„Ætlarðu að halda í hugmyndafræðina eða reyna að ná í úrslit?“ FH tapaði fyrir KR í 4. umferð Bestu-deildar karla í gærkvöld og fór leikurinn 4-2. KR-ingar skoruðu fjögur mörk á FH-liðið í fyrri hálfleik. Fimleikafélagið er aðeins með eitt stig eftir fjóra leiki og er útlitið dökkt hjá félaginu. Þeir Baldur Sigurðsson og Bjarni Guðjónsson fóru yfir leik liðsins í Stúkunni á Sýn Sport í gær. Sport 28.4.2026 15:30
Gerði umdeilda skiptingu: „100 prósent pirraður og ég skil hann vel“ Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, býst við því að Kristján Snær Frostason, leikmaður liðsins, sé ósáttur við að hafa verið skipt af velli, eftir að hafa áður komið inn af bekknum í 4-2 tapi fyrir KR í gær. Íslenski boltinn 28.4.2026 09:31
Sjáðu öll 26 mörkin úr Bestu deildinni í gær Mörkum rigndi í regnvotu veðri í fjórðu umferð Bestu deildar karla í fótbolta í gær. Alls voru 26 mörk skoruð í fimm leikjum er fjórða umferð deildarinnar kláraðist. Íslenski boltinn 28.4.2026 08:31
FH spilaði í blárri Henson treyju: „Við vildum ekki fara bara í einhvern lit“ Íslenski boltinn 27.4.2026 22:04
„Einvígið fer ekki á einum manni“ Björgvin Páll Gústavsson, markvörður Vals, var sáttur með sigur í fyrsta leik gegn FH í einvígi liðanna um Íslandsmeistaratitilinn. Lokatölur 37-33 í N1-höllinni. Handbolti 24. apríl 2026 22:08
„Að tala sig inn á þessa niðurstöðu finnst mér ótrúlegt“ „Nú er ég búinn að fá að sjá þetta í sjónvarpi og í fyrsta lagi er þetta ekki rautt spjald og að þeir hafi notað fjórar mínútur í að tala sig inn á þessa niðurstöðu finnst mér ótrúlegt,“ sagði Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, um vendipunkt í fyrsta leik Vals og FH í einvígi liðanna um Íslandsmeistaratitilinn. Lauk leiknum með sigri Vals, 37-33. Handbolti 24. apríl 2026 21:51
„Langt síðan að við vorum með svona marga uppalda“ Ágúst Jóhannsson segir Valsliðið sem hann þjálfar vera líkt FH að mörgu leyti og býst við æsispennandi úrslitaeinvígi milli liðanna í Olís deildinni í handbolta. Handbolti 24. apríl 2026 16:16
Úrslitaeinvígið hefst í kvöld: „Verið mikill rússíbani“ Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, á von á hörku úrsliteinvígi á móti Val í Olís deild karla í handbolta sem hefst í kvöld. Hann vonar að hátt upp í 1500 FH-ingar geri sér ferð á Hlíðarenda í kvöld á fyrsta leik liðanna. Handbolti 24. apríl 2026 11:02
Besta-spá kvenna 2026: Baráttan um þann stóra Íþróttadeild Vísis og Sýnar spáir því að Stjarnan, FH og Breiðablik verði í toppbaráttunni í Bestu deildar kvenna í sumar. Íslenski boltinn 24. apríl 2026 10:01
„Þetta einvígi mun ráðast á þeim“ Á morgun hefst úrslitaeinvígi Vals og FH um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta og gamla brýnið Björgvin Páll Gústavsson segir ungu leikmennina eiga eftir að ráða úrslitum. Handbolti 23. apríl 2026 23:32
„Ágætis próf fyrir okkur að fá svona rassskellingu“ FH tapaði 3-0 gegn Val í þriðju umferð Bestu deildar karla í kvöld. Liðið fékk öll þrjú mörkin á sig í fyrri hálfleik eftir afar dapra frammistöðu. Íslenski boltinn 23. apríl 2026 22:13
Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Valsmenn gengu frá FH-ingum í fyrri Valur tyllti sér í þriðja sæti Bestu deildar karla með því að vinna öruggan sigur á FH, 3:0, í þriðju umferð deildarinnar á N1 vellinum á Hlíðarenda í kvöld. Öll þrjú mörkin komu í fyrri hálfleik og er Valur nú með sex stig. FH er í 11. og næstneðsta sæti með aðeins eitt stig. Íslenski boltinn 23. apríl 2026 18:32
