Kolbrún Áslaug Baldursdóttir, Þorgerður Katrín, o.fl.: Popúlismi og skautun í íslenskum stjórnmálum Hjörvar Sigurðsson skrifar 28. maí 2026 11:30 Þann 27. maí birtist eftirtektarverð skoðanagrein hér á Vísi eftir Kolbrúnu Áslaugu Baldursdóttur, þingmann Flokks Fólksins. Greinin er ekki eftirtektarverð á grundvelli röksemdarfærslu þingmannsins eða efnislegs innihalds greinarinnar - innihaldið er yfirborðskennd endurtekning þeirrar einföldunar og afbökunar og þess hálfsannleiks sem einkennir of oft greinar fulltrúa þessarar ríkisstjórnar. Nei, það sem er eftirtektarvert er hvernig þingmaðurinn stillir upp þeim sem eru honum ósammála. Þau sem gagnrýna framgöngu ríkisstjórnarinnar í málinu sem um ræðir eru, samkvæmt þingmanninum, ekki að gera það vegna þess að þau telja hana raunverulega ámælisverða. Þau gera það ekki vegna þess að þau telja málið illa unnið. Óklárað. Þau gera það ekki vegna þess að þau telja, sannfæringu sinni samkvæmt, að málið sé, í núverandi mynd, til þess fallið að brjóta gegn hagsmunum almennings. Nei, þau eru einfaldlega, þingmanninum samkvæmt, að gæta sérhagsmuna. Hagsmuna þeirra með “ítökin”. Þeirra sem hafa “fjárhagslegan ávinning af núverandi kerfi”. Elítunnar. Þetta er hreinn popúlismi. Kjarni popúlisma er uppsetning þess eðlis að þeir sem eru popúlistanum sammála séu góðir, standi með “þjóðinni”, móti sína afstöðu af heilindum, o.s.frv. en þeir sem eru popúlistanum ósammála séu vondir, spilltir, standi með sérhagsmunum og gegn “þjóðinni”, móti sína afstöðu á annarlegum forsendum, o.s.frv. “Þjóðin” er sett fram sem ein heild (sem - viti menn! - er sammála popúlistanum sjálfum) og popúlistinn eignar sér hlutverk talsmanns þessarar heildar. Taka skal fram að Kolbrún er ekki eini þingmaðurinn sem beitir ítrekað aðferðafræði popúlismans - síður en svo. Flokksformaður hennar er helsti popúlisti Íslands og flokksfélagar þeirra eru nær allir popúlistar. Sjálf forsenda flokksins er einmitt sú sem ég rak hér að ofan og er því flokkurinn popúlískur í heild. Fjöldi þingmanna Viðreisnar og Samfylkingarinnar hafa sömuleiðis ítrekað stundað popúlískan málflutning sem þennan. Flokksformaður Viðreisnar og utanríkisráðherra Íslands, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, hefur tileinkað sér þessa popúlísku orðræðu til fjölda ára. Það líður vart vika á milli þess sem hún vænir pólitíska andstæðinga sína um aðför að þjóðinni, lýðræðinu, o.s.frv. Áhugasömum er bent á uppstilltu einræður hennar á Facebook-síðu sinni. Flokksformaður Samfylkingarinnar og forsætisráðherra Íslands, Kristrún Frostadóttir, hefur oft tekið í svipaðan streng - þó sjaldnar en Þorgerður. Framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar, Þórður Snær Júlíusson, hefur lengi verið einn helsti kyndilberi þessa popúlisma, sér í lagi í garð Sjálfstæðisflokksins. Popúlismi er slæmur af mörgum ástæðum. Í fyrsta lagi er hið augljósa, eða að málflutningur popúlismans er ósannur. Það er augljóslega ekki svo að heilu stjórnmálaflokkarnir á Íslandi starfi með hagsmuni lítils hóps ríkra einstaklinga að leiðarljósi og séu, í þágu þeirra, tilbúnir að beita sér gegn því sem þeir vita að séu hagsmunir stærri hluta almennings. Þetta er augljóst þar sem stór hluti almennings - mun stærri en þessi meinti fámenni hópur elítunnar - kýs flokkana. Í síðustu Alþingiskosningum kaus 39,3% kjósenda þessa meintu sérhagsmunagæsluflokka. Þetta gerir fólk vegna þess að það deilir sýn flokkanna á málefnin. Ég kýs þann flokk sem ég kýs vegna þess að ég tel þann flokk best til þess fallinn að stuðla að velmegun íslensks samfélags. Munurinn á mér og Kolbrúnu, Þorgerði, Þórði Snæ - popúlistanum - er að ég veit og viðurkenni að þau gera slíkt hið sama. Við viljum öll það sem er best fyrir íslenskan almenning, en okkur deilir á um það hvernig það er gert. Þessu hafnar popúlistinn. Umfram þennan augljósa vankant popúlismans er það að hann grefur undan lögmætri andstöðu. Undan málefnalegum skoðanaskiptum. Hvernig á ég að koma sjónarmiðum mínum á framfæri ef mér er mætt með persónulegri aðför í stað málefnalegs mótsvars? Hvar fæ ég tækifæri til að heyra mótrök við mína eigin afstöðu ef ég er gerður að óvini almennings við það eitt að opinbera hana? Hvernig komumst við nær sannleikanum? Þegar maður getur ekki lengur haldið á lofti andstöðu við tiltekna stefnu og rökstutt hana á málefnalegum forsendum þá er sannleiksleitin úr sögunni. Málefnaleg umræða hverfur. Skautun eykst. Lýðræðið veikist. Það er afleiðing þeirrar aðferðafræði sem Kolbrún Áslaug, Þorgerður Katrín, Þórður Snær og fleiri hafa kosið. Það er afleiðing popúlismans. Höfundur er tölvunarfræðingur og talsmaður frjálslyndis. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar