
Taka ekki þátt í starfsstjórn
Svandís Svavarsdóttir, formaður Vinstri grænna, hefur tilkynnt að ráðherrar flokksins muni ekki verða við beiðni forseta Íslands um að sitja áfram í starfsstjórn.
Fréttir af löggjafarþingi Íslendinga, þingmönnum og fleiri tengdum málum.
Svandís Svavarsdóttir, formaður Vinstri grænna, hefur tilkynnt að ráðherrar flokksins muni ekki verða við beiðni forseta Íslands um að sitja áfram í starfsstjórn.
Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í komandi alþingiskosningum.
Ríkisstjórnin er fallin og komin tími til, atburðarásin síðan Katrín Jakobsdóttir yfirgaf stjórnmálin hefur ekki verið traustvekjandi fyrir þetta ríkisstjórnarsamstarf. Það hefur ekkert verið til staðar eftir brotthvarf hennar sem hefur getað haldið saman þessari ríkisstjórn.
Nokkrir þingflokkar hafa þegar ákveðið hvort þeir hyggist stilla upp listum fyrir komandi Alþingiskosningar eða halda prófkjör. Miðflokkurinn ætlar að stilla upp listum í öllum kjördæmum.
Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi, hyggst ekki láta það trufla sig ef varaformaður flokksins sækist eftir sæti á lista í sama kjördæmi. Þá íhugar Teitur Björn Einarsson þingmaður hvort hann muni sækjast eftir oddvitasæti í Norðvesturkjördæmi. Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, sem hefur verið orðuð við framboð fyrir flokkinn segist ekki vera á leið í landsmálin.
Stjórn kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi hefur óskað eftir framboðum á lista í komandi alþingiskosningum. Val á framboðslista mun fara fram sunnudaginn 20. október.
Halla Tómasdóttir forseti féllst í dag á tillögu Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra í dag um þingrof. Kosið verður til Alþingis þann 30. nóvember næstkomandi.
Biðji forsætisráðherra lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt er reglan að forseti biður ríkisstjórnarflokkanna að sitja áfram í starfsstjórn þar til nýr ríkisstjórn hefur verið mynduð segir lagaprófessor við Háskólann í Reykjavík. Ef annar tekur við hins vegar við forsætisráðuneytinu þá sé um að ræða nýja ríkisstjórn en ekki starfsstjórn. Það séu til dæmi um það.
Forseti Alþingis telur eðlilegt að Bjarna Benediktssyni verði falið að leiða starfsstjórn eftir að hann biðst lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt á Bessastöðum síðar í dag. Óvissa ríki eðlilega um þingstörf þessa dagana en ekkert verði að þingfundi sem var á dagskrá Alþingis í dag.
Það ríkir óvissuástand um framhald þingstarfa í ljósi þeirrar stöðu sem nú er uppi í íslenskum stjórnmálum. Þetta sagði Birgir Ármannsson forseti Alþingis að loknum fundi sínum með Höllu Tómasdóttur forseta Íslands í morgun. Það muni ráðast síðar í dag hvernig þingstörfum verður háttað í vikunni. Þess má vænta að forsætisráðherra muni síðar í dag biðjast lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt.
Birgir Ármannsson forseti Alþingis gekk á fund Höllu Tómasdóttur forseta Íslands nú klukkan níu í morgun til að ræða við hana stöðu mála. Í framhaldinu má búast við að Bjarni Benediktsson forsætisráðherra gangi á fund forseta Íslands og biðjist lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt.
Þingfundur verður ekki á Alþingi í dag eins og gert hafði verið ráð fyrir og segir Birgir Ármannsson forseti Alþingis að það sé eðlilegt miðað við þær aðstæður sem nú eru uppi. Bjarni Benediktsson forsætisráðherra hefur nú ákveðið að biðjast lausnar fyrir sig og sitt ráðuneyti. Samkvæmt starfsáætlun Alþingis hefði þingfundur átt að fara fram í dag.
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, þingmaður Pírata, hyggst ekki bjóða sig fram í komandi Alþingiskosningum. Hún segist þó ekki vera hætt að vinna með Pírötum.
Samband ungra sjálfstæðismanna fagnar ákvörðun Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra um að binda enda á ríkisstjórnarsamstarfið.
Atburðarásin hefur verið hröð í pólitíkinni síðustu sólarhringa og sérfræðingar varla haft undan að reyna að greina stöðuna.
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra segist ætla að biðjast lausnar úr embætti, en segir það hafa legið fyrir frá því að hann tilkynnti um að hann óski eftir þingrofi á sunnudag. Honum finnist eðlilegast að mynda starfsstjórn með stuttan forgangslista sem geti komið mikilvægum málum, líkt og fjárlögum, í gegn sem fyrst.
