Byggjum raðhús í Hvalfjarðargöngum Matthías Arngrímsson skrifar 8. október 2024 08:31 Byggjum blokkir ofan í Sundahöfn. Setjum hraðahindrun í innsiglingu Reykjavíkurhafnar. Reisum stökkbretti í Kömbunum. Hljóma þessar tillögur skynsamlega? Nei auðvitað ekki. Það eru fleiri slæmar hugmyndir eins og t.d. þessar; Þrengjum að Reykjavíkurflugvelli með byggð í Nýja Skerjafirði og nýrri byggingu Háskólans í Reykjavík 90 metra frá brautarstefnu 13 og sleppum því að grisja tré í Öskjuhlíð. Er það skynsamlegt? Það á aldrei að gefa afslátt af flugöryggi og flugrekstraröryggi flugvalla á að vera í hámarki svo nýting innviða flugsamgangna sé sem best. Höfum líka í huga að byggingar má byggja næstum hvar sem er, en flugvellir þurfa ákveðið rými, veðurfarsskilyrði, landslag og góða staðsetningu svo þeir verði öruggir, góðir og gagnlegir í þjónustu við þjóðina. Skoðanakönnun Bylgjunnar á dögunum leiddi í ljós að 94% landsmanna vilja hafa Reykjavíkurflugvöll á sínum stað. Það þýðir 94% landsmanna eru ekki sátt við þá hugmynd að reisa flugvöll í Hvassahrauni og ekki sátt við neitt annað en að innviðaráðherra tryggi völlinn í sessi. Það er svo hlutverk ráðherra að tryggja innviði samgangna, efla og bæta. Færsla flugvallargirðingarinnar svo hægt sé að hefja framkvæmdir við byggingar í Nýja Skerjafirði gengur þvert gegn því markmiði að tryggja Reykjavíkurflugvöll sem öruggan flugvöll enda margvísleg gögn frá ábyrgum aðilum sem benda til að flugrekstraröryggi verði stórlega skert og að flugöryggi muni versna. Skv. lögum um loftferðir nr. 80 frá 2022 er ráðherra skylt að verja flugrekstraröryggi (og flugöryggi) á vellinum. Það er gert með því að láta girðinguna í friði og ef nauðsyn krefur taka landskikann eignarnámi fyrir Reykjavíkurflugvöll til að höggva á hnútinn í eitt skipti fyrir öll. Förum eftir lögum, sýnum ábyrgð og verum skynsöm. Í samkomulagi um rannsóknir á möguleikum á byggingu nýs flugvallar í Hvassahrauni frá 28. nóv. 2019, 5. gr. stendur: "Aðilar eru sammála um að tryggt verði rekstraröryggi á Reykjavíkurflugvelli á meðan undirbúningi og gerð nýs flugvallar stendur, þar með talið eðlilegt viðhald og endurnýjun mannvirkja í samræmi við ákvæði gildandi samgönguáætlunar Alþingis. Miðað verði við að Reykjavíkurflugvöllur geti áfram þjónað innanlandsflugi á fullnægjandi hátt þar til að nýr flugvöllur er tilbúinn til notkunar. Reykjavíkurborg lýsir yfir vilja sínum til þess að tryggja nauðsynlegar breytingar á aðalskipulagi Reykjavíkur í samræmi við 2. mgr. 5. gr. samkomulags þessa." Reykjavíkurborg hefur ekki enn breytt sínu skipulagi til að leggja Nýja Skerjafjörð á hilluna þó samkomulagið og lög um loftferðir kveði á um það. Miðað við umræður og skoðanir fagmanna í flugi, vísindamanna og stjórnmálamanna verður Hvassahraunsflugvöllur ekki að veruleika næstu áratugi. Það á því ekki að hreyfa við flugvallargirðingu Reykjavíkurflugvallar. Það á strax að byggja nýja flugstöð og leyfa endurbætur og uppbyggingu til hagsbóta fyrir flugrekstur í landinu svo sómi sé að og öll aðstaða fyrir landsmenn sé til fyrirmyndar. Stjórnmálamenn í öllum flokkum verða skilyrðislaust og tafarlaust að byggja pólitíska varnargarða um Reykjavíkurflugvöll fyrir hönd allra landsmanna þegar kemur að flugrekstraröryggi og flugöryggi. Að lokum er rétt að birta hér tímalínu nokkurra atburða í þessari sorgarsögu sem lokun brautar 06/24 á Reykjavíkurflugvelli var og óhætt að segja að þar hafi flugöryggi, flugrekstraröryggi, fagleg vinnubrögð og heiðarleiki fokið út í veður og vind. Eftir það var áfram ráðist á völlinn: 2002 - Stytting Norður-Suður (01/19) brautarinnar um 90 metra vegna fyrirhugaðrar færslu Hringbrautar til suðurs. 