Trump undirritaði samkomulag við Írani Sigurgeir Þorkelsson skrifar 18. júní 2026 00:08 Eftir að hafa haldið upp á áttræðisafmæli sitt með MMA-bardagaveislu í garði Hvíta hússins héld forsetinn á ráðstefnu G7-ríkjanna. Getty Donald Trump forseti Bandaríkjanna segist hafa undirritað samkomulag við Íran. Samkomulagið, sem inniheldur fjórtán atriði, var undirritað af forsetanum í Versölum nú í kvöld. Trump er staddur þar í Frakklandi í tilefni af ráðstefnu G7-ríkjanna, stærstu efnahagsvelda heimsins.
Ein stærsta spurningin sem legið hefur yfir samningaviðræðum er um örlög Hormús-sunds. Sundið hefur meira og minna verið lokað fyrir umferð stórra flutningaskipa frá því að átök hófust en þar á undan fór fimmtungur flutningsbirgða heimsins af olíu og jarðgasi þar um. Írönsk stjórnvöld höfðu haft uppi áætlanir um að leggja toll á skip sem færu um sundið en nú er útlit fyrir að svo verði ekki yfir sextíu daga tímabil hins nýja samkomulags. Ekki er útséð um hvað tekur við þegar samningurinn rennur út. Eitt stærsta ágreiningsmál Írans og Bandaríkjanna hefur verið kjarnorkuáætlun Írans þar sem ríkið hefur komið sér upp tækni til að auðga úran. Stjórnvöld hafa haldið því fram að tilgangurinn sé friðsamlegur en stjórnvöld vestra hafa alltaf óttast að klerkastjórnin vilji komast yfir kjarnavopn. Leiðtogar G7-ríkjanna funduðu í Évian-le-Bains fyrr um morguninn. Getty Samkvæmt heimildum felur samkomulagið í sér að írönsk stjórnvöld muni aldrei eignast kjarnavopn og að núverandi birgðir þeirra af auðguðu úrani verði „útþynntar“ undir dyggu eftirliti Alþjóðakjarnorkustofnunarinnar. Samkomulagið felur í sér að hernaði verði hætt á öllum vígstöðvum, þar á meðal á milli Líbanons og Ísraels. Bandaríkin og Íran hafa sammælst um að lokasamkomulag verði tilbúið innan sextíu daga, að hámarki. Trump hafði áður sagt að það sem væri í pípunum væri ekki hið endanlega vopnahléssamkomulag. Þá heldur Trump fram hótunum þess að ef írönsk stjórnvöld láti ekki að stjórn muni sprengjuregnið hefjast á ný. Samkomulagið kveður einnig á um að komið verði á fót enduruppbyggingarsjóði að andvirði 300 milljarða dollara. Sjóðurinn mun þó ekki innihalda nein bein framlög Bandaríkjanna. Emmanuel og Brigitte Macron sýndu Trump forseta um sali Versalahallar þar sem þau snæddu síðan kvöldverð. Getty Samkomulagið hafði þegar verið undirritað af Masoud Pezeshkian, forseta Írans. Rætt hafði verið um síðustu daga að formleg undirritun færi fram í þessari viku með fulltrúum beggja ríkja, mögulega í Sviss, en þessi undirritun forsetanna hvors í sínu lagi hefur skapað óvissu um það. Næsti áfangastaður Trumps eftir að hann yfirgaf Versali var forsetavélin fræga Air Force One sem mun færa hann aftur til Washington-borgar. Leiðtogar ríkjanna tveggja hafa þegar hafið að gefa út mótvísandi upplýsingar. Trump hefur sagt fréttir af uppbyggingarsjóðnum falsfréttir og þingforseti íranska þingsins og aðalsamningamaður, Mohammed Bagher Ghalibaf, hefur lýst því yfir að sundið umdeilda sé hluti Írans og stjórnvöld muni hefja innheimtu tolls að sextíu dögum liðnum.
Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Donald Trump Bandaríkin Íran Frakkland Mest lesið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Erlent Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Erlent Fleiri fréttir „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Sjá meira