
Ten Hag eftir nauman sigur á Úlfunum: Getum spilað betur
Erik ten Hag, þjálfari Manchester United, segir sína menn geta spilað betur en lærisveinar hans mörðu Úlfana í lokaleik 1. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld.
Fréttir, myndbönd og tölfræði úr ensku deildinni.
Erik ten Hag, þjálfari Manchester United, segir sína menn geta spilað betur en lærisveinar hans mörðu Úlfana í lokaleik 1. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld.
Franski miðvörðurinn Raphaël Varane skoraði eina mark leiksins þegar Manchester United tók á móti Úlfunum í lokaleik 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Gestirnir voru síst lakari aðilinn og geta verið ósáttir með að ná ekki í að minnsta kosti stig í Leikhúsi draumanna.
Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea hefur staðfest komu Ekvadorans Moisés Caicedo. Sá er miðjumaður sem kemur frá Brighton & Hove Albion fyrir 115 milljónir punda, rúmlega 19 milljarða króna.
Talið er næsta víst að hollenski varnarmaðurinn Jurriën Timber, leikmaður Arsenal á Englandi, verði frá keppni næstu mánuðina eftir að hann fór meiddur af velli í 2-1 sigri á Nottingham Forest í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu.
Manchester United eyddi stórum fjárhæðum í danska landsliðsframherjann Rasmus Höjlund á dögunum en hann mun þó ekki hjálpa liðinu í fyrsta leiknum í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.
Tyrone Mings, varnarmaður enska úrvalsdeildarfélagsins Aston Villa, verður lengi frá eftir hafa meiðst á hné í fyrstu umferð deildarinnar í leik Aston Villa gegn Newcastle United.
Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool hefur náð samkomulagi við Southampton um kaupverð á belgíska miðjumanninum Romeo Lavia. Sky Sports greinir frá.
West Ham United hefur gengið frá kaupum á enska miðjumanninum James Ward-Prowse frá Southampton. Frá þessu greinir félagið í yfirlýsingu á samfélagsmiðlum sínum.
Athæfi egypska sóknarmannsins Mohamed Salah, leikmanns enska úrvalsdeildarfélagsins Liverpool, er hann var tekinn af velli í leik Chelsea og Liverpool í 1.umferð ensku úrvalsdeildarinnar í gær hefur vakið athygli.
Jurgen Klopp, knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarfélagsins Liverpool skaut létt á Chelsea á blaðamannafundi eftir jafntefli liðanna í fyrstu umferð deildarinnar í gær og gaf það í skyn að kollegi sinn Mauricio Pochettino, stjóri Chelsea gæti fengið allt það sem hann vildi á félagsskiptamarkaðnum.
Tottenham skoðar möguleikann á því að fá Romelu Lukaku í framlínu liðsins eftir skipti Harry Kane til Bayern Munchen. Lukaku er úti í kuldanum hjá grönnum þeirra í Chelsea.
Moisés Caicedo virðist vera á leið til Chelsea fremur en Liverpool og mun verða dýrasti leikmaður sem fer á milli enskra úrvalsdeildarfélaga. Chelsea gerir afar langan samning við kauða.
Chelsea tók á móti Liverpool í fyrsta stórleik tímabilsins á Englandi í dag. Leikurinn var ansi fjörugur þar sem boltinn rataði fjórum sinnum í netið en sitthvort markið var dæmt af liðunum vegna rangstöðu, lokatölur 1-1.
Tottenham og Brentford skildu jöfn, 2-2, í fyrri leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í dag. Sanngjörn úrslit í jöfnum leik.
Brentford tekur á móti Tottenham í fyrsta leik gestanna eftir að Harry Kane hélt til Þýskalands.
Danski markvörðurinn Kasper Schmeichel er orðaður við bæði Chelsea og Nottingham Forest en dvöl hans hjá Nice í Frakklandi virðist vera á enda runnin.
NFL-stjarnan Tom Brady, fyrrum leikstjórnandi New England Patriots og Tampa Bay Buccaneers, var meðal áhorenda er Birmingham City hafði betur gegn Leeds United í ensku B-deildinni í fótbolta í dag. Hann heilsaði upp á stuðningsmenn félagsins á knæpu í aðdragandanum.
Burnley klófesti í gær ungan Frakka að nafni Wilson Odobert frá Troyes. Kynningarmyndband vegna stráksins hefur vakið athygli.
Vicente Guaita, markvörður Crystal Palace, setti áhugaverða færslu við Twitter-færslu félagsins. Hann hefur engan áhuga á að spila meira fyrir félagið.
Spænski markvörðurinn Kepa Arrizabalaga er sagður á leið til Real Madrid í heimalandinu á láni frá Chelsea. Hann hafði verið í viðræðum við Bayern Munchen í Þýskalandi en þurfti ekki langan umhugsunarfrest þegar kallið kom úr spænsku höfuðborginni.
Newcastle fór illa með Aston Villa í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Þeir svarthvítu hefja leiktíðina á 5-1 sigri og tveir nýliðar komust á blað.
Bernd Leno var hetja Fulham í dag þegar liðið lagði Everton 0-1 í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Nýliðar Luton fengu fjögur mörk á sig í sínum fyrsta leik.
Arsenal-menn sluppu með skrekkinn gegn Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni í dag en gestirnir vöknuðu til lífsins undir lok leiks.
Arsenal tekur á móti Nottingham Forest í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta, eftir að hafa endað í 2. sæti deildarinnar á síðustu leiktíð.
Sögunni endalausu um möguleg félagaskipti Harry Kane frá Tottenham er loksins lokið en Bayern München kynntu hann sem leikmann sinn í morgun. Hann gæti unnið sinn fyrsta titil með liðinu strax í kvöld.
Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Englandsmeistara Manchester City, var að vonum ánægður með 3-0 sigur sinna manna gegn Burnley í opnunarleik ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Hann var hins vegar ekki jafn ánægður með meiðsli eins síns besta leikmanns, Kevin De Bruyne.
Englandsmeistarar Manchester City unnu öruggan 3-0 útisigur er liðið heimsótti Burnley í opnunarleik ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í kvöld. Norðmaðurinn Erling Braut Haaland hélt uppteknum hætti frá síðasta tímabili og skoraði tvö fyrir gestina.
Manchester United hefur frestað ákvörðun sinni um framtíð hins 21 árs gamla Mason Greenwood sem ekki hefur æft eða spilað með liðinu frá því að hann var handtekinn í janúar í fyrra, grunaður um líkamsárás og tilraun til nauðgunar.
Enn ríkir algjör óvissa um að Mosies Caicedo gangi í raðir Liverpool frá Brighton, fyrir metfé í enskri knattspyrnu, þar sem að leikmaðurinn er sagður hafa fengið bakþanka.
Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, segir að það sé ómögulegt fyrir hann og hans lið að endurtaka leikinn frá því á síðasta tímabili og vinna þrennuna annað árið í röð.