Mjakist nær samkomulagi Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 23. maí 2026 19:08 Það hefur reynst Trump erfitt að stigmagna hótanirnar sínar enda hótaði hann gjöreyðingu landsins hér um bil á fyrsta degi. AP Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Bandaríkjamenn og Írana „færast mun nær“ samkomulagi um að binda enda á stríðið í Miðausturlöndum. Báðir aðilar eru varkárir í yfirlýsingum en teikn um árangur hafa einnig borist frá Teheran.
Samkvæmt umfjöllun breska ríkisútvarpsins hefur talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins sagt að kjarnorkuvopn verði ekki hluti af fyrstu þreifingum en það er helsti ásteytingarsteinn stríðandi fylkinga. Í samtali við bandaríska miðilinn CBS sagðist Trump hafa séð drög að friðarsáttmála. Aðspurður vildi hann ekki segja til um hvort honum litist á þau. Hann fullyrti þó að hvaða samkomulag sem gert yrði myndi kveða á um að Íranar eignuðust ekki kjarnorkuvopn. „Ég mun bara skrifa undir samning þar sem við fáum allt sem við viljum. Annað hvort náum við samkomulagi eða við munum standa frammi fyrir aðstæðum þar sem ekkert land mun nokkurn tímann hafa orðið fyrir jafnharðri árás og [Íranar] eru um það bil að verða fyrir,“ sagði Bandaríkjaforseti. Esmaeil Baqaei, talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins, var til viðtals á ríkissjónvarpi Írans að því er breska ríkisútvarpið greinir frá. Þar sagði hann afstöður Bandaríkjanna og Írans mjakast nær en að ekkert væri í hendi. Hann sakaði Bandaríkjamenn sömuleiðis um mótsagnakenndar yfirlýsingar. Nokkuð er til í þessum áburði hans en Trump forseti sagði í öðru viðtali við miðilinn Axios í dag að líkurnar á að samkomulag næðist væru nær helmingslíkum. Einnig hótaði hann þar að sprengja Íran í tætlur. Trump mun ræða við leiðtoga Persaflóaríkjanna símleiðis í dag að því er báðir miðlar greina frá.
Bandaríkin Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Donald Trump Mest lesið Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Fleiri fréttir Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Sjá meira