Um skipulag bæja Þórður Már Sigfússon skrifar 28. maí 2026 13:01 Skipulagsmál móta daglegt líf okkar allra og í flóknu umhverfi samtímans hefur mikilvægi vandaðrar skipulagsvinnu aukist verulega. Hlutverk skipulagsfræðinga er að samræma ólík sjónarmið og stuðla að sjálfbærri framtíðarsýn. Þessi hugsun á sér djúpar rætur eða allt til spænska verkfræðingsins og skipulagsfræðingsins, Ildefons Cerdà, sem sýndi fram á að skipulag borga ætti fyrst og fremst að þjóna lýðheilsu, jöfnuði og vellíðan íbúa. Gott skipulag skapar einmitt þessi lífsgæði sem birtast í greiðari samgöngum, sterkara nærumhverfi og skilvirkara daglegu lífi. Á hinn bóginn leiða vanhugsaðar áætlanir til gæðarýrnunar í formi kostnaðarsamra umferðarteppa, ósamræmdrar uppbyggingar og samfélagslegra árekstra. Ólíkir hópar hafa mismunandi þarfir, væntingar og sýn á hvernig borgir og bæir eigi að þróast. Á stundum fagnar hjólreiðafólk breytingum á göturými, á meðan þeir sem reiða sig á einkabílinn upplifa skerðingu á sínum hagsmunum, og öfugt. Slíkir hagsmunaárekstrar eru eðlilegur hluti af þróun borgarsamfélagsins. Þetta er síður en svo nýtt fyrirbæri. Þegar Cerdà lagði fram hið metnaðarfulla Eixample-skipulag fyrir Barcelona árið 1859 mætti það harðri andstöðu, meðal annars frá fasteignaeigendum sem vildu hámarka nýtingu landsins. Niðurstaðan varð þéttari og umfangsmeiri uppbygging en Cerdà hafði sjálfur lagt upp með. Þar tókust á sjónarmið þeirra sem vildu hámarka arðsemi hvers fermetra og þeirra sem lögðu áherslu á loftgæði, birtu, græn svæði og lífvænlegra borgarumhverfi fyrir almenning. Sambærileg átök hafa fylgt borgarþróun í gegnum tíðina og munu án efa halda áfram að gera það. Verkefnið felst því ekki í að útrýma ágreiningi, heldur að finna farsælt jafnvægi milli ólíkra hagsmuna með langtímahagsmuni samfélagsins að leiðarljósi. Það er öllum ljóst að borgarskipulag er vandmeðfarið viðfangsefni, enda er þar verið að sýsla með nánasta umhverfi fólks og hversdagslíf þess. Það felst ákveðið öryggi í hinu þekkta umhverfi og þegar stendur til að breyta þeim ramma, örlítið jafnvel, stendur fólki eðlilega ekki á sama. Hlutverk skipulagsfræðinga er einmitt að mæta þessum áhyggjum, samræma ólík sjónarmið og stuðla að sjálfbærri framtíðarsýn. Í þessu hlutverki reynir á ríka fagmennsku enda um að ræða flókið púsluspil þar sem hagsmunir íbúa, umhverfissjónarmið og efnahagslegir innviðir verða að fara saman. Skipulagsfræðingar eru sérhæfðir brúarsmíðar í þessu ferli; þeir teikna ekki aðeins línur á uppdrætti heldur rýna í gögn, greina lýðfræðilega þróun og tryggja lýðræðislegt samráð svo raddir almennings fái notið sín. Þeir tryggja að vöxtur samfélagsins verði ekki á kostnað lífsgæða okkar, heldur grundvöllur þeirra. Höfundur er formaður skipulagsfræðingafélags Íslands (SFFÍ). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar