Skoðun

Öll börn eru hluti af liðinu

Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar

Flest okkar þekkja hvað íþróttir gefa börnum. Gleðina, vinatengslin, tilfinninguna að tilheyra liðinu og stoltið yfir því að öðlast nýja færni.

Við Íslendingar erum stolt af íþróttastarfinu okkar, og það með réttu. En ef við ætlum að segja að íslenskt íþróttastarf sé í fremstu röð verðum líka að spyrja: Fá öll börn raunverulega tækifæri að tilheyra liðinu? 

Þegar verkefnið Allir með fór af stað árið 2023 var staðan alvarleg. Af rúmlega 3.000 börnum með fötlun, 17 ára og yngri, voru aðeins 120 skráð sem iðkendur í skipulögðu íþróttastarfi. Það þýðir að aðeins 4% barna með fötlun voru skráð í íþróttastarf en til samanburðar stunda um 85% allra 10 ára barna íþrótt með félagi.

Frá 2023 hefur margt breyst. Sífellt fleiri íþróttafélög hafa opnað starf sitt fyrir börnum og ungmennum með ólíkar stuðningsþarfir og hefur skráningum því fjölgað úr 120 í yfir 300. Þátttökuhlutfall barna með fötlun í skipulögðu íþróttastarfi er því komið yfir 10%.

Það er árangur sem við megum vera stolt af. Þetta sýnir hversu miklum árangri er hægt að ná. Við getum gert enn betur.

Öll íþróttafélög þurfa ekki að hafa öll svörin frá fyrsta degi. Markmiðið er að við þorum að byrja. Að þjálfarar átti sig á því að þau hafa allt sem til þarf. Að félögin prófi sig áfram. Að foreldrar viti að dyrnar standi opnar og að börnin fái tækifæri til að finna þá íþrótt, þann hóp og það lið sem þau tilheyra.

Þetta snýst um vináttuna, sjálfstraustið, gleðina og þátttöku í samfélaginu. Það er ómetanlegt að fá að mæta á æfingu á þriðjudegi eins og allir hinir, og að klæðast treyju síns hverfisfélags.

Nú í haust ætlum við að gera þessi tækifæri sýnilegri. Vitundarvakning er farin af stað um allt land og laugardaginn 31. október fara Allir með leikarnir fram í Laugardalshöll. Þar geta börn og ungmenni með sérþarfir prófað fjölbreyttar íþróttir og kynnst því starfi sem þeim stendur til boða.

Við hvetjum fjölskyldur til að koma og prófa. Við hvetjum þjálfara og forsvarsmenn íþróttafélaga til að koma og kynna sér möguleikana. Og við hvetjum okkur öll til að skoða eigið hugarfar og leggja verkefninu lið.

Íþróttir eru fyrir alla. Öll börn eru hluti af liðinu.

Kynnið ykkur vitundarvakninguna á allirmed.is.

Höfundur er verkefnastjóri hjá Allir með, en það er samstarfsverkefni ÍSÍ, UMFÍ og ÍF.




Skoðun

Sjá meira


×