

Alþingi
Fréttir af löggjafarþingi Íslendinga, þingmönnum og fleiri tengdum málum.

Óskar eftir skýringum frá ráðuneyti Bjarna
Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir skýringum fjármála- og efnahagsráðuneytisins á fullyrðingum um að ólöglegt sé að gera vinnuskjöl ríkisendurskoðanda opinber.

Snörp orðaskipti á þingi um meint ærumeiðandi ummæli
Það kom til snarpra orðaskipti á Alþingi á dag á milli Ingu Sæland, formanns Flokks fólksins, og Helgu Völu Helgadóttur þingmanns Samfylkingarinnar. Inga sakaði samflokksmann Helgu um ærumeiðandi ummæli í sinn garð og kom Helga Vala félaga sínum til varnar.

Bein útsending: Katrín svarar fyrir rafbyssumálið
Sérstök umræða um samráðsleysi dómsmálaráðherra við ríkisstjórnina varðandi rafbyssur verður í dag á Alþingi klukkan 15.45. Horfa má á umræðuna í beinni útsendingu hér að neðan.

Vill vita hvað Katrín ætlar að gera vegna bréfs umboðsmanns
Sérstök umræða verður á Alþingi í dag vegna samráðsleysis dómsmálaráðherra um rafbyssur og álits umboðsmanns þess efnis. Þingmaður segir augljóst að ákvæði stjórnarskrár hafi verið brotið og vill vita hvort forsætisráðhera hyggist bregðast við í verki.

„Alltaf mjög leitt þegar leiðir skilja í stjórnmálum“
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður VG, segir að það sé mjög leitt að sjá á eftir nokkrum félagsmönnum úr flokknum vegna óánægju með ný samþykkt útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra. Hún telur þó að þingmenn flokksins hafi unnið að málinu af heilindum og í samræmi við stefnu flokksins.

Teitur Björn mun taka sæti Haraldar: „Nokkuð óvænt“
Teitur Björn Einarsson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins og aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar, mun taka sæti Haraldar Benediktssonar á Alþingi eftir að sá síðarnefndi tekur við stöðu bæjarstjóra Akraness á næstu vikum. Teitur Björn segist spenntur fyrir verkefninu.

Þingmaður ráðinn bæjarstjóri Akraness
Haraldur Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur verið ráðinn bæjarstjóri Akraneskaupstaðar. Hann tekur við stöðunni af Sævari Frey Þráinssyni sem nýverið var ráðinn forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur.

Þarf að segja eitthvað meira?
Við vitum öll hversu mikilvæg mannréttindi eru. Ekki nokkurt okkar myndi vilja skerða eigin mannréttindi, eða ganga gegn jafnrétti. Við viljum öll geta leitað réttar okkar fyrir óvilhöllum dómstólum, því: „Allir skulu vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda, án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti.“ – svo ég vitni í sjálfa Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.

Leyndó í beinni útsendingu
Nýjustu vendingar í málefnum Lindarhvols eru sennilega þær furðulegustu hingað til. Hjá ríkisstjórnarflokkunum hefur farið gríðarleg orka í að koma í veg fyrir að almenningur fái að sjá greinargerð sem einn ríkisendurskoðandi vann um Lindarhvol, en hún stangast í veigamiklum atriðum á við skýrslu sem annar ríkisendurskoðandi gerði um sama mál.

Elva Hrönn hættir í VG
Elva Hrönn Hjartardóttir, fyrrverandi meðlimur stjórnar Vinstri grænna og varaformaður þeirra í Reykjavík, sagði sig úr flokknum fyrr í dag. Hún segist ekki geta kennt sig við hreyfingu „sem samþykkir þau mannréttindabrot sem nýsamþykkt útlendingafrumvarp felur í sér.“

Enn aukast flækjur Lindarhvolsmálsins á Alþingi
Þingmenn eru enn að vandræðast með hvort opinbera eigi greinargerð frá fyrrverandi settum ríkisendurskoðanda um eignarhaldsfélag ríkisins utan um eignir sem það leysti til sín eftir hrun bankanna. Málið verður furðulegra með hverjum deginum sem líður

Dólgslega góð Samfylking
Nýlega datt ég óvænt inn á þing sem varaþingmaður fyrir Eyjólf Ármannsson í Flokki fólksins. Það hefur að öllu leyti verið skemmtilegur tími, sérstaklega að vinna með frábærum þingflokki og framúrskarandi starfsfólki Flokks fólksins. Það hefur jafnframt verið ánægjulegt að rekast á gamla kunningja í þingliði og starfsfólk þingsins.

