Látið Ljósleiðarann vera! Guðni Freyr Öfjörð skrifar 29. maí 2026 11:30 Mig langar aðeins að fara yfir hverjar helstu áhætturnar eru ef Ljósleiðarinn verður seldur til einkaaðila (eða fárra útvalda). En af hverju ættum við að hafa áhyggjur? Jú, vegna þess að við slíka sölu skapast hætta á einokun, fákeppni og hærra verði. Hér skulum við átta okkur á því að Ljósleiðarinn var stofnaður sem opinbert innviðafyrirtæki með það markmið að brjóta upp einokun á fjarskiptamarkaði og tryggja neytendum ódýrara og betra internet. Það er gert í gegnum opið kerfi þar sem öll fjarskiptafélög eins og Nova, Vodafone og Hringdu geta selt sína þjónustu. Ef Ljósleiðarinn verður seldur til einkaaðila fylgir því mikil áhætta, þar sem einkafyrirtæki starfa fyrst og fremst með það að markmiði að hámarka hagnað hluthafa. Ef innviðirnir lenda í höndum einkaaðila (eða vina og vandamanna hægrimanna), eða ef stórt fjarskiptafélag eignast hlut, er hætta á að heildsöluverðskrá til fjarskiptafélaga hækki. Það myndi á endanum skila sér í hærra mánaðargjaldi fyrir internet hjá almenningi. Sem opinbert fyrirtæki hefur Ljósleiðarinn það samfélagslega hlutverk að tryggja öllum íbúum og fyrirtækjum á þjónustusvæðinu hágæða tengingu, óháð því hvar þeir búa. Einkafyrirtæki eiga það hins vegar til að forgangsraða fjárfestingum þar sem þéttleikinn er mestur og gróðinn hraðastur, eins og í nýjum hverfum eða hjá stórfyrirtækjum. Minni áhugi gæti orðið á að viðhalda eða endurnýja kerfi í eldri eða fámennari hverfum þar sem kostnaðurinn er hár en hagnaðurinn lítill. Hér sjáum við aðra ástæðu þess að hægri stefnan býr oft til stéttarskiptingu. Við þetta bætist tap á samfélagslegum innviðum og stjórnun. Mikilvægir grunninnviðir eins og vatnsveita, rafmagn og fjarskipti (internet) eiga best heima í opinberri eigu til að tryggja almannahagsmuni. Internetið er í dag jafn nauðsynlegt og rafmagn og vatn og það varðar þjóðaröryggi! Við einkavæðingu missir almenningur (í gegnum kjörna fulltrúa í borgarstjórn) beina stjórn á því hvernig þessum mikilvægu innviðum er stýrt. Ef upp koma krísur eða þörf krefur á skyndiákvörðunum vegna þjóðaröryggis eða almannavarna, getur eignarhald einkaaðila flækt málin verulega. Ég skora á minnihlutan í borgarstjórn að gera allt í sínu valdi til þess að stöðva það að eigur borgarbúa verði einkavæddar. Sagan sýnir okkur að það boðar aldrei gott þegar Sjálfstæðisflokkurinn vill einkavæða eitthvað. Höfundur er Pírati. Greinin hefur verið uppfærð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðni Freyr Öfjörð Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson Skoðun Skoðun Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Sjá meira
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar