Fótbolti

Leikur Ís­lands og Brasilíu ekki í beinni á Stöð 2 Sport

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Það verður gaman að sjá ungu mennina okkar glíma við Brasilíu.
Það verður gaman að sjá ungu mennina okkar glíma við Brasilíu. vísir/anton

Áhugaverður leikur fer fram í Egyptalandi í kvöld er U21 árs lið Íslands spilar við Brasilíu. Leikurinn verður því miður ekki á dagskrá Stöðvar 2 Sports eins og áður var auglýst.

Um vináttulandsleik er að ræða en hann fer fram í Kaíró í Egyptalandi.

Nú síðdegis bárust Stöð 2 þær fréttir að hætt hefði verið við að framleiða leikinn. Hann verður því ekki sýndur neins staðar í heiminum.

Strákarnir mæta svo Kólumbíu á sama stað á sunnudag. Þetta er í fyrsta skipti sem Ísland mætir þessum þjóðum í þessum aldursflokki.

Fréttin var uppfærð klukkan 15.17 er skilaboðin bárust að utan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×