20. maí 2003 - Ákveðið að færa Hringbraut til suðurs. Maí 2006 - Færslu Hringbrautar lokið. 2012 - Gróf aðför að Fluggörðum þar sem flugskólum, miðstöð almannaflugsins, flugvélaverkstæðum og Hinu Íslenska flugsögufélagi var hótað að vera rekin burt bótalaust 2015. 2013 - Samtökin Hjartað í Vatnsmýri safna 69.791 undirskriftum fyrir áskorun til Reykjavíkurborgar og Alþingis þess efnis að öllum landsmönnum verði til framtíðar tryggð óskert flugstarfsemi í Vatnsmýri og stöðva lokun á braut 06/24. 2013 - Rifrildið um öryggisógn vegna trjágróðurs í Öskjuhlíð hefst. 2. desember 2014 - Endurskoðað deiliskipulag fyrir Hlíðarenda tekur gildi. 4. desember 2014 - Áhættumatsnefnd 9 sérfræðinga í flugmálum leyst upp eftir að áhættumatið kom út sem „Rautt“ og að lokun brautar 06/24 væri alveg óásættanleg. Nefndinni tilkynnt að verkfræðistofan EFLA hefði skilað inn betri niðurstöðu en hins vegar notað nýtt hugtak „Nothæfistími“ sem er ekki til hjá Alþjóðaflugmálastofnuninni, til að ná fram hentugri niðurstöðu. 4. júní 2015 - Samgöngustofa segir áhættumatið kalla á að það þurfi að gera sérstakt áhættumat á framkvæmd breytinganna og skoða fleiri atriði sem snerta áhrif lokunar brautar 06/24. 30. júní 2016 - Innanríkisráðherra felur Isavia að ganga frá lokun flugbrautar 06/24 þannig að „…framkvæmdin samræmist lögum og verklagi sem um lokunina gilda.“ 2. febrúar 2023 - Breytt Deiliskipulag Nýja Skerjafjarðar samþykkt þrátt fyrir mikil mótmæli íbúa Skerjafjarðar og flugsamfélagsins á Reykjavíkurflugvelli og skýrslu fagmanna sem sýnir fram á skert flugrekstraröryggi og flugöryggi. 25. janúar 2024 - Tilkynnt um nýtt Rannsóknahús HR áætlað við Menntasveig 4, alls 8.400 fermetrar. Hús nr. 2 allt að 12.900 fermetrum, yrði 90 metra frá miðlínu flugbrautar 13 og mun hærra en eðlilegt gæti talist svo nálægt flugbraut. Trén á tilteknu svæði í Öskjuhlíð hafa verið bitbein frá 2013 og þrátt fyrir tímafresti til trjáfellingar hefur Reykjavíkurborg ekki brugðist við sem skyldi, þó svo Lög um loftferðir nr. 80 frá 2022 kveði á um núgildandi skipulagsreglur flugvallarins: „sem fela í sér hæðartakmarkanir á hverskonar mannvirkjum og gróðri í nágrenni við Reykjavíkurflugvöll“. Höfundur er flugstjóri og flugkennari og nefndarmaður Öryggisnefndar FÍA. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Reykjavík Reykjavíkurflugvöllur Matthías Arngrímsson Fréttir af flugi Mest lesið Lögfræðingurinn sem gleymdi tilgangi laga Sigríður Svanborgardóttir Skoðun Breyta lífum til hins betra eða dvelja áfram í hýðum síns vetra? Tómas Ellert Tómasson Skoðun Þétting byggðar – nokkur mistök gjaldfella ekki stefnuna Samúel Torfi Pétursson Skoðun Munu Ísraelsmenn sprengja bifreið páfa í loft upp? Einar Baldvin Árnason Skoðun Stærð er ekki mæld í sentimetrum Sigmar Guðmundsson Skoðun Þegar ríkið fer á sjóinn Svanur Guðmundsson Skoðun Heilbrigðisráðherra og stjórn VIRK hafa brugðist okkur Eden Frost Kjartansbur Skoðun Hverjum þjónar nýsköpunin? Halldóra Mogensen Skoðun Áður en íslenskan