Gullkynslóð Belga hefur varla tapað leik undir stjórn Robertos Martínez og lenti í 3. sæti á síðasta stórmóti, HM í Rússlandi 2018.
Belgar voru í riðli með Íslendingum í Þjóðadeildinni sem og Danir sem hafa leikið sérlega vel undir stjórn Kaspers Hjulmand. Danska liðið verður á heimavelli sem og það rússneska sem komst alla leið í átta liða úrslit á HM á heimavelli fyrir þremur árum.
Svo þreyta Finnar frumraun sína á stórmóti. Róðurinn verður eflaust þungur fyrir finnska liðið en það hefur svo sannarlega bitið frá sér á síðustu árum og mun gera það áfram á EM.
LEIKIRNIR Í B-RIÐLI:
12. júní kl. 16: Danmörk - Finnland, Kaupmannahöfn
12. júní kl. 18: Belgía - Rússland, St. Pétursborg
16. júní kl. 13: Finnland - Rússland, St. Pétursborg
16. júní kl. 16: Danmörk - Belgía, Kaupmannahöfn
21. júní kl. 19: Rússland - Danmörk, Kaupmannahöfn
21. júní kl. 19: Finnland - Belgía, St. Pétursborg

Danmörk
Þjálfari: Kasper Hjulmand
Stjörnur liðsins: Christian Eriksen (Inter), Kasper Schmeichel (Leicester), Simon Kjær (AC Milan).
Árangur á EM: Átta sinnum með (1964, 1984, 1988, 1992, 1996, 2000, 2004, 2012). Besti árangur Evrópumeistarar 1992
Þrátt fyrir að hafa komið Dönum á EM og náð flottum árangri með danska liðið vildu forráðamenn danska knattspyrnusambandsins meira og skiptu honum út fyrir Kasper Hjulmand. Og það er ekki hægt að kvarta mikið yfir árangrinum undir hans stjórn.
Danir hafa unnið níu af síðustu tíu leikjum sínum og unnu fyrstu þrjá leiki sína í undankeppni HM 2022 án þess að fá á sig mark. Danir voru ósigraðir í undankeppni EM en enduðu í 2. sæti síns riðils á eftir Svisslendingum.
Danir verða á heimavelli í öllum þremur leikjum sínum í riðlakeppni EM og ættu ef allt er eðlilegt að fara örugglega í sextán liða úrslit. Og þeir vonast svo væntanlega eftir svipuðu EM-ævintýri og 1992.

Finnland
Þjálfari: Markku Kanerva
Stjörnur liðsins: Teemu Pukki (Norwich), Lukás Hrádecký (Leverkusen), Tim Sparv (AEL)
Árangur á EM: Aldrei verið með
Finnar eru í fyrsta sinn með á stórmóti eftir að hafa lent í 2. sæti síns riðils í undankeppninni. Finnska liðið hefur verið í sókn undanfarin ár, eða síðan Markku Kanerva tók við því 2016, og gert fína hluti í Þjóðadeildinni.
Fá þekkt nöfn eru í finnska liðinu en liðsheildin er sterk og það spilar sterka vörn. Þá er Lukás Hrádecky mjög frambærilegur markvörður.
Í sóknarleiknum mæðir langmest á Norwich-manninum Teemu Pukki, markahæsta leikmanni ensku B-deildarinnar. Pukki skoraði tíu af sextán mörkum Finnlands í undankeppninni og er langmarkahæstur í finnska hópnum.

Belgía
Þjálfari: Roberto Martínez
Stjörnur liðsins: Romelu Lukaku (Inter), Kevin De Bruyne (Man. City), Eden Hazard (Real Madrid).
Árangur á EM: Fimm sinnum með (1972, 1980, 1984, 2000, 2016). Besti árangur 2. sæti á EM 1980.
Belgar fóru eins sannfærandi í gegnum riðilinn sinn í undankeppninni og hægt er, unnu alla tíu leikina með markatölunni 40-3.
Belgíska liðinu hefur gengið frábærlega síðan Roberto Martínez tók við því 2016 en undir hans stjórn hefur Belgía 42 af 54 leikjum sínum, gert átta jafntefli og aðeins tapað fjórum leikjum.
Belgíska liðið er stjörnum prýtt með leikmenn sem eru í lykilhlutverkum í bestu liðum Evrópu. Leikmenn Belgíu eru á besta aldri og sennilega hefur tækifærið til að vinna gull á stórmóti aldrei verið betra. Belgar lentu í 3. sæti á HM í Brasilíu 2018 og vilja nú taka stóra skrefið. Og eru fullfærir um það.

Rússland
Þjálfari: Stanislav Cherchesov
Stjörnur liðsins: Artem Dzyuba (Zenit), Aleksandr Golovin (Monaco), Denis Cheryshev (Valencia).
Árangur á EM: Ellefu sinnum með (1960, 1964, 1968, 1972, 1988, 1992, 1996, 2004, 2008, 2012, 2016). Besti árangur Evrópumeistarar 1960.
Rússar komu mjög á óvart á HM á heimavelli fyrir þremur árum þar sem þeir komust í átta liða úrslit. Rússland fór örugglega upp úr sínum riðli í undankeppninni, unnu alla leiki sína nema gegn Belgíu. Gengið í síðustu Þjóðadeild var hins vegar misjafnt.
Gamli markvörðurinn Stanislav Cherchesov hefur búið til þétt lið sem er erfitt að brjóta á bak aftur. Fáar stjörnur eru í rússneska liðinu en það er afar jafnt. Mikið mæðir á fyrirliðanum Artem Dzyuba sem er langmarkahæstur í rússneska liðinu og svo eru spennandi miðjumenn í því eins og Aleksandr Golovin og Aleksei Miranchuk. Þá gæti hinn afar efnilegi Arsen Zakharyan fengið tækifæri á stóra sviðinu.
Rússar geta hæglega farið upp úr riðlinum en það er erfitt að sjá rússneska liðið fara mikið lengra en í sextán liða úrslit.
Hvað tekur við?
Tvö efstu liðin í riðlinum eru örugg um sæti í 16-liða úrslitum. Fjögur lið með bestan árangur í 3. sæti, í riðlunum sex, komast einnig í 16-liða úrslitin.
Sigurliðið í B-riðli mætir liðinu úr 3. sæti í riðlum A, D, E eða F.
Liðið úr 2. sæti B-riðils mætir liðinu í 2. sæti A-riðils (Tyrkland, Ítalía, Sviss, Wales).
Liðið úr 3. sæti B-riðils gæti mögulega mætt sigurliðinu úr E- eða F-riðli.