Innlent

Fyrsta mat bendi til þess að yfirlögn hafi ekki sam­ræmst útboðsskilmálum

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Vesturlandsvegi var lokað um tíma vegna slyssins síðdegis í gær. Honum verður lokað í einn til tvo tíma frá klukkan 13:00 í dag vegna áframhaldandi rannsóknar á slysinu.
Vesturlandsvegi var lokað um tíma vegna slyssins síðdegis í gær. Honum verður lokað í einn til tvo tíma frá klukkan 13:00 í dag vegna áframhaldandi rannsóknar á slysinu. Vísir/Einar

Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, segir að fyrsta mat bendi til þess að yfirlögn á vegkaflanum þar sem banaslysið varð í gær hafi ekki samræmst útboðsskilmálum. Mælirinn er fullur hjá bifhjólasamfélaginu á Íslandi sem krefst úrbóta á hættulegum vegköflum landsins.

Tveir létust í árekstri bifhjóls og húsbíls á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi um þrjúleytið í gær. Þeir sem létust voru ökumaður og farþegi á bifhjóli en ökutækin komu úr gagnstæðri átt. Nýtt slitlag var á vegkaflanum þar sem slysið varð og var það sérstaklega sleipt. Skúraveðrið og hitinn bættu síðan gráu ofan á svart. Tveir verktakar vinna fyrir Vegagerðina, annars vegar verktakinn sem leggur yfir og hins vegar sá sem hefur eftirlit.

Bergþóra kveðst harmi slegin vegna slyssins í gær. Vegagerðin framkvæmdi ástandsskoðun á vegkaflanum í morgun.

„Við erum að hálkumæla þennan vegkafla. Það er okkar fyrsta mat að þessi yfirlögn hafi ekki samræmst útboðsskilmálum. Við erum að skoða það og eigum fund með hlutaðeigandi núna eftir hádegi. Þá vitum við meira.“

Aðspurð hvað geti falist í því að yfirlögnin hafi mögulega ekki uppfyllt útboðsskilmála segir Bergþóra.

„Það geta verið ýmsir þættir sem hafa áhrif á það; hvernig það er unnið og hvaða efni er og svo framvegis. Við verðum bara að fara ofan í saumana á því,“ segir Bergþóra sem tekur fram að viðeigandi hálkuviðvaranir séu við veginn.

Það sem skoðað verður eru gæði efnanna sem notuð voru í veginn, samsetning blöndunnar sem notuð var og að lokum aðstæður þegar efnið var lagt út.

Bifhjólasamfélagið skekið vegna banaslyssins

Bifhjólasamfélagið á Íslandi er skekið vegna slyssins en Sniglar, bifhjólasamtök lýðveldisins, hafa efnt til mótmæla við húsnæði vegagerðarinnar í borgartúni á morgun klukkan 13.00. Krafist er útbóta á hættulegum vegköflum. Þorgerður Guðmundsdóttir, formaður samtakanna, gerði sér ferð á slysavettvang í gærkvöldi.

„Og bara að stíga á malbikið í venjulegum skóm, það er flughált.“

Þorgerður segir að mælirinn sé fullur hjá bifhjólasamfélaginu á íslandi.

„Það er bara mjög þungt hljóðið í fólki. Það er slegið. Allir eru hálflamaðir eftir þetta,“ segir Þorgerður.

Loka vegkaflanum á ný á þágu framhaldsrannsóknar

Hluta Vesturlandsvegar verður lokað klukkan eitt í dag í þágu framhaldsrannsóknar á banaslysinu. Áætlað er að rannsóknin taki eina til tvær klukkustundir. Um er að ræða vegkaflann á milli Grundarhverfis og Hvalfjarðarvegar. Lokunin hefur ekki áhrif á umferð til og frá Grundarhverfi, en öðrum er bent á hjáleið um Kjósarskarðsveg.


Tengdar fréttir

Bifhjólasamtök efna til mótmæla við Vegagerðina

Sniglar, Bifhjólasamtök Lýðveldisins, hafa efnt til mótmæla við húsnæði Vegagerðarinnar í Borgartúni, næstkomandi þriðjudag. Mótmælin snúa að hættulegum vegköflum á vegum landsins og verður úrbóta krafist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×