Páll Jóhann Pálsson, þingmaður Framsóknarflokksins, ætlar að sitja hjá við atkvæðagreiðslu um frumvarp sjávarútvegsráðherra um kvótasetningu á makríl. Með frumvarpinu er fyrirtæki í eigu eiginkonu hans veittur kvóti.
„Vegna tengsla minna við fyrirtæki í sjávarútvegi mun ég sitja hjá við afgreiðslu málsins, líkt og ég hef gert við afgreiðslu annarra mála af sama toga,“ segir þingmaðurinn í tilkynningu sem hann hefur sent frá sér.
Makrílkvótinn sem fyrirhugað er að fyrirtæki eiginkonu Páls Jóhanns fái er makrílkvóta að verðmæti 50 milljónir króna.
Í samtali við Fréttablaðið
þegar fyrst var greint frá málinu sagðist Páll ekki telja sig vanhæfan. „Nei, ég tel mig ekki vanhæfan. Ég tel mig hafa það mikla þekkingu á sjávarútvegi að ég geti tjáð mig um málið í þinginu,“ sagði hann.
Páll Jóhann ætlar að sitja hjá

Tengdar fréttir

Eiginkonan hagnast á makrílfrumvarpi
Makrílkvóti að verðmæti 50 milljónir fer til eiginkonu alþingismannsins Jóhanns Pálssonar verði nýtt frumvarp að lögum. Útvegsmaður sem situr í sjávarútvegsnefnd Framsóknarflokksins fær þrefalt meiri kvóta en skip hans veiddi í fyrra.