Viðskipti innlent

Jóhann Páll hættir við þátt­töku á haustfundi SVEIT

Lovísa Arnardóttir skrifar
Jóhann Páll tilkynnti SVEIT í gær að hann myndi ekki mæta á haustfundinn.
Jóhann Páll tilkynnti SVEIT í gær að hann myndi ekki mæta á haustfundinn. Vísir/Lýður Valberg

Jóhann Páll Jóhannsson, loftslags-, orku- og umhverfisráðherra, hefur dregið til baka þátttöku sína á haustfundi SVEIT, samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði, í ljósi áskorunar stéttarfélagsins Eflingar frá því í gær þar sem þau hvöttu ráðherrann til að mæta ekki.

Í áskorun Eflingar sagði að þátttaka hans myndi „hvítþvo“ samtökin og veita þeim yfirbragð virðuleika. Allt frá stofnun samtakanna hefur Efling gagnrýnt þau harðlega og tengsl samtakanna við stéttarfélagið Virðingu.

Jóna Þórey Pétursdóttir, aðstoðarmaður Jóhanns Páls, staðfestir í samtali við fréttastofu að hann hafi dregið þátttöku sína til baka.

Einar Bárðarson, framkvæmdastjóri SVEIT, sagði í yfirlýsingu vegna málsins í gær að hann hefði sjálfur verið í sambandi við aðstoðarfólk Jóhanns Páls vegna áskorunarinnar. Samtökin óski ráðherranum ekki að verða bitbein í umræðu er varðar Eflingu og SVEIT og að hann ætti von á því að ráðherrann myndi draga þátttöku sína til baka.

„Á haustfundinum stendur til að fjalla um starfsemi heilbrigðiseftirlita í landinu og kynna fyrirhugaðar breytingar á ábyrgð á eftirliti með hollustuháttum og mengunarvörnum. Í þeim felst meðal annars að færa öll heilbrigðiseftirlit landsins undir sama hatt og samræma þannig vinnu og ferla. Það var erindi ráðherrans á fundinum, fremur en „hvítþvottur“ eins og hún hélt fram,“ sagði hann í yfirlýsingu sinni í gær.

Þar kom einnig fram að á haustfundinum stæði til að leiða saman ólíka aðila sem hafi bæði góða og slæma reynslu af veitingarekstri og kalla fram málefnalega umræðu.

„Varðandi erindi Sólveigar, þá verð ég að ítreka það að Sveit er EKKI aðili að samningum SA við Eflingu þannig erum við í engu samtali við Eflingu og EKKI aðilar að neinum samningum við Eflingu. Stéttarfélagið Virðing var EKKI stofnað af Sveit og ítök okkar eru ekki meiri þar en svo að ég sem nýr framkvæmdastjóri hef ekki náð sambandi við nokkurn mann þar, hvorki símleiðis né í gengum tölvupóst frá því ég hóf störf,“ segir Einar að lokum.


Tengdar fréttir

Segir ljóst að SVEIT hafi eitthvað að fela

Formaður Eflingar segir tregðu Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði eða SVEIT til að afhenda samkeppniseftirlitinu gögn er varða kjarasamninga við stéttarfélagið Virðingu vera skýrt merki um að samtökin hafi eitthvað að fela. Framkvæmdarstjóri SVEIT segir ekki koma til greina að afhenda gögnin ef þeim verður deilt með Eflingu.

SVEIT kærir dagsektir Samkeppniseftirlitsins

Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði (SVEIT) mun kæra ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um álagningu dagsekta. Engar sektir verða lagðar á SVEIT þar til niðurstaða áfrýjunarnefndar liggur fyrir um skyldu SVEIT til afhendingar gagna.

SVEIT þarf að greiða milljón á dag þar til gögn eru afhent

Samkeppniseftirlitið hefur lagt dagsektir á Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði (SVEIT) vegna brota samtakanna á lagaskyldu til þess að afhenda eftirlitinu gögn. Dagsektirnar eru lagðar á til þess að knýja á um að SVEIT fari að samkeppnislögum og afhendi umkrafin gögn. SVEIT hefur kært álagninguna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×