Skoðun

Byrjað á kol­röngum enda

Smári Jökull Jónsson skrifar

Mér finnst svo margt galið við umræðuna um styttingu opnunartíma leikskóla. Til dæmis það að margir þeir sem eru fylgjandi því að minnka opnunartíma leikskóla miða öll sín rök út frá þeim sem eru í bestu stöðunni til að takast á við þessar breytingar.

Hvað með einstæða foreldrið sem vinnur 8:30-16:30 og hefur enga möguleika á að minnka vinnutíma (tekjutap) eða breyta honum. Haldið þið að þessar breytingar séu barni þessa eistaklings til góða? Svo er þetta sama barn aldrei í sumarfríi með foreldri sínu því það er skikkað í frí í júlí þegar foreldrið getur bara verið í fríi í júní.

Ég held að það sé gömul saga að fólk líti á leikskóla sem geymslu fyrir krakka eða pössun því það nennir ekki að vera með þeim heima hjá sér. Fólk fær leikskólapláss fyrir börnin sín vegna þess að það er að vinna. Þannig er það í 99% tilfella. Þetta er ekki geymsla fyrir börn, heldur þjónustu- og menntastofnun sem sinnir gríðarlega mikilvægu starfi fyrir yngstu íbúa landsins.

Ég vann á leikskóla í Svíþjóð í 3 ár sem var opinn frá 7-18. Stundum 6:30-18:30. Foreldrar þurftu að skila inn pappírum undirrituðum af vinnuveitanda varðandi vinnutíma. Við það var bætt ferðatíma til/frá vinnu og það var vistunartími barnsins. Ef þú vannst 8:30-16:30 og varst 15 mínútur að ferðast til/frá vinnu þá var vistunartíminn frá 8:15-16:45. Ef þú vannst 9-17 þá var vistunartíminn 8:45-17:15. Tíminn var einfaldlega ákveðinn út frá vinnutíma foreldris.

Fyrir sumarið skiluðu foreldrar síðan inn pappírum varðandi sumarfrí. Öll börn urðu að taka minnst 4 vikur í frí (flestir voru lengur) og tóku þá frí þegar foreldrar voru í fríi. Það var einfaldlega bannað að vera í fríi sjálfur en vera með barnið á leikskóla. Leikskólanum var aldrei lokað yfir sumarið, sparnaður náðist með sameiningu deilda og skipulagningu á sumarfríi barna og starfsmanna.

Fólk er stimplað sem ábyrgðarlaust ef það vogar sér að nefna að þessi breyting komi illa við það. Að setja þetta upp þannig að “sumir þurfa að selja sportbíllinn sinn til að vagninn komist í skottið” finnst mér lýsa svo fullkomnu þekkingarleysi á aðstæðum fólks að ég á bara ekki til orð. Enn og aftur verið að setja upp einhverjar forsendur sem miða út frá agnarlitlum hluta samfélagsins.

Ég er algjörlega hlynntur því að unnið sé að því að börn séu ekki á leikskólum óeðlilega lengi á hverjum degi, að reynt sé að búa til samfélag sem gefur fjölskyldum góða möguleika á samveru. Og mér finnst afar mikilvægt að búa til gott starfsumhverfi á leikskólum og fjölga þar fagmenntuðu starfsfólki. Þetta er samt ekki rétta aðferðin. Það er verið að byrja á kolröngum enda.

Höfundur er kennari.




Skoðun

Skoðun

21 blár

Jón Pétur Zimsen skrifar

Sjá meira


×