leysist upp Gamithra Marga Skoðun Tími til umbóta í byggingareftirliti Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Skoðun Skoðun Hagnaðurinn sem við afsölum okkur: Af hverju salan á Íslandsbanka er samfélagslegt glapræði Karl Héðinn Kristjánsson skrifar Skoðun Íþróttir eru lykilinn Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Framtíð safna í ferðaþjónustu Guðrún D. Whitehead skrifar Skoðun Munu Ísraelsmenn sprengja bifreið páfa í loft upp? Einar Baldvin Árnason skrifar Skoðun Að skapa framtíð úr fortíð Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar Skoðun Tími til umbóta í byggingareftirliti Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Stærð er ekki mæld í sentimetrum Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Áður en íslenskan leysist upp Gamithra Marga skrifar Skoðun Lögfræðingurinn sem gleymdi tilgangi laga Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Þétting byggðar – nokkur mistök gjaldfella ekki stefnuna Samúel Torfi Pétursson skrifar Skoðun Breyta lífum til hins betra eða dvelja áfram í hýðum síns vetra? Tómas Ellert Tómasson skrifar Skoðun Hverjum þjónar nýsköpunin? Halldóra Mogensen skrifar Skoðun Heilbrigðisráðherra og stjórn VIRK hafa brugðist okkur Eden Frost Kjartansbur skrifar Skoðun Þegar ríkið fer á sjóinn Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Íbúðarhúsnæði sem heimili fólks Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Íslenskumælandi hjúkrunarfræðingar Guðbjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigðisstarfsfólk eru ekki skotmörk Elísabet Herdísar Brynjarsdóttir,Hildur Harðardóttir,Tryggvi Egilsson,Sunna Snædal,Yousef Tamimi,Örvar Gunnarsson skrifar Skoðun Leiðrétting veiðigjalda og varðstaðan um sérhagsmuni Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Þjóðminjasafn án fornleifafræðinga Snædís Sunna Thorlacius,Ingibjörg Áskelsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til stjórnmálafólks um málefni Palestínu og Ísraels Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Í lífshættu eftir ofbeldi Jokka G Birnudóttir skrifar Skoðun Verið er að umbreyta borginni en hvað viljum við? Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir máli hvernig talað er um velferð dýra? Hallgerður Ljósynja Hauksdóttir skrifar Skoðun Gróður, einmanaleiki og samfélagsleg samheldni Auður Kjartansdóttir skrifar Skoðun Ljúkum því sem hafið er - ný bálstofa í Gufunesi Ingvar Stefánsson skrifar Skoðun Raddir fanga Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Kann Jón Steindór ekki að reikna? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Lífið sem var – á Gaza Israa Saed,Katrín Harðardóttir skrifar Skoðun Vöxtur inn á við og blönduð borgarbyggð er málið Ásdís Hlökk Theodórsdóttir skrifar Skoðun Tilskipanafyllerí Trumps Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hagnaðurinn sem við afsölum okkur: Af hverju salan á Íslandsbanka er samfélagslegt glapræði Karl Héðinn Kristjánsson skrifar
Skoðun Breyta lífum til hins betra eða dvelja áfram í hýðum síns vetra? Tómas Ellert Tómasson skrifar
Skoðun Heilbrigðisstarfsfólk eru ekki skotmörk Elísabet Herdísar Brynjarsdóttir,Hildur Harðardóttir,Tryggvi Egilsson,Sunna Snædal,Yousef Tamimi,Örvar Gunnarsson skrifar
Skoðun Hvers vegna skiptir máli hvernig talað er um velferð dýra? Hallgerður Ljósynja Hauksdóttir skrifar