Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Sindri Sverrisson skrifar 13. október 2026 21:03 Rúnar Páll Sigmundsson kannast vel við sig í Garðabænum. Vísir/Baldur Rúnar Páll Sigmundsson hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs Stjörnunnar í fótbolta á nýjan leik. Hann gerði liðið að Íslandsmeistara og bikarmeistara í fyrsta sinn síðast þegar hann stýrði liðinu.
Rúnar Páll snýr aftur í Garðabæinn eftir að hafa síðast stýrt Gróttu og þar áður Fylki. Hann var þjálfari Stjörnunnar á árunum 2014-2021 og tókst þá á fyrsta tímabilinu að gera liðið að Íslandsmeistara og það án þess að tapa einum einasta leik auk þess að leiða liðið í eftirminnilegt Evrópuævintýri sem lauk með leik við stórlið Inter á San Siro. „Rúnar Páll á stóran þátt í nokkrum af stoltustu stundum í sögu félagsins. Nú snýr hann aftur til uppeldisfélags síns og við horfum með tilhlökkun og metnaði til næsta kafla. Innan knattspyrnudeildarinnar er mikill metnaður fyrir því að koma Stjörnunni aftur í fremstu röð íslenskrar knattspyrnu og berjast um titla. Jafnframt viljum við endurvekja þá einstöku stemningu sem hefur áður sameinað bæinn og efla samstöðuna sem býr í samfélaginu okkar í Garðabæ. Við vitum hvað er hægt þegar leikmenn, þjálfarar, starfsfólk og stuðningsfólk leggjast á eitt. Við höfum upplifað það saman og við ætlum okkur að skapa fleiri slíkar stundir,“ segir í tilkynningu Stjörnunnar. Tíð þjálfaraskipti á tímabilinu Stjörnumenn eiga eftir tvo leiki af Bestu deildinni en þeir sækja Þór heim á Akureyri á laugardaginn og mæta svo Val á heimavelli í lokaumferðinni. Þeir sitja sem stendur í 8. sæti. Hákon Ernir Haraldsson, Brynjar Kristmundsson og Olgeir Sigurgeirsson hafa stýrt Stjörnunni tímabundið í síðustu leikjum eða frá því að Jón Þór Hauksson var rekinn 20. ágúst. Jón Þór hafði tekið við af Jökli Elísabetarsyni sem var rekinn 12. júní.
Besta deild karla Stjarnan Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira