FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Aron Guðmundsson skrifar 9. október 2026 21:11 Ómar Darri Sigurgeirsson var með markahæstu mönnum leiksins gegn Fram í kvöld. vísir/Diego Olís deildar lið Fram og KA eru úr leik í Powerade bikarnum í handbolta eftir leiki kvöldsins í sextán liða úrslitum keppninnar. Framarar fengu á sig 46 mörk gegn FH.
Stóri leikur kvöldsins var án efa viðureign FH og Fram í Kaplakrika. Hafi menn búist við spennu reyndist það ekki raunin. FH-ingar, í blússandi sóknarham, skoruðu heil 46 mörk. Þegar að þú skorar 46 mörk í einum og sama leiknum þá er það rannsóknarmál ef þú tapar þeim leik. Svo fór að FH vann ellefu marka sigur 46-35. Fram er því úr leik á meðan að FH heldur áfram í átta liða úrslitin. Símon Michael Guðjónsson skoraði 11 mörk í liði FH í kvöld og Ómar Darri Sigurgeirsson tíu mörk. Jón Þórarinn Þorsteinsson átti fínan leik í marki liðsins og varði 15 skot. Gunnar Róbertsson hélt svo áfram að raða inn mörkum í liði Vals sem vann þægilegan útisigur á Selfyssingum. Lokatölur urðu 28-37 Valsmönnum í vil. Gunnar skoraði átta mörk. Í Fossvoginum gerði lið Víkings Reykjavíkur sér svo lítið fyrir og sló KA úr leik með sjö marka sigri, 35-28. Sigurður Páll Matthíasson skoraði átta mörk í liði Víkings í leiknum og þá var Jón Karl Einarsson með sex mörk. Fyrr í dag hafði svo lið ÍBV betur gegn ÍR í spennandi leik sem lauk að lokum með fjögurra marka sigri Eyjamanna, 26-30. Daníel Þór Ingason var markahæstur í liði ÍBV með átta mörk en Jökull Blöndal Björnsson fór mikinn í liði ÍR og skoraði níu mörk. Lið Hvíta-Riddarans stóðst síðan liði Gróttu ekki snúning. Piltarnir af Seltjarnarnesi voru með mikla yfirburði í leiknum og unnu að lokum 18 marka sigur, 22-40. 16-liða úrslitunum lýkur á laugardaginn eftir rúma viku þegar að ÍBV 2 tekur á móti liði Þórs frá Akureyri. Fyrir leiki dagsins hafði lið Hauka tryggt sér sæti í átta liða úrslitunum með sigri gegn Stjörnunni.
Powerade-bikarinn FH Fram Valur UMF Selfoss Grótta Víkingur Reykjavík KA ÍBV ÍR Handbolti Mest lesið Ronaldo í bann hjá Portúgal Fótbolti Viktor Gísli varð fárveikur á HM Handbolti Uppgjörið: Króatía - Ísland 0-4 | Systur á skotskónum í sannfærandi sigri Fótbolti 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Körfubolti Grindavík - KR | Íslandsmeistararnir hefja titilvörnina Körfubolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Leik lokið: Njarðvík - Tindastóll 77-85 | Vinna í deildum Evrópu og hér heima Fótbolti Arnar ætlar ekki að tjá sig og Laddar Liverpool-borgar eru í yfirvinnu Sport Reikna með Kane en vita ekki hvenær Körfubolti Bakgarðsáskorunin: „Éta eða vera étinn“ Sport Fleiri fréttir Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram Sjá meira