Óttast hraða Vals mest en býst við frábæru einvígi FH-ingurinn Ágúst Birgisson bíður spenntur eftir því að einvígið við Val hefjist, um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta. Fyrsti leikur er á Hlíðarenda annað kvöld. Handbolti 23. apríl 2026 15:32
Hituðu upp fyrir úrslitaeinvígið á bensínstöð Úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitilinn í Olís-deild karla í handbolta hefst á föstudagskvöldið kemur og af því tilefni efndi HSÍ í samstarfi við Olís til blaðamannafundar í dag. Handbolti 22. apríl 2026 10:33
Breiðabliki spáð titli en Val neðri helmingi Spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna í Bestu deild kvenna í fótbolta var opinberuð við hátíðlega athöfn í Kópavogi í dag. Breiðabliki er spáð titilvörn. Íslenski boltinn 21. apríl 2026 13:09
Sjáðu öll mörkin: Veisla í Vesturbænum, tvenna hjá Vuk og Gylfi í skotskónum Heil umferð fór fram í Bestu deild karla í gær og mörkin úr leikjunum sex má sjá hér fyrir neðan. Íslenski boltinn 18. apríl 2026 10:30
„Hefðum átt skilið stig úr þessum leik“ Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, var að mörgu leyti sáttur við spilamennsku sinna manna þrátt fyrir svekkjandi tap liðsins á móti Stjörnunni í annarri umferð Bestu-deildar karla í fótbolta í kvöld. Fótbolti 17. apríl 2026 23:08
Uppgjörið: Stjarnan - FH 3-2 | Andri Rúnar reyndist Stjörnunni gulls ígildi Stjarnan bar sigurorð af FH, 3-2, þegar liðin áttust við í annarri umferð Bestu-deildar karla í fótbolta á Samsung-vellinum í Garðbænum í kvöld. Andri Rúnar Bjarnason skoraði sigurmark Stjörnunnar í leiknum. Íslenski boltinn 17. apríl 2026 22:10
„Akkúrat núna þá gæti mér ekki verið meira sama“ FH sigraði Hauka 35-36 í æsispennandi leik á Ásvöllum í kvöld. Daníel Freyr Andrésson varði í tvígang á lokasekúndunum og tryggði FH sæti í úrslitunum. Sport 17. apríl 2026 21:11
Uppgjörið: Haukar-FH 35-36 | Nágrannarnir sendu Hauka í sumarfrí FH sigraði Hauka 35-36 og sópaði Haukum því í sumarfrí. FH eru komnir í úrslit í úrslitakeppninni eftir 3-1 sigur í einvíginu gegn nágrönnunum í Haukum. Handbolti 17. apríl 2026 18:16
„Ætla að klára þetta með stæl og vonandi landa þeim stóra“ Garðar Ingi Sindrason er að leika sína síðustu leiki fyrir FH, allavega í bili. Hann hefur samið við þýska úrvalsdeildarliðið Gummersbach og gengur í raðir þess í sumar. Handbolti 15. apríl 2026 09:31
„Auðvitað bara dugar þetta ekki“ Gunnar Magnússon, þjálfari Hauka, var niðurlútur eftir tap sinna manna gegn FH í þriðja leik liðanna í undanúrslitaeinvígi Olís-deildar karla í handbolta í kvöld, 27-23. Handbolti 14. apríl 2026 22:16
„Undirbúningur, hjartað og baráttan“ „Þetta var bara ótrúlega skemmtilegur leikur,“ sagði línumaðurinn Jón Bjarni Ólafsson, leikmaður FH, eftir sigur liðsins gegn Haukum í undanúrslitaeinvígi Olís-deildar karla í handbolta í kvöld. Handbolti 14. apríl 2026 22:02
„Ekki til betri skemmtun en þetta“ Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, segir að einbeiting liðsins hafi skilað FH-ingum sigri gegn Haukum í þriðja leik liðanna í undanúrslitaeinvígi Olís-deildar karla í handbolta í kvöld. Handbolti 14. apríl 2026 21:37
Uppgjörið: FH - Haukar 27-23 | FH-ingar einum sigri frá úrslitum FH-ingar eru einum sigri frá sæti í úrslitaeinvígi Olís-deildar karla í handbolta eftir nauman sigur gegn nágrönnum sínum í Haukum í kvöld, 27-23. Handbolti 14. apríl 2026 21:07