Ósáttur við skilyrðin Agnar Már Másson skrifar 27. maí 2026 23:10 Donald Trump Bandaríkjaforseti. AÐ/Matt Rourke Donald Trump Bandaríkjaforseti kveðst enn ósáttur við þau samningsskilyrði sem Íranir og Bandaríkjamenn semja nú um. Íranskir ríkismiðlar hafa greint frá meintum samningsdrögum en Hvíta húsið kallar þau hreinan uppspuna.
Þetta sagði hann á blaðamannafundi í Washington, samkvæmt BBC, í dag en tók þar fram að hann teldi stjórnvöld í Íran sýna greinilegan áhuga á að binda endi á þriggja mánaða langa stríðið. „Enn sem komið er hafa þeir ekki náð því og við erum ekki sáttir við það, en við munum verða það. Annaðhvort það eða við verðum bara að klára verkið,“ sagði Trump og virðist þar ýja að árásum á írönsk skotmörk, eins og herinn framkvæmdi á mánudag þrátt fyrir vopnahlé. Íranskir ríkismiðlar greindu í dag frá því sem þeir sögðu vera upplýsingar úr drögum að samkomulagi, sem innihéldu meðal annars enduropnun Hormússunds og að bandarískrar hersveitir yrðu fluttar brott af svæðinu. Hvíta húsið kallaði textann uppspuna. Báðir aðilar gáfu til kynna í síðustu viku að nokkur árangur hefði náðst og að vendingar væru jafnvel yfirvofandi. Svo reyndist þó ekki og skömmu síðar lýstu stjórnvöld í Íran því yfir að samkomulag væri „ekki í nánd“. Trump sagðist þá hafa gefið samningamönnum sínum fyrirmæli um að „flýta sér ekki“. Marco Rubio utanríkisráðherra sagði á sama fundi í dag að „nokkur árangur og nokkur áhugi“ hefði verið í samningaviðræðunum. „Við munum sjá á næstu klukkustundum og dögum hvort hægt verði að ná árangri,“ bætti hann við samkvæmt umfjöllun BBC. Hvorki Trump né Rubio gáfu þó frekari upplýsingar um hvaða ágreiningsefni væru enn á milli aðilanna. Trump minntist heldur ekki beint á meint drög að samkomulagi sem íranskir fjölmiðlar greindu frá sem innihéldu meðal annars að Bandaríkin myndu aflétta hafnarbanni sínu á hafnir Írans, vöruflutningar Írana um Hormússund færu aftur í fyrra horf og að Íran og Óman myndu sjá um stjórnun og leiðarval skipa. Í frétt ríkismiðlanna var aftur á móti ekki minnst á að Íran myndi láta af kjarnorkuáformum sínum eða afhenda birgðir sínar af auðguðu úrani, sem hefur verið meðal helstu krafa Bandaríkjastjórnar.
Donald Trump Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Íran Bandaríkin Mest lesið Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Fleiri fréttir Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Sjá meira