Lét högg og spörk dynja á foreldrunum í tíu klukkustundir Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 30. júlí 2025 18:32 Faðir Margrétar var lagður inn á Landspítalann nokkrum dögum fyrir árásina örlagaríku. Þar dvaldi hann í tvo daga eftir enn eina árás dóttur sinnar. Vísir/ArnarHalldórs Kona sem ákærð er fyrir að verða föður sínum að bana og gera tilraun til að bana móður sinni er sökuð um að hafa mánuðina á undan beitt þau margsinnis ofbeldi. Talið er að árásin nóttina örlagaríku hafi staðið yfir í um tíu klukkustundir. Faðirinn hafði nokkrum dögum fyrr verið lagður inn á sjúkrahús. Sonur hins látna krefst þess að hálfsystir hans verði svipt erfðarétti.
Það var að morgni föstudagsins 11. apríl sem Neyðarlínunni barst símtal frá heimili hér í Súlunesi í Garðabæ. Áttræður karlmaður hafði misst meðvitund á heimili þeirra að loknu margra klukkutíma löngu ofbeldi dóttur sinnar. Maðurinn lést, kona hans var lögð með mikla áverka inn á Landspítalann og dóttir þeirra handtekin. Konan, hin 28 ára gamla Margrét Halla Hansdóttir Löf, hefur sætt gæsluvarðhaldi síðan en var í gær ákærð fyrir að verða föður sínum að bana, gera tilraun til að bana móður sinni og fyrir stórfellt brot í nánu sambandi. Miklu og endurteknu ofbeldi mánuðina á undan er lýst í ákærunni á hendur Margréti. Lá inni á sjúkrahúsi nokkrum dögum fyrr Bæði er um að ræða andlegt ofbeldi þar sem hún fyrirskipaði foreldrum sínum að sitja eða standa á víxl og bannaði þeim að tala við sig á meðan hún beitti hitt foreldrið líkamlegu ofbeldi. Það fólst bæði í höggum í höfuð, andlit og víðar um líkamann en líka spörkum sem leiddu til blæðinga í eyra, glóðurauga og marbletta. Samkvæmt ákærunni þurfti faðir Margrétar að leita sér læknisaðstoðar í vel á annan tug skipta mánuðina fyrir árásina. Móðir Margrétar var sömuleiðis fastagestur á læknastofum af sömu ástæðu. Aðeins nokkrum dögum fyrir árásina örlagaríku þurfti faðirinn að leggjast inn á spítala í tvo daga vegna sára sem hann hlaut eftir enn eina árás dóttur sinnar. Stóð yfir í tíu klukkustundir Talið er að ofbeldi Margrétar gagnvart foreldrum sínum daginn afdrifaríku hafi staðið yfir í um tíu klukkustundir. Þá á hún að hafa látið hnefahöggin og spörkin dynja á foreldrum sínum. Það var svo á flótta af heimilinu á sjöunda tímanum um morguninn sem faðir hennar örmagnaðist í forstofunni, féll niður og lést skömmu síðar. Hann var með fjölmörg brotin rifbein og miklar innvortis blæðingar auk áverka út um allan líkama í formi mara, marbletta, skráma og sára. Móðir Margrétar var lögð inn á Landspítala nefbrotin, með blæðingu í auga, skurð á eyra og marbletti um allan líkama auk klórfara. Málið fer fyrir Héraðsdóm Reykjaness í haust. Sonur hins látna og hálfbróðir Margrétar krefur hana um sex milljónir króna í miskabætur. Þá gerir hann jafnframt þá kröfu að dómurinn svipti hana rétti til arfs eftir föður sinn enda hafi hún ráðið honum bana.
Rannsókn á andláti í Garðabæ Garðabær Lögreglumál Dómsmál Mest lesið Lögregla dreifði gjörbreyttri mynd af díselþjófum Innlent „Sjaldan hefur stjórnmálamaður verið hamflettur jafn rækilega“ Innlent „Það er rosalega ljótt að segja þetta en mér líður bara þannig“ Innlent Líkir aðferðum forstjóra Landsvirkjunnar við heimilisofbeldi Innlent Í áfalli eftir að hafa fengið bréf frá árásarmanninum inn um lúguna Erlent „Hef ekki hitt neinn arkitekt sem finnst þetta góð hugmynd“ Innlent Spáin versnar á ný og gul viðvörun í Eyjum Veður Lét högg og spörk dynja á foreldrunum í tíu klukkustundir Innlent Lögregla biðst afsökunar vegna myndarinnar Innlent Dregur í land og segir Starmer og félaga verðlauna Hamas Erlent Fleiri fréttir Ferðamaður lést við Breiðamerkursand „Í Evrópumálum tel ég að þetta sé ekki rétti tíminn að fara í þá vegferð“ Falið ofbeldi gegn eldri borgurum: „Þetta er barnið mitt, ég ól það upp, gerði ég mistök?“ Ísbjarnareftirlit á Vestfjörðum Íslenskum nemendum fækkar en erlendum fjölgar Lögregla biðst afsökunar vegna myndarinnar Þyrlan kölluð út vegna bráðra veikinda á Breiðamerkursandi Ofbeldi gegn eldri borgurum oft hulið Aukið viðbragð í öllum deildum lögreglu Lögregla dreifði gjörbreyttri mynd af díselþjófum Sendinefnd ESB tjáir sig ekki um tollana Líkir aðferðum forstjóra Landsvirkjunnar við heimilisofbeldi Breiðan „tjakkast upp“ og varað við framhlaupi við hraunjaðrana Meiddist á handlegg og fótum þegar glerhurð brotnaði „Það er rosalega ljótt að segja þetta en mér líður bara þannig“ Segir viðbrögð Bjarnheiðar vekja „óþægilegar minningar“ „Hef ekki hitt neinn arkitekt sem finnst þetta góð hugmynd“ Komu göngumönnum í sjálfheldu til aðstoðar Rússnesk herflugvél mætt í Landeyjarnar „Ég held að þetta sé ekki bóla“ Kona flutt á spítala eftir fjóhjólaslys Vara við að gangast undir fegrunarmeðferðir hjá óviðurkenndum aðilum „Sjaldan hefur stjórnmálamaður verið hamflettur jafn rækilega“ Lét högg og spörk dynja á foreldrunum í tíu klukkustundir Barst tilkynning um olíustuld í Hafnarfirði „Léleg blaðamennska“ sem byggi á upphrópunum og hatri á atvinnulífi Ítrekað ofbeldi, skelfdur Íslendingur eftir skjálfta og padel-æði „Það þarf sennilega að moka þennan bíl upp“ Leggja stöðvunarkröfu á framkæmdir við Hvammsvirkjun Lögreglan leitar upplýsinga um þennan mann Sjá meira