Leik lokið: Þróttur - Þór/KA 2-0 | Þróttur með þriggja stiga forskot á toppnum Hjörvar Ólafsson skrifar 7. júní 2025 18:52 María Eva Eyjólfsdóttir og Sandra María Jessen í leiknum í dag. Vísir/Guðmundur Þórlaugarson Þróttarar tylltu sér á topp Bestu-deildar kvenna í fótbolta með 2-0 sigri sínum gegn Þór/KA í leik liðanna í áttundu umferð deildarinnar á Avis-vellinum í Laugardalnum í kvöld. María Eva Eyjólfsdóttir kom Þrótti yfir þegar undir lok fyrri hálfleiks. Caroline Murray átti þá eina af fjölmörgu fyrirgjöfum sínum í leiknum. Jessica Grace Berlin greip í tómt og boltinn féll fyrir fætur Evu Maríu sem skoraði með skoti í autt markið af stuttu fæir. Eva María virtist leggja boltann fyrir sig með höndinni áður en hún skoraði en Hreinn Magnússon, dómari leiksins, dæmdi hins vegar markið gott og gilt. Freyja Karín Þorvarðardóttir tvöfaldaði svo forystu Þróttar í upphafi seinni hálfleiks. Freyja Karín slapp þá í gegnum vörn Þórs/KA vinstra megin og lét skotið ríða af. Skotið var nokkurn veginn beint á Jessicu Grace sem hefði klárlega átt að gera betur en boltinn endaði í netinu. Niðurstaðan 2-0 sigur Þróttar sem trónir á toppnum með þremur stigum meira en Breiðablik og FH. Þór/KA er síðan í fjórða sæti með 15 stig. Besta deild kvenna Þróttur Reykjavík Þór Akureyri KA