Þann 28. júní árið 2013 samþykkti Alþingi þingsályktun um aðgerðir vegna skuldavanda heimila á Íslandi. Aðgerðaáætlunin var í tíu liðum til að taka á skuldavanda Íslendinga.
Fjórði liður í áætluninni var að skipuð yrði verkefnisstjórn, á ábyrgð Eyglóar Harðardóttur félagsmálaráðherra um framtíðarskipan húsnæðismála. Þann 6. maí á síðasta ári voru tillögurnar kynntar.

Eygló Harðardóttir bendir á að ekki sé búið að taka endanlega ákvörðun. Mikilvægt sé að hún verði tekin af yfirvegun.
„Það hefur engin ákvörðun verið tekin um staðsetningu stofnunar sem ekki hefur enn verið samþykkt af Alþingi. Þingið mun síðan koma að því hvar staðsetning þeirrar stofnunar á að vera. Fyrst og fremst mun staðsetning stofnunarinnar ráðast af því hvar hún getur á sem auðveldastan hátt sinnt störfum sínum sem best fyrir alla landsmenn,“ segir Eygló. „Mitt verkefni er að koma frumvarpinu í gegnum þingið fyrst.“
Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, segir efnisleg rök þurfa að vera til staðar áður en staðsetning opinberra stofnana er ákveðin.
„Það getur vel verið að rökin séu til staðar, ég veit það ekki, en við verðum að ræða þetta í rólegheitum,“ segir Helgi.

„Það er skrítið ef búið er að ákveða staðsetningu höfuðstöðva áður en stofnun er sett á fót,“ segir Árni Páll, sem kveður staðsetninguna hljóta að ráðast af eðli starfseminnar.
„Það er engin leið að byggja byggðastefnu upp á hreppaflutningum og kjördæmapoti af þessu tagi,“ heldur Árni Páll áfram. „Svona aðgerðir munu aldrei duga til að skapa nein störf til framtíðar, því um þetta verður stöðug togstreita og ágreiningur. Það þarf samstöðu um uppbyggingu opinberrar starfsemi vítt og breitt um land, en ekki svona hreppaflutninga.“