Þegar fjarlægðin hættir að standa í vegi fyrir heilsu kvenna Helga Dagný Sigurjónsdóttir skrifar 29. maí 2026 06:32 Ég hef lært ótrúlega mikið af konum sem ég hef verið samferða, spjallað við og kynnst í gegnum lífið. Þessi samtöl eru svo dýrmæt því þau geta bæði eflt heilsu okkar og aukið skilning okkar á því hvað það þýðir að vera kona. Ég eins og margar aðrar konur, þekki konur sem hafa farið í gegnum hin ýmsu skeið lífsins á hörkunni og hugsað með sér að þetta sé bara hluti af því að vera kona. Konur sem hafa þurft að berjast lengi fyrir því að fá svör. Konur sem hafa fundið að eitthvað sé ekki eins og það á að vera en sannfært sjálfan sig um að þetta sé líklega bara hluti af lífinu og því að vera kona. Það er eitthvað sem við megum ekki venjast. Sem dæmi er talið að ein af hverjum tíu konum á barneignaraldri sé með endómetríósu. Fjölmargar konur ganga einnig í gegnum breytingaskeið með einkenni sem geta haft áhrif á líðan, svefn, sjálfsmynd og daglegt líf árum saman. Þetta eru ekki jaðarmál. Þetta er raunveruleiki stórs hóps kvenna. Samt upplifa margar að leiðin að samtalinu og þjónustunni sé löng. Ekki bara vegna biðlista heldur líka vegna fjarlægðar. Fyrir konur sem búa utan höfuðborgarsvæðisins getur það þýtt ferðalög, skipulag, kostnað og enn meiri bið eftir samtalinu sem þær þurfa á að halda. Samtalið er kjarni málsins Þar tel ég að tæknin geti skipt raunverulegu máli ef við grípum tækifærið í velferðarækni og færum samskiptin nær fólki. Því stór hluti kvenheilsu byrjar einmitt á samtali. Að einhver hlusti, spyrji, hjálpi konu til að átta sig á því hvað sé eðlilegt, hvað ekki og hvert næsta skref geti verið til að auka heilsu þeirra. Margar konur þurfa fyrst og fremst öruggt rými til að ræða breytingar í líkama sínum, líðan eða einkenni áður en kemur að frekari rannsóknum eða meðferð. Slík samtöl þurfa ekki alltaf að eiga sér stað í sama herbergi eða á stofnun til að skipta máli. Reynsla annarra þjóða sýnir að fjarheilbrigðisþjónusta getur hentað sérstaklega vel í mörgum þáttum sem tengjast kvenheilsu. Þar sem þjónustan byggir oft á ráðgjöf, eftirfylgni, stuðningi og reglulegum samskiptum getur tæknin hjálpað okkur að stytta vegalengdirnar - bæði bókstaflega og andlega. Fyrir konu á landsbyggðinni getur það skipt gríðarlegu máli að geta rætt við sérfræðing án þess að þurfa alltaf að ferðast langar leiðir. Fyrir konu á breytingaskeiði getur það skipt máli að fá eftirfylgni fyrr. Fyrir konu með langvinn einkenni getur það skipt máli að finna að einhver fylgist með og hlusti. Tæknin þarf samt að taka mið af konum En tæknin ein og sér er aldrei lausnin. Við verðum að passa að þróunin taki raunverulega mið af reynslu kvenna. Einkenni geta birst mismunandi og upplifun kvenna er fjölbreytt. Það sem virkar fyrir eina konu virkar ekki endilega fyrir aðra. Þess vegna finnst mér svo mikilvægt að hlusta. Hlusta á konur sem segja frá sinni reynslu. Hvað hjálpaði, hvað vantaði, hvar fundu þær stuðning og hvar þær upplifðu að ekki væri pláss fyrir þeirra sögu. Því með að hlusta og læra af reynslu annarra verða bestu lausnirnar til. Reynslan vísar veginn Þetta er hluti af því sem við hjá Ósum og Icepharma viljum gera með Kvenheilsudeginum 28. maí. Við viljum skapa vettvang fyrir reynslu kvenna. Á kvenheilsudagurinn.is geta konur deilt sinni upplifun, sinni sögu og haldið samtalinu áfram, samtali sem getur hjálpað okkur að bæta þjónustu, stuðning og skilning á heilsu kvenna á Íslandi. Ég trúi því nefnilega að við lærum mest af hver af annarri. Og ég trúi því líka að þegar við hlustum raunverulega á reynslu kvenna getum við styrkt kvenheilsu á Íslandi og byggt þjónustu sem er bæði mannlegri, aðgengilegri og sterkari til framtíðar. Höfundur er hjúkrunarfræðingur og framkvæmdastjóri Icepharma Velferðar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kvenheilsa Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar