Er sérstök hæfileikamótun í barna- og unglingaíþróttum góð hugmynd? Viðar Halldórsson skrifar 24. nóvember 2023 13:00 Hæfileikamótun (e. talent development) er nýja tískuorðið í íþróttunum. Hugtakið vísar til íþróttaþjálfunar sem leitast við að reyna að hámarka hugsanlegan árangur einstaklinga í íþróttum með sértækri og markvissri þjálfun og umönnun. Hæfileikamótun er mjúkt og aðlaðandi hugtak sem virðist í fyrstu benda til rökréttrar leiðar til að hjálpa ungum iðkendum íþrótta að bæta eigin frammistöðu og ná árangri. Enda heyrist nú víða talað um mikilvægi þess að auka hæfileikamótun ungs íþróttafólks hér á landi. En í hverju felst slík hæfileikamótun? Og er hún æskileg í barna- og unglingastarfi íþrótta? Hæfileikamótun í íþróttum Hæfileikamótun felur í sér að þeir iðkendur sem eru taldir hafa meiri hæfileika en aðrir á ákveðnu sviði íþrótta eru valdir í sérstaka afrekshópa þar sem eiginleikar þeirra eru fóstraðir umfram eiginleika annarra iðkenda sem síður komast í slíka hópa. Þeir sem veljast í slíka hópa fá markvissari og einstaklingsbundnari þjálfun og fræðslu umfram aðra iðkendur sem leiðir til aukinna tækifæra þeirra til að þróa hæfileika sína og ná frekari árangri í íþróttum. Slíkar aðferðir þekkjast víða erlendis en þeim hefur síður verið beitt hér á landi. Þær raddir sem tala fyrir aukinni hæfileikamótun gerast þó sífellt háværari. Slíkar aðferðir eru þó gagnrýniverðar. Sérstaklega þegar þeim er beitt á yngri iðkendur í íþróttum. Í fyrsta lagi, þá byggja hugmyndir um hæfileikamótun á þeirri forsendu að fáum iðkendum er hampað á kostnað fjöldans. Þátttaka í hæfileikamótun er eingöngu í boði fyrir lítinn hluta iðkenda sem veljast í sérstaka afreks- og úrtakshópa. Þannig felur hæfileikamótun í sér nokkurs konar stéttskiptingu í íþróttastarfinu þar sem lítill hópur iðkenda fær meiri tíma, þjónustu, og aðgengi að björgum til að ná lengra, heldur en mikill meirihluti iðkenda. En það skýtur skökku við að koma á slíkri stéttskiptingu í íþróttastarfi, eins og hér á landi, sem er að mestu haldið úti af sveitarfélögum á þeim forsendum að íþróttir séu mikilvægur uppeldisvettvangur fyrir allt ungt fólk, en ekki einungis fyrir fáa útvalda. Í öðru lagi þá er val í slíka afrekshópa hvorki gagnsætt né endilega réttmætt. Hæfileikar (e. talent) eru ekki föst breyta. Það er misjafnt hvað fólk telur til hæfileika frá einum stað til annars, sem og frá einum tíma til annars. Í boltaíþróttum er til að mynda stundum lögð megináhersla á líkamlegan styrk, en á öðrum tímum á hlaupagetu, leikskilning, eða tiltekna tæknilega færni. Hæfileikar einstaklinga þurfa því að rýma við hugmyndir skipuleggjenda um hvað er talið til hæfileika hverju sinni. Því er sumum hampað en öðrum mismunað útfrá því hvaða forsendur eru fyrir matinu í það og það skiptið. Forsendur slíks mats byggja því að hluta til á tilviljunum þar sem sumir iðkendur eru heppnir að þeirra eiginleikar eru taldir til sérstakra hæfileika, en aðrir ekki. Val í hópa á forsendum hæfileikamótunar virkar svo sem hvatning (e. motivation) fyrir þá sem þangað veljast, en hefur öfug áhrif á þá iðkendur sem ekki eru valdir (e. demotivation) - sem getur dregið úr metnaði þeirra og ýtt undir undir ótímabært brottfall úr íþróttum. Þannig fer slík tilhögun að ganga gegn upprunalegum tilgangi íþróttastarfs barna og ungmenna. Í þriðja lagi þá ræður þroskamunur (e. relative age affect), og aðstæðumunur einstaklinga (e. habitus), einnig miklu um hvaða iðkendur eru taldir hæfileikaríkir og hvaða iðkendur eru það ekki. Þeir iðkendur sem eru til að mynda bráðþroska eru mun líklegri til að vera taldir efnilegir í íþróttum og eru valdir í afrekshópa hæfileikamótunar en þeir sem eru seinni til