Varaþingmaður VG tekur þung skref og segir sig úr flokknum
Varaþingmaður og fyrrverandi framkvæmdastjóri Vinstri grænna sagði sig úr flokknum nokkrum mínútum eftir að útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra var samþykkt í gær. Hann ætlar ekki að taka sæti aftur á þingi jafnvel þótt hann yrði kallaður inn.

Þörungaeldi er vaxandi grein
Á dögunum var kynnt skýrsla alþjóðlega ráðgjafafyrirtækisins Boston Consulting Group um stöðu og framtíð lagareldis á Íslandi. Þar var komið inn á tækifæri og áskoranir í þörungaeldi á Íslandi. Í skýrslunni segir að þörungarækt í heiminum hafi færst í vöxt til að mæta aukinni eftirspurn og bæta framleiðslustýringu.

Útlendingafrumvarpið samþykkt
Meirihluti Alþingis hefur samþykkt útlendingafrumvarp Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra. Fjölmargar breytingartillögur voru lagðar fram á Alþingi í dag en þær voru jafnóðum felldar. Minnihlutaþingmenn voru ómyrkir í máli og gagnrýndu meirihlutann harðlega.

Breytingartillögur felldar jafnóðum
Þingmenn úr minnihluta Alþingis hafa lagt fram fjölmargar breytingartillögur á útlendingafrumvarpi Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra á fundi sem nú stendur yfir. Meirihluti þingmanna hefur fellt tillögurnar jafnóðum.

Kalla settan ríkisendurskoðanda á fund um Lindarhvol: „Mögulega tilgangslausasti fundur þingsögunnar“
Meirihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar hefur ákveðið að boða settan ríkisendurskoðanda á opinn fund um Lindarhvolsmálið. Þingmaður Pírata velti því upp hvort sá fundur yrði „mögulega tilgangslausasti fundur þingsögunnar“ og sakaði meirihlutann um sýndarmennsku. Stjórnarliðar sögðu ekkert óeðlilegt við að boðað hafi verið til fundar, þó ekki megi birta greinargerð um málið.

Mótmælt fyrir utan Alþingi
Hópur flóttamanna frá Írak stendur fyrir mótmælum fyrir utan Alþingi í dag vegna umdeilds frumvarps Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra um breytingar á útlendingalögum. Greidd verða atkvæði um frumvarpið á þingi í dag.

Frumvarpið sé illa úthugsað og afleiðingarnar óljósar: „Þetta er mikil afturför“
Allar líkur eru á að útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra verði að lögum frá Alþingi eftir daginn í dag en lokaatkvæðagreiðsla fer fram síðdegis. Þingmaður Pírata segir að í grunninn sé um að ræða pólitíska yfirlýsingu sem lýsi tortryggni og jafnvel andúð í garð fólks á flótta. Flóttamenn hafa boðað mótmæli fyrir utan Alþingi í dag vegna málsins og munu Píratar gefa stjórnarliðum lokatækifæri til að skipta um skoðun á eftir.

Heiða Kristín ráðin framkvæmdastjóri Íslenska sjávarklasans
Heiða Kristín Helgadóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Íslenska sjávarklasans. Hún hefur við starfinu í sumar en hún hefur undanfarin ár starfað sem framkvæmdastjóri Niceland Seafood auk þess að hafa komið að stofnun og rekstri hugbúnaðarfyrirtækja hérlendis og í Bandaríkjunum.

Lokaatkvæðagreiðsla um útlendingafrumvarpið á morgun
Þriðju umræðu um útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra lauk á Alþingi skömmu eftir klukkan sex nú síðdegis. Atkvæðagreiðslu var frestað en hún fer fram á morgun klukkan korter yfir fimm. Verði frumvarpið samþykkt verður það að lögum frá Alþingi.

Eldræða Jódísar: Þingmenn verði að standa í lappirnar gegn „hryllingi“ á Seyðisfirði
Þingmaður Vinstri grænna flutti eldræðu á Alþingi í dag og sagði öðrum þingmönnum að standa í lappirnar gegn erlendum fjárfestum. Tilefni ræðunnar er áætlað fiskeldi á Seyðisfirði en þingmaðurinn er þaðan.

Fundurinn einn sá einkennilegasti að mati Sigmars
Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, segir að opinn nefndarfundar Allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis, sem haldinn var að beiðni Birgis Þórarinssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins hafi verið einn einkennilegasti opni nefndarfundur í sögu Alþingis.

Mörg ríki með verra drykkjarvatn en Venesúela að mati Birgis
Birgir Þórarinsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gerði gæði drykkjarvatns í Venesúela að umtalsefni á opnum nefndarfundi á Alþingi í dag þar sem rætt var um alþjóðleg vernd vegna aðstæðna í Suður-Ameríkuríkinu. Formaður kærunefndar útlendingamála benti Birgir hins vegar á að heildarmat á aðstæðum þar í landi benti til algjörs hruns réttarkerfisins.

Hvað ef pabbi getur ekki keypt íbúð?
Það er erfitt – og erfiðara en áður - fyrir ungt fólk að eignast sína fyrstu íbúð. Húsnæðislán eru dýr og vextir á húsnæðislánum eru mun hærri en í nágrannaríkjunum. Fólk á íslenskum leigumarkaði býr líka við fáránlega erfiðar aðstæður.

Bein útsending: Opinn nefndarfundur um alþjóðlega vernd vegna aðstæðna í Venesúela
Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis heldur opinn fund milli klukkan 9:10 og 10 í dag þar sem fundarefnið er alþjóðleg vernd vegna aðstæðna í Venesúela.

Mögulegt að greinargerð um Lindarhvol verði aldrei birt
Andstaða forseta Alþingis við að birta umtalaða greinargerð um Lindahvol ehf. gæti þýtt að hún komi aldrei fyrir augu þingmanna eða almennings þrátt fyrir vilja meirihluta þingheims, að sögn þingmanns Viðreisnar. Hann saknar þess að heyra forseta rökstyðja afstöðu sína.

Skömmuðu ráðherra fyrir að biðja konur á Alþingi að tala lægra
Þingmenn þriggja flokka í stjórnarandstöðunni skömmuðu í dag fjármálaráðherra og innviðaráðherra fyrir að biðja tvo kvenkyns formenn stjórnmálaflokka um að tala ekki of hátt í ræðustól.

Tekist á um Lindarhvol á þinginu: „Hvers konar rugl erum við eiginlega komin í?“
Þingmenn stjórnarandstöðunnar streymdu hver á fætur öðrum upp í pontu á Alþingi í dag og gagnrýndu forseta Alþingis fyrir að gera ekki greinargerð um Lindarhvol opinbera. Greinargerðin hefur verið mikið hitamál og furða þingmenn stjórnarandstöðunnar sig á því hvers vegna forseti Alþingis stendur í vegi fyrir því að greinargerðin sé birt.

Segir mönnunarvanda feluorð yfir vanfjármögnun: „Það vantar mannskap vegna þess að það vantar pening“
Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, telur þyrlur landhelgisgæslunnar ekki uppfylla þær kröfur sem gerðar eru til þeirra og hefur áhyggjur af viðbragðsgetu þeirra. Hann telur að þrátt fyrir að á síðustu árum hafi verið gerðar ýmsar úrbætur hafi ferlið ekki þróast í rétta átt hvorki með tilliti til mönnunar né tækjabúnaðar.