er liðið tók á móti nýliðum Heideinheim í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Heimamenn í Dortmund voru komnir með tveggja marka forystu snemma leiks. Fótbolti 1. september 2023 20:31
„Erum ekkert í þessu bara til að taka þátt“ Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, segir að liðið sé ekki mætt í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu til þess eins að taka þátt. Liðið ætli sér að sýna góða frammistöðu og með því komi oft góð niðurstaða. Fótbolti 1. september 2023 19:45
Ísak og félagar lyftu sér á toppinn Ísak Bergmann Jóhannesson og félagar hans í Fortuna Düsseldorf lyftu sér á topp þýsku B-deildarinnar er liðið vann öruggan 3-1 sigur gegn Karlsruher SC í dag. Fótbolti 1. september 2023 18:25
Þjálfari karlaliðsins biðst afsökunar á að hafa klappað fyrir Rubiales Luis de la Fuente, þjálfari spænska karlalandsliðsins í fótbolta, hefur beðist afsökunar á því að hafa klappað fyrir ræðu Luis Rubiales, forseta spænska knattspyrnusambandsins, þar sem hann sagðist ekki ætla að segja af sér í kjölfar þess að hafa kysst Jenni Hermoso gegn hennar vilja. Fótbolti 1. september 2023 18:01
„Upp úr riðlinum, takk!“ Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, segir leikmenn liðsins ekki komna í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar til þess eins að taka þátt. Spennan sé mikil fyrir verkefninu. Fótbolti 1. september 2023 17:15
Nýjustu tíðindi gætu haft slæm áhrif á skipti Gravenberch til Liverpool Upp hafa komið vandamál varðandi möguleg félagsskipti portúgalska miðjumannsins Joao Palhinha frá Fulham til Bayern Munchen, vandamál sem geta haft áhrif til hins verra fyrir Liverpool sem er að reyna ganga frá félagsskiptum Ryan Gravenberch frá Bayern Munchen. Enski boltinn 1. september 2023 16:21
„Búnir að blása af Tenerife-ferðir“ Oliver Sigurjónsson, leikmaður karlaliðs Breiðabliks í fótbolta er virkilega spenntur fyrir komandi verkefni liðsins í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu en í dag fengu Blikar að vita hvaða liðum þeir myndu mæta í riðlakeppninni. Oliver segir Blika ekki mæta í þessa keppni bara til að taka þátt, þeir ætla sér stig. Fótbolti 1. september 2023 15:00
Sverrir Ingi dregur sig úr landsliðshópi Íslands Íslenski landsliðsmaðurinn Sverrir Ingi Ingason hefur þurft að draga sig úr landsliðshópi íslenska karlalandsliðsins í fótbolta fyrir komandi verkefni liðsins í undankeppni EM 2024 vegna meiðsla. Fótbolti 1. september 2023 14:49
Skælbrosandi Gylfi Þór mættur til æfinga: „Gríðarlega erfiður tími“ Danska úrvalsdeildarfélagið Lyngby deilir í dag myndum af æfingu liðsins þar sem sjá má nýjustu viðbæturnar í leikmannahópnum, þá Gylfa Þór Sigurðsson og Marc Muniesa. Fótbolti 1. september 2023 14:35
Þórður mun þjálfa þrjú landslið Íslands Þórður Þórðarson hefur verið ráðinn þjálfari U16 og U17 landsliða kvenna. Samhliða því mun hann þjálfa U23 lið kvenna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá KSÍ. Fótbolti 1. september 2023 14:00
Veltir fyrir sér hvort Southgate sé of trúr sínum uppáhalds mönnum Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englands, tilkynnti á fimmtudag hópinn sem mætir Úkraínu og Skotlandi síðar í þessum mánuði. Southgate er trúr sínum mönnum og velur leikmenn sem hafa lítið sem ekkert spilað sem og einn sem spilar nú í Sádi-Arabíu. Fótbolti 1. september 2023 13:31
Altay fyllir skarð Henderson á Old Trafford Markvörðurinn Altay Bayındır er genginn í raðir enska úrvalsdeildarfélagsins Manchester United. Hann skrifar undir samning til ársins 2027 með möguleika á árs framlengingu. Enski boltinn 1. september 2023 12:31
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti