790.000 veikindadagar á ári Gunnlaugur Már Briem skrifar 28. maí 2026 12:47 Á hverjum vinnudegi má ætla að yfir 3.000 manns séu frá vinnu vegna stoðkerfiseinkenna hér á landi, séu erlendar rannsóknir heimfærðar á Ísland. Íslenskt samfélag á mikið undir því að sem flestir á vinnandi aldri geti verið virkir í atvinnuþátttöku og því er mikilvægt að beina sjónum að stoðkerfiseinkennum og efla og styrkja meðferðarúrræði við þeim. Veikindafjarvistir á íslenskum vinnumarkaði hafa gríðarleg áhrif á allt samfélagið bæði efnahagslega sem og ef horft er til velferðar þjóðar og einstaklinga. Tekjur tapast, framleiðni minnkar og kostnaður hins opinbera og atvinnulífsins eykst. Að ótöldum þeim mikilvæga þætti sem snýr að lífsgæðum einstaklinga og almennri lýðheilsu. Á Íslandi höfum við ekki nægjanlega öfluga og samræmda gagnasöfnun um veikindafjarvistir og ástæður þeirra. Þetta veldur því að stjórnvöld skortir upplýsingar til stefnumörkunar er varðar forgangsröðun og fjármögnun, auk þess sem umræða um málaflokkinn er oft á tíðum ófullnægjandi. Þar sem heildstæð gögn skortir hér á landi þá er eðlilegt að við skoðum og berum okkur saman við samanburðarhæf nágrannalönd. Nýlega var gerð greining í Danmörku er sneri að því að varpa ljósi á áætlað umfang og þau áhrif sem veikindafjarvistir vegna stoðkerfiseinkenna hafa á samfélagið. Ljóst er að vandamálið er af þeirri stærðargráðu að bæði stjórnvöld og vinnuveitendur þurfa að leita leiða til að lágmarka þessi áhrif. 790.000 veikindadagar vegna stoðkerfiseinkenna Þegar við berum okkur saman við niðurstöður þessara greininga frá Danmörku sem meta áhrif stoðkerfiseinkenna og setjum í íslenskt samhengi þá eru áhrifin uggvænleg og full ástæða til að staldra við og skoða alvarlega hvort og hvar við höfum tækifæri til að gera betur. Ef við gerum ráð fyrir að Ísland sé ekki frábrugðið Danmörku hvað veikindafjarvistir varðar þá megum við áætla að veikindadagar vegna stoðkerfiseinkenna á Íslandi séu um 790.000 á hverju ári. Þetta jafngildir því að um 3.100 einstaklingar séu frá vinnu á hverjum virkum vinnudegi vegna stoðkerfiseinkenna. Flestir þjást af mjóbaksverkjum og slitgigtartengdum einkennum. Fullvinnandi ársverk sem tapast væru áætluð á bilinu 1.400 – 1.500. Það jafngildir því að fjöldi á við alla íbúa í Stykkishólmi og nágrenni væru frá vinnu allt árið, að meðtöldum börnum, unglingum og öldruðum. Fjöldi einstaklinga frá vinnu og fjöldi veikindadaga segir þó bara hálfa söguna. Í umræddri greiningu frá Danmörku er áætlað að framleiðslutap fyrir samfélagið vegna stoðkerfiseinkenna geti numið 58 milljörðum danskra króna árlega. Yfirfært á íslenskar aðstæður, myndi kostnaðurinn vera a.m.k. 70 – 80 milljarðar á ári. Þess má geta að framlag ríkisins til starfsemi Landspítala nam um 110 milljörðum árið 2025. Þurfum að fá sem mesta heilsu fyrir hverja krónu Þegar kemur að skipulagi á heilbrigðisþjónustu þá þurfum við ávallt að leita leiða til að fá sem mest gæði, heilsu og færni úr hverri krónu sem veitt er í kerfið. Það gerum við með því að hafa traustar stoðir grunnþjónustu en einnig að byggja upp öfluga þjónustu er við kemur forvörnum og endurhæfingu á öllum stigum. Leita á allra leiða til að lágmarka þörf á dýrari þjónustuúrræðum s.s. innlögnum á hátæknisjúkrahús, lyfjanotkun, og aðgerðum nema önnur hagkvæmari úrræði dugi ekki til. Þjónusta sem veitt er þarf að hámarka færni og getu til þátttöku og aðstoða fólk við að komast aftur inn í samfélagið og til virkni og atvinnugetu. Til þess að slíkt gangi upp þarf að tryggja almenningi óháð efnahag öflugt aðgengi að sérfræðiþjónustu eins og þjónustu sjúkraþjálfara, sem eru lykilaðilar í greiningu og meðhöndlun stoðkerfiseinkenna innan íslenskrar heilbrigðisþjónustu. Vaxandi vandamál Samkvæmt greiningum er gert ráð fyrir að veikindadögum vegna stoðkerfiseinkenna muni fjölga verulega á komandi árum, eða sem nemur 36% fram til 2040. Það vekur verulegar áhyggjur þar sem biðlistar eftir þjónustu sjúkraþjálfara á Íslandi eru nú þegar verulegir, líkt og fjallað hefur verið um í fréttum, þar sem áætlað er að um 7.000 – 8.000 einstaklingar bíði eftir þjónustu eingöngu á stofum. Heilbrigðisþjónusta þarf ávallt að byggja á forgangsröðun en mikilvægt er þó að tryggja áfram aðgengi að þjónustu sem styður með beinum hætti við forvarnir og getu til atvinnuþátttöku. Við verðum að huga að aðgengi fyrir fólk áður en vandamálin verða alvarleg, en það mun styðja við það markmið að fækka veikindadögum auk þess að draga úr kostnaði vegna afleiddra áhrifa. Við þurfum ávallt að horfa til lífsgæða og verðmæti þess að vera við góða heilsu og geta tekið þátt í samfélaginu. Stoðkerfiseinkenni eru ekki aðeins heilbrigðisvandamál heldur eitt stærsta vinnumarkaðs- og velferðarmál samfélagsins. Ísland er lítið hagkerfi sem treystir á háa atvinnuþátttöku og öflugan mannauð sem er grundvöllurinn að verðmætasköpun þvert yfir atvinnulífið. Öflugar forvarnir, snemmtæk meðferð, markviss endurhæfing, gott aðgengi að þjónustu og sterk fjármögnun eru ekki útgjöld sem ber að fresta, heldur skynsamleg fjárfesting í virkni, verðmætasköpun og lífsgæðum Spurningin er því ekki hvort við höfum efni á að fjárfesta í þessum úrræðum, heldur hvort við höfum efni á að gera það ekki. Höfundur er formaður Félags sjúkraþjálfara. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnlaugur Már Briem Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar