Leik lokið: Víkingur-FH 1-4 | Eintóm hamingja hjá FH-konum í Víkinni Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 7. júní 2025 15:50 FH-konur skoruðu fjögur mörk í Víkinni í dag. Vísir/Guðmundur Þórlaugarson FH náði Þrótti og Blikum að stigum á toppi Bestu deildar kvenna í fótbolta með góðum 4-1 útisigri á Víkingum á heimavelli hamingjunnar í dag. FH-konur hafa unnið sex af átta leikjum sínum á tímabilinu og er í frábærum málum en ekki er hægt að segja það sama um Víkingsliðið sem hefur aðeins unnið einn af átta leikjum sínum og situr í næstnesta sæti deildarinnar. Deja Sandoval og Thelma Karen Pálmadóttir skoruðu fyrst mörk FH-liðsins á fyrsta hálftíma leiksins. Elísa Lana Sigurjónsdóttir kom FH í 3-0 en hin unga Arna Ísold Stefánsdóttir minnkaði muninn í lokin. Thelma Karen átti lokaorðið með sínu öðru marki. Frekari umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi á eftir. Besta deild kvenna Víkingur Reykjavík FH