Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Eiður Þór Árnason skrifar 28. apríl 2026 19:29 Íbúar í Vestmannaeyjum hafa lýst yfir óánægju með stöðu mála. Vísir/vilhelm Stjórnvöld hyggjast framlengja samning um áætlunarflug milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur og verður flugferðum tímabundið fjölgað í tvær á dag. Þetta er hluti af aðgerðum til að bregðast við erfiðri stöðu í samgöngumálum Eyjamanna. Fyrirtæki felldi í dag niður bátsferðir sem fyrirhugaðar voru næstu helgi.
Nokkuð hefur verið fjallað um ástand samgöngumála á svæðinu en ferjan Herjólfur hefur glímt við bilun og á sama tíma þurft að fara lengri leið til Þorlákshafnar vegna slæms ástands í Landeyjahöfn. Herjólfur var sex klukkutíma að sigla frá Þorlákshöfn til Vestmannaeyja í gær vegna ólgusjós og vélarbilunar. Framkvæmdastjóri Herjólfs segir ófremdarástand ríkja í samgöngumálum í Eyjum og botninum hafi verið náð. Fyrirtækið Ribsafari tilkynnti í dag að ekki verði boðið upp á ferðir milli lands og Eyja um helgina í tengslum við utanvegahlaupið Puffin Run sem dregur fólk gjarnan víða að. Stjórnvöld og Vegagerðin vonast til að Landeyjahöfn verði opnuð á ný fyrir siglingum í næstu viku, nánar tiltekið 7. maí, með þeim fyrirvara að núverandi öldu- og veðurspár gangi eftir. Tvær flugferðir til 15. maí Tvær flugferðir verða farnar milli Reykjavíkur og Eyja alla daga vikunnar frá fimmtudeginum 30. apríl til 15. maí, að því er fram kemur í tilkynningu frá innviðaráðuneytinu. „Til lengri tíma er búist við miklum úrbótum í rekstri hafnarinnar næsta haust þegar belgíski verktakinn Jan de Nul tekur við dýpkun, með mun öflugri búnaði og viðbragði en nú þekkist,“ segir í tilkynningunni. Of grunnt hefur verið í Landeyjahöfn og hafa óhagstæð veðurskilyrði torveldað dýpkun. Hefur höfnin verið lokuð frá því í janúar. Á sama tíma er unnið að því að gera Herjólf III haffæran og er vonast til að skipið verði tilbúið 5. maí, að sögn innviðaráðuneytisins. Það geti þá verið varaskip fyrir Herjólf IV sem hefur siglt á skertum afköstum síðustu vikur vegna bilunar. Taki enga áhættu Fyrirtækið Ribsafari segir að ástæðan fyrir því að fallið hafi verið frá bátsferðum næstu helgi sé sú að þegar verið var að hífa bátinn á flot hafi komið í ljós að viðgerð sem gerð var á botnloka væri ófullnægjandi. „Báturinn var því hífður upp aftur og viðgerð lýkur ekki fyrir helgina. Þó svo að viðgerðin kláraðist fyrir helgi er enginn veðurgluggi til að setja hann á flot,“ segir í færslu á Facebook-síðu fyrirtækisins. Stjórnendur taki enga áhættu þegar kemur að öryggi farþega sinna. Fréttin hefur verið uppfærð og fyrirsögn breytt.
Vestmannaeyjar Samgöngur Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Herjólfur Reykjavíkurflugvöllur Fréttir af flugi Tengdar fréttir „Botninum hefur verið náð“ Herjólfur var sex klukkutíma að sigla frá Þorlákshöfn til Vestmannaeyja í gær vegna ólgusjós og vélarbilana. Framkvæmdastjóri Herjólfs segir ófremdarástand ríkja í samgöngumálum í Eyjum. Botninum hafi einfaldlega verið náð. 28. apríl 2026 13:02 „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Eyjamaður sem var um borð í tæplega sex tíma siglingu Herjólfs í gærkvöldi segir stöðuna í samgöngumálum Vestmannaeyja vera ömurlega. Börn á vegum ÍBV ferðuðust í tæpa tuttugu tíma í gær til að keppa handboltaleik á Selfossi. 28. apríl 2026 11:12 Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira
„Botninum hefur verið náð“ Herjólfur var sex klukkutíma að sigla frá Þorlákshöfn til Vestmannaeyja í gær vegna ólgusjós og vélarbilana. Framkvæmdastjóri Herjólfs segir ófremdarástand ríkja í samgöngumálum í Eyjum. Botninum hafi einfaldlega verið náð. 28. apríl 2026 13:02
„Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Eyjamaður sem var um borð í tæplega sex tíma siglingu Herjólfs í gærkvöldi segir stöðuna í samgöngumálum Vestmannaeyja vera ömurlega. Börn á vegum ÍBV ferðuðust í tæpa tuttugu tíma í gær til að keppa handboltaleik á Selfossi. 28. apríl 2026 11:12