þroska. Val í sérstaka afrekshópa á forsendum hæfileikamótunar er því fjarstæðukennt þar sem yngri iðkendur eru mislangt komnir í þroska og því ekki samanburðarhæfir að þessu leitinu. Enn fremur er fræðafólk á því að sú þekking sem þarf til að spá fyrir um hvaða börn og ungmenni munu ná langt í íþróttum á fullorðinsaldri, sé langt í frá viðunandi til að réttlæta slíka tilhögun. Bæði er reynt að velja of snemma í slíka hópa, og slíkt val er jafnan byggt á hæpnum, einhæfum og tilviljunarkenndum forsendum sem markast af líðandi stað og stund. Í fjórða lagi þá færir þróun til frekari hæfileikamótunar barna- og ungmenna í íþróttum, hugmyndafræði íþrótta frá leik til vinnu (e. the professionalization of play). Starf hæfileikamótunar og afrekshópa byggist á formfastara skipulagi, sem og alvörugefnari og árangursmiðaðri nálgun. Það felur í sér umtalsverða skerðingu leiks og frjálsræðis í frístundastarfi barna og ungmenna – þátta sem rannsóknir sýna að eru mikilvægir fyrir fjölbreyttan þroska og áhugahvöt barna og ungmenna. Að taka leikinn úr leiknum með þessum hætti grefur undan því einstaka og verðmæta skipulagi sem hefur ríkt í íþróttum barna- og ungmenna á Íslandi – og hefur verið ein helsta forsenda þess árangurs sem Ísland hefur náð á alþjóðasviði í íþrótta og vakið heimsathygli. Hæfileikamótun barna og ungmenna er ekki góð hugmynd Íslenskt Ólympíugull, eða Íslandsmeistaratitill eru verðlaun sem eru of dýru verði keypt ef fórnarkostnaður þeirra er að afreksvæða íþróttir þeirra yngri. Auknar áherslur á hæfileikamótun barna og unglinga, eru skref í átt til frekari afreksvæðingar, sérhæfingar og stéttskiptingar. Það er ekki hægt að líta svo á að hæfileikamótun sé eingöngu viðbót við starfið eins og það er, heldur leiðir aukin hæfileikamótum til breytinga á forsendum barna- og unglingastarfs íþrótta. Þó að það sé mikilvægt að bæta og styrkja umgjörð metnaðarfulls og hæfileikaríks íþróttafólks sem hefur náð til þess þroska (frá ca. 15-16 ára aldri), til að mynda með frekari afreksáherslum og hæfileikamótun eldri iðkenda, þá er varasamt ef slíkar áherslur fara að snúa að þeim sem yngri eru, líkt og er að færast í vöxt hér á landi. Sérstök hæfileikamótun í íþróttum barna og ungmenna er því ekki góð hugmynd. Við ættum mun frekar að leggja fjármagn og vinnu í að auka og styrkja almenna íþróttaþátttöku ungs fólks og bæta íþróttaupplifun þess. Sérstaklega er þörf á að virkja hópa til þátttöku sem síður iðka íþróttir, eins og innflytjendur og þá sem glíma við fötlun – svo dæmi séu tekin. Í þeim hópum liggur mikilvægur auður fyrir íþróttahreyfinguna og samfélagið allt. Fjöldinn í íþróttastarfinu er sérstaklega mikilvægur fyrir smáþjóð eins og Ísland sem hefur ekki efni á því að horfa fram hjá þeim sem eru seinþroska og/eða þykja síður „efnileg“ eða „hæfileikarík“ í íþróttum á yngri árum. Því fleiri og fjölbreyttari iðkendur sem stunda gott og heilbrigt íþróttastarf, því meiri eru möguleikarnir fyrir Ísland á að ná árangri í íþróttum. Það þarf að stækka og styrkja grunnviðina með fjöldann að vopni, frekar en að starfið þróist í að takmarka áherslur við fáa útvalda í meiri mæli. Þannig á smáþjóð eins og Ísland meiri möguleika á að vera með á stóra sviði íþróttanna í náinni framtíð. Það er leiðin sem hentar íslensku samfélagi. Höfundur er prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands og höfundur bókarinnar Sport in Iceland: How small nations achieve international success. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Íþróttir barna Börn og uppeldi Viðar Halldórsson Mest lesið Hver kenndi Viðskiptaráði að rýna í gögn og tölur? Ragnheiður Stephensen Skoðun Tangarhald á lífæð samfélagsins Björn Brynjúlfur Björnsson Skoðun Er ekki best að tala bara íslensku um ESB og matvælaverð? Trausti Hjálmarsson Skoðun Leyfið okkur að velja framtíð okkar Kristrún Ágústsdóttir Skoðun Að gera upp á milli barna Ingólfur Sverrisson Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson Skoðun Enginn kemst langt með skóflu eina að vopni Martha Árnadóttir Skoðun Þegar fjarlægðin hættir að standa í vegi fyrir heilsu kvenna Helga Dagný Sigurjónsdóttir Skoðun Skammsýni á tímum tæknibyltingar, erum við að missa af framtíðinni? Sævar Þór Jónsson Skoðun Gervigreind mun ekki skipta út leiðtogum. Hún mun afhjúpa þá Gísli Rafn Ólafsson Skoðun Skoðun Skoðun Enn um Plastbarkamálið Ingólfur Bruun skrifar Skoðun Við unnum stóra vinninginn Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Við erum öll í sama liðinu Jónas Hagan Guðmundsson skrifar Skoðun Látið Ljósleiðarann vera! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Noregur verður hluti af kjarnorkuvernd Frakka Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Það sem mun sökkva okkur Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ef Ísland sækir um „djobbið“ Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Tangarhald á lífæð samfélagsins Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Leyfið okkur að velja framtíð okkar Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Nokkur atriði varðandi mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Hver kenndi Viðskiptaráði að rýna í gögn og tölur? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Gervigreind mun ekki skipta út leiðtogum. Hún mun afhjúpa þá Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson skrifar Skoðun Þegar fjarlægðin hættir að standa í vegi fyrir heilsu kvenna Helga Dagný Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Enginn kemst langt með skóflu eina að vopni Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Skammsýni á tímum tæknibyltingar, erum við að missa af framtíðinni? Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Að gera upp á milli barna Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hólar í Hjaltadal á uppboð Jón Bjarnason skrifar Skoðun Er ekki best að tala bara íslensku um ESB og matvælaverð? Trausti Hjálmarsson skrifar Skoðun Lausnin sem leysir ekkert Jóhann Skagfjörð Magnússon skrifar Skoðun Vestmannaeyjabær, þar sem þögn er þegjandi samkomulag Linda Rós Sigurdardóttir skrifar Skoðun Starfsfólkið er öflugasta varnarlínan Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Þegar samkennd og tortryggni lifa hlið við hlið á netinu Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Geðheilbrigðisþjónusta óháð efnahag? Steinunn Bragadóttir skrifar Skoðun Um skipulag bæja Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun 790.000 veikindadagar á ári Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Er skóli þíns barns á listanum ? Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Kolbrún Áslaug Baldursdóttir, Þorgerður Katrín, o.fl.: Popúlismi og skautun í íslenskum stjórnmálum Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Fagmennska sem skiptir máli Bryndís Einarsdóttir skrifar Skoðun Að kannast ekki við ábyrgð sína Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Nokkur atriði varðandi mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar
Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson skrifar
Skoðun Þegar fjarlægðin hættir að standa í vegi fyrir heilsu kvenna Helga Dagný Sigurjónsdóttir skrifar
Skoðun Skammsýni á tímum tæknibyltingar, erum við að missa af framtíðinni? Sævar Þór Jónsson skrifar
Skoðun Kolbrún Áslaug Baldursdóttir, Þorgerður Katrín, o.fl.: Popúlismi og skautun í íslenskum stjórnmálum Hjörvar Sigurðsson skrifar