Charles Hendry, fyrrverandi orkumálaráðherra Breta og ráðgjafi hjá Atlantic Superconnection Corporation, sagði á fundi Kjarnans og Íslenskra verðbréfa um sæstrengsverkefnið á mánudag að bresk stjórnvöld vilji eindregið taka upp viðræður við íslensk stjórnvöld um stöðu verkefnisins. Hins vegar sé engin krafa gerð til þess að stjórnvöld hér gefi afdráttarlaus svör á þessum tímapunkti.
Sjá einnig:Bretar kalla enn eftir viðræðum um sæstreng við stjórnvöld hér

„Mín skoðun er sú, eins og kom fram í nefndaráliti með skýrslu ráðgjafarhóps ráðherra í fyrra, að það bæri að hraða málinu eins og kostur er. Það þarf að sannreyna hvar Bretar standa og forsendur sem liggja að baki áhuga þeirra. Einnig þarf að fá á hreint hvaða áhrif þetta hefur á orkuverð hér innanlands, hver efnahagsleg áhrif verða í víðu samhengi og ekki síst hvað þetta þýðir í umhverfislegu tilliti – hvernig orkuöflun verður háttað fyrir sæstreng ef til hans kæmi. Þetta eru grundvallaratriði sem standa enn út af borðinu og ég tel mikilvægt að fá svör við þessum spurningum fyrr en seinna,“ segir Jón.
Jón, sem sat fundinn á mánudag, nefnir í þessu samhengi orð Hendrys um að sú stund nálgist hjá Bretum að þeir þurfi að taka ákvarðanir um hvernig raforkukerfi þeirra verður uppbyggt eftir 2020. Málið hafi líka snertifleti við uppbyggingu flutningskerfis raforku hér innanlands.
„Það er betra að niðurstaða liggi fyrir í þessu máli svo hægt sé að taka mið af því við þá uppbyggingu flutningskerfisins sem er fram undan,“ segir Jón.