Ekki er einhugur um það meðal leiðtoga á Alþingi hvort forseti Íslands eigi að verða við ósk forsætisráðherra um þingrof, eða hvort honum beri að biðjast lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt. Forsetinn ræddi við leiðtoga allra flokkanna í dag. Formaður Vinstri grænna lýsti því yfir snemma í kvöld að hún gæti vel séð fyrir sér minnihlutastjórn hennar flokks með Sigurð Inga Jóhannsson formann Framsóknarflokksins í embætti forsætisráðherra fram að kosningum.
Svandís Svavarsdóttir, formaður Vinstri grænna, telur að Bjarni Benediktsson ætti að biðjast lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt, enda hafi hann og Sjálfstæðisflokkurinn gefist upp á verkefninu og yfirgefið ríkisstjórnina. Hún geti vel séð fyrir sér starfsstjórn Framsóknarflokks og Vinstri grænna fram að kosningum undir forsæti Sigurðar Inga Jóhannssonar formanns Framsóknarflokksins.
Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, segist standa við það sem hún sagði í færslu sem hún eyddi af samfélagsmiðlum um helgina. Hún segir þau hörðu viðbrögð sem færslan fékk einkennast af misskilningi og fréttaflutning af henni misvísandi.
Orri Páll Jóhannsson, þingflokksformaður Vinstri grænna, segir að ákvörðun Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra hafi komið sér á óvart um að slíta ríkisstjórnarsamstarfinu. Orri segist skilja orð hans þannig að hann sé að „gefast upp á þessu verkefni.“
Fulltrúar minnihlutans á Alþingi reyndu ekki að leyna létti sem hefur gripið um sig í þeirra röðum við þá ákvörðun Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra um að slíta ríkisstjórnarsamstarfinu og óska eftir þingrofi. „Hún var ekkert eðlilega leiðinleg, þessi ríkisstjórn,“ sagði Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir fulltrúi Viðreisnar og bætti um betur en áður hafði Þórhildur Sunna Ævarsdóttir Pírati gefið ríkisstjórninni þessa sömu einkunn.
Prófessor í lögfræði segist telja allar líkur á að forseti Íslands fallist á beiðni forsætisráðherra um þingrof. Þá sé ólíklegt að formenn ríkisstjórnarflokkanna geti ekki unnið saman fram að kosningum í nóvember.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir þingmaður Framsóknarflokksins segir stjórnarsamstarfinu augljóslega lokið. Það þurfi að klára lykilmál eins og fjárlög en það séu kosningar framunda. Framsóknarflokkurinn sé tilbúinn. Það skipti mestu máli að vextir halda áfram að lækka og koma efnahagsmálunum í lag. Lilja ræddi við fréttamann að loknum þingflokksfundi.
Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins segir þingflokkinn hafa farið yfir stöðuna í stjórnmálum í dag á þingflokksfundi. Staðan sé óljóst eftir atburðarás gærdagsins. Hann ætlar á fundi með forsetanum síðar í dag að ræða það hvort ríkisstjórnin starfi saman fram að kosningum eða hvort skipa þurfi starfsstjórn.
Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar segir liggja fyrir að forsætisráðherra hafi ekki beðist lausnar fyrir sína ríkisstjórn. Ræða þurfi hvort setja eigi þess í stað starfsstjórn.
Bæði formaður VG og formaður Framsóknar hafa lýst ákvörðun Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra um stjórnarslit, sem óvæntum. Þetta hafi komið þeim í opna skjöldu. Ólafur Þ Harðarson, stjórnmálafræðiprófessor var beðinn um að meta stöðu flokkanna eftir ákvörðun Bjarna.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar segir ekkert óeðlilegt að ríkisstjórnin starfi áfram sem starfsstjórn en það sé skondið að sjá allan ágreininginn koma upp á yfirborðið. Þau verði bara að axla sína ábyrgð. Þorgerður ræddi við fjölmiðla á leið til fundar við forseta Íslands.
Nú þegar stefnir í kosningar fyrir jól, keppast flokkarnir við að smíða lista til að tefla fram. Uppstilling þykir líkleg víða, og aðeins einn flokkur hefur þegar tekið ákvörðun um að fara í prófkjör. Formaður eins flokksins segir þá ekki hafa langan tíma til að „komast í kjólinn fyrir jólin“.
Bergþór Ólason, Inga Sæland, Jóhann Páll Jóhannsson, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir verða gestir Pallborðsins í dag, þar sem til umræðu verður tilkynning Bjarna Benediktssonar í gær.
Deildarforseti Háskólans á Bifröst segir stjórnarslitin skapa óvissu í efnahagslífinu og erfitt sé að sjá að verðbólga haldi áfram að hjaðna í núverandi ástandi. Hún telur að atvinnulíf muni halda að sér höndum þar til það fer að róast. Nú vilji menn bæði vera í axlaböndum og með belti.