Víkingur Reykjavík

Víkingur Reykjavík

Fréttir af Knattspyrnufélaginu Víkingi í Reykjavík.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Upp­gjörið: Víkingur-ÍA 2-2 | Skaga­menn sóttu stig í Fossvoginn

Víkingur og ÍA gerðu 2-2 jafntefli á Víkingsvelli í 25. umferð Bestu deildar karla. Heimamenn komust í 2-0 með mörkum Valdimars Þórs Ingimundarsonar og Arons Elís Þrándarsonar en Skagamenn unnu sig inn í leikinn. Markús Páll Ellertsson minnkaði muninn fyrir hlé og sjálfsmark Olivers Ekroth í upphafi síðari hálfleiks tryggði ÍA stig.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Haukar halda sigur­göngunni á­fram

Haukar sitja enn á toppi Olís-deildar karla eftir að liðið vann sannfærandi sigur á Víkingum í kvöld, 38-29. Haukar hafa ekki enn stigið feilspor í deildinni og byrja deildina sterkt.

Handbolti
Fréttamynd

Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi

Valur er enn á lífi í Bestu deild kvenna eftir að hafa gert 1-1 jafntefli við Víkinga sem eru einnig í harðri fallbaráttu. Taugatrekkjandi síðari hálfleikur sem einkenndist af fáum markverðum atvikum tryggði það að liðin skyldu jöfn sem þýðir að þrjú lið, Valur, Víkingur og Þór/KA, munu berjast um síðasta örugga sætið í Bestu deildinni næsta föstudag.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Skotið á Aron sem sér ekki eftir neinu

Aron Sigurðarson, fyrirliði KR, sér ekki eftir því að hafa talað digurbarkalega nú þegar að Víkingur Reykjavík hefur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn. Framherji Víkinga skaut á Aron á samfélagsmiðlum eftir að titillinn var í höfn.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Skolað í burtu úr Vestur­bæ en skáluðu hjá Audda Blö

Víkingar geta fagnað því í alla nótt og næstu vikurnar að hafa afrekað að verja Íslandsmeistaratitil karla í fótbolta, fyrstir liða í átta ár. Sprautað var á þá á Meistaravöllum en leikmenn sáu svo sjálfir um að vökva sig inni í búningsklefa og í Fossvoginum í kvöld.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Stór dagur fyrir Otte­sen fjöl­skylduna

„Þetta er titill undir,“ segir Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, um leik dagsins við KR í Bestu deild karla. Víkingur verður Íslandsmeistari með sigri. Sonur Sölva á þá fyrir höndum úrslitaleik á Laugardalsvelli.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Ég ýtti bara að­eins við honum“

Oliver Ekroth, fyrirliði Víkings, segir atvik líkt og það sem varð milli hans og Arons Sigurðarsonar, fyrirliða KR, í síðasta leik liðanna vera hluti af leiknum. Liðin mætast aftur í dag og Víkingur verður meistari með sigri.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Hinna klúbbanna á Ís­landi að elta þá“

„Þetta er það besta sem ég hef séð til þeirra í dálítið langan tíma,“ sagði Bjarni Guðjónsson um 4-1 sigur Víkings á Keflavík í Bestu deild karla. Víkingur stefnir hraðbyri að Íslandsmeistaratitlinum og félagið fær mikið hrós vegna umgjarðar.

Íslenski boltinn