Íslenski boltinn

Blómstra á meðan Valskonur eru sögu­lega slakar

Aron Guðmundsson skrifar
Gengi Vals til þessa á tímabilinu hefur ekki verið upp á marga fiska. Þá hafa leikmenn sem voru í herbúðum liðsins á síðasta tímabili blómstrað hjá öðrum liðum.
Gengi Vals til þessa á tímabilinu hefur ekki verið upp á marga fiska. Þá hafa leikmenn sem voru í herbúðum liðsins á síðasta tímabili blómstrað hjá öðrum liðum. Vísir/Samsett mynd

Stigasöfnun Vals í Bestu deild kvenna eftir átta um­ferðir er sú versta í sögu liðsins í tíu liða efstu deild til þessa. Á sama tíma eru leikmenn sem voru á mála hjá liðinu á síðasta tímabili í góðum málum við topp deildarinnar í öðrum liðum.

Vals­konur gerðu 2-2 jafn­tefli gegn Tindastól á úti­velli í gær eftir að hafa komist marki yfir snemma leiks. Niður­staðan sér til þess að Valur situr nú í 5.sæti deildarinnar með níu stig og er tíu stigum á eftir topp­liði Þróttar Reykja­víkur sem á einnig leik til góða á Vals­konur.

„Leik­menn eru að upp­lifa stöðu inn á vellinum sem þeir hafa ekki verið að upp­lifa áður. Að vera í jöfnum leikjum og ná ekki að vinna,“ lét Kristján Guð­munds­son, einn af þjálfurum Vals hafa eftir sér í viðtali eftir leik í gær.

Með tólf stigum minna en á sama tíma í fyrra

Valur hefur aðeins sótt níu stig í fyrstu átta leikjum sínum til þessa í Bestu deildinni. Það er lakasta stigasöfnun liðsins eftir þetta marga leiki í deildinni síðan árið 2001. Efsta deild var þá skipuð átta liðum en síðan árið 2008 hefur deildin verið skipuð tíu liðum.

Frá því að efsta deild varð tíu liða deild hefur Valur aldrei verið með eins fá stig eftir átta um­ferðir eins og í ár en á sama tíma í fyrra sat liðið í 2.sæti deildarinnar með 21 stig, tólf stigum meira en liðið er með á sama tíma í ár. 

Síðasti sigur­leikur Vals í deildinni til þessa kom í þriðju um­ferð. Liðið hefur nú ekki unnið leik í síðustu fimm um­ferðum Bestu deildarinnar, tapað þremur en nú gert tvö jafn­tefli í röð.

Stigasöfnun Vals eftir átta umferðir frá því að efsta deild varð tíu liða deild:

2025: 9 stig

2024: 21 stig

2023: 19 stig

2022: 19 stig

2021: 17 stig

2020: 19 stig

2019: 22 stig

2018: 19 stig

2017: 15 stig

2016: 17 stig

2015: 12 stig

2014: 14 stig

2013: 14 stig

2012: 13 stig

2011: 22 stig

2010: 20 stig

2009: 19 stig

2008: 24 stig

Af átta leikjum sínum í Bestu deildinni til þessa hefur Vals­liðið aðeins unnið tvo, gert þrjú jafn­tefli og tapað þremur leikjum. Til samanburðar tapaði liðið aðeins einum leik fyrir skiptingu deildarinnar í fyrra eftir átján umferðir. 

Brös­ótt byrjun hjá þjálfurum liðsins þeim Matt­híasi Guð­munds­syni og Kristjáni Guð­munds­syni sem tóku við stjórnar­taumum liðsins á Hlíðar­enda fyrir tíma­bilið en góðu fréttirnar þær að enn á eftir að spila marga leiki í Bestu deildinni áður en að tímabilinu lýkur.

Losuðu sig við leik­menn sem blómstra

Um­ræðan í kringum kvenna­lið Vals hefur verið súr það sem af er tíma­bili. Spila­mennska liðsins hefur verið gagn­rýnd sem og nálgun stjórnar Vals varðandi það hvernig haldið hefur verið á spilunum og ákvarðanir í leik­manna­málum vekja upp spurningar.

Samningi fram­herjans Berg­lindi Björgu Þor­valds­dóttur sem sneri aftur á fót­bolta­völlinn eftir barns­burð síðasta sumar og samdi við Val, var sagt upp sím­leiðis eftir síðasta tíma­bil.

Berg­lind er nú leik­maður Breiða­bliks og er marka­hæsti leik­maður deildarinnar til þessa með sjö mörk í sjö leikjum. Tvö þeirra marka komu í 4-0 sigri Breiðabliks á Val á dögunum.

Þá missti Valur frá sér einn öflugasta leik­mann deildarinnar undan­farin ár, miðju­manninn Kati­e Cousins sem samdi við Þrótt Reykja­vík og hefur þar leikið stórt hlut­verk í frábærri byrjun liðsins en Þróttur er sem stendur á toppi Bestu deildarinnar.

Í sam­tali við íþrótta­deild á sínum tíma sagði Kati­e frá því að hún hafi ekki verið í framtíðarplönum Vals­liðsins á Hlíðar­enda

„Á endanum sáu þeir mig ekki sem hluta af sínum framtíðarplönum. Það er í lagi mín vegna enda þeirra að ákveða.“

Hvort að of háar launakröfur eða annað spilar inn í skal látið ósagt en eins og sakir standa núna virðist Valur hafa misst þarna frá sér tvo leiðandi leikmenn í deildinni.

Engu að síður sterkur hópur

Sterkir bitar yfirgáfu herbúðir Vals eftir síðasta tímabil. Þessar tvær sem tæpt hefur verið á en síðan var einn besti markvörður Bestu deildarinnar undanfarin ár, landsliðsmarkvörðurinn Fanney Inga Birkisdóttir, keypt á metfé af Hacken í Svíþjóð. 

Fanney Inga Birkisdóttir með góð tilþrif í marki Valskvenna á sínum tíma.Vísir/Anton Brink

Þá gekk Ísabella Sara Tryggvadóttir í raðir Svíþjóðarmeistara Rosengard og Hailey Whitaker sem spilaði í öllum leikjum liðsins í Bestu deildinni á síðasta tímabili hvarf á braut. 

Gæðin í núverandi liði Vals eru hins vegar það mikil að liðið ætti að vera komið með fleiri stig en raunin er.

Berglind Rós Ágústsdóttir er sem fyrr á miðjunni, leikmaður með yfir 100 leiki í efstu deild sem og A-landsleiki. Annar leikmaður með yfir fimmtíu leiki fyrir land og þjóð, Elísa Viðarsdóttir, er sem fyrr hjá Val sem og landsliðskonan Natasha Moraa Anasi sem er einnig að finna í vörn liðsins.

Elísa Viðarsdóttir fyrirliði Vals.Vísir/Anton Brink

Fyrir tímabilið var fengin inn framherjinn Jordyn Rhodes sem skoraði heil þrettán mörk á síðasta tímabili með liði Tindastóls en hefur ekki komist á flug hvað markaskorun varðar í ár hjá Val. Landsliðskonan Fanndís Friðriksdóttir er sem fyrr hjá Val og er þessi listi af gæðamiklum leikmönnum ekki tæmandi. 

Valur mætir Fram í Reykjavíkurslag á N1-vellinum eftir rúma viku í 9.umferð Bestu deildar kvenna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×