Slegið á fingur Trumps vegna stríðsreksturs í Íran Áróra L Davíðsdóttir og Gunnar Reynir Valþórsson skrifa 24. júní 2026 07:19 Í færslu á samfélagsmiðli sínum gagnrýnir Trump þingmennina sem hann segir gera sér erfiðara fyrir í samningum við Írani sem nú eru í gangi. Getty Öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkti í nótt ályktun þar sem slegið er á puttana á Donald Trump forseta Bandaríkjanna og honum sagt að hætta stríðsrekstri í Íran.
Þá er einnig lagt að forsetanum að fá leyfi hjá þinginu fyrir frekari árásum á landið, teljist þær nauðsynlegar. Ályktunin var samþykkt í fulltrúadeildinni á dögunum. Málið vekur athygli fyrir þær sakir að Repúblikanaflokkurinn fer með völdin í báðum deildum Bandaríkjaþings og í gærkvöldi kusu nokkrir öldungadeildarþingmenn með tillögu Demókrata. Tillagan var því samþykkt með 50 atkvæðum gegn 48. Slík ályktun hefur þó aðeins táknrænt gildi en ekki lagalegt og því ber Trump engin skylda til að fara eftir henni. Í færslu á samfélagsmiðli sínum gagnrýnir Trump þingmennina sem hann segir gera sér erfiðara fyrir í samningum við Írani sem nú eru í gangi. Hann sagði ályktunina vera „illa tímasetta og tilgangslausa“ í gærkvöldi. Þá hefur breska ríkisútvarpið eftir embættismanni í Hvíta húsinu að ályktunin skipti engu máli þar sem vopnahlé sé í gildi og því tómt mál að tala um að hætta stríðsrekstri sem sé ekki í gangi. Breska ríkisútvarpið segir atkvæðagreiðsluna ummerki um ágreining innan Repúblikanaflokksins sem geti haft áhrif á það hvort flokkurinn haldi naumum meirihluta í báðum deildum þingsins í miðkjörstímabilskosningunum í nóvember.
Donald Trump Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Íran Bandaríkin Mest lesið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Erlent Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Erlent Fleiri fréttir „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Sjá meira