Viðskipti innlent
79 80 81 82 83 84 85 86 87 … 334 ›
Fyrirætlanir ESB setji stöðu Íslands í hættu Fái Ísland ekki undanþágu frá fyrirhuguðum hertum aðgerðum Evrópusambandsins til að sporna við mengun vegna flugsamgangna gæti landið misst stöðu sína sem tengipunktur milli Evrópu og Ameríku, með slæmum afleiðingum fyrir hagkerfið. Þetta segir forstjóri Icelandair. Viðskipti innlent 22.2.2023 20:51
Kolefnisspor Landsvirkjunar minnkað um sextíu prósent Losun Landsvirkjunar á gróðurhúsalofttegundum hefur dregist saman um sextíu prósent frá 2008. Heildarlosun á orkueiningu minnkaði um tvö prósent á milli ára í fyrra en kolefnisspor fyrirtækisins stækkaði lítillega á milli ára. Viðskipti innlent 22.2.2023 14:57
Telur tjónið nú þegar nema hundruð milljónum króna Ferðamálastjóri telur að útvega þurfi nokkur hundruð ferðamönnum nýja gistingu því hótel hafi eða séu að loka vegna verkfalla Eflingarfélaga. Ferðaþjónustan hafi þegar orðið af hundruðum milljóna króna. Neyðarnúmer hefur verið virkjað. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins væntir þess að félagsmenn SA munu samþykkja boðað verkbann en atkvæðagreiðslu um það lýkur í dag. Viðskipti innlent 22.2.2023 11:51
Skila öllu vatni sem þarf í kolefnisförgun aftur í jörðina Vatni sem dælt verður upp úr ferskvatnsstraumi neðanjarðar við Straumsvík fyrir kolefnisförgunarstöð Carbfix verður öllu skilað aftur ofan í jörðina og hefur ekki áhrif á vatnsból. Opinberar stofnanir segja að rannsaka verði vel umhverfisáhrif gríðarlegrar vatnsnotkunar stöðvarinnar. Viðskipti innlent 22.2.2023 11:02
Þórunn Káradóttir í fjártæknigeirann Þórunn Káradóttir hefur verið ráðin til fjártæknifyrirtækisins YAY sem lögfræðingur. Viðskipti innlent 22.2.2023 10:26
Enn lækkar íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 0,5 prósent milli desember og janúar. Þetta er þriðja mánuðinn í röð sem íbúðaverð lækkaði. Ekki hafa verið undirritaðir færri kaupsamningar á mánuði síðan í janúar árið 2011. Viðskipti innlent 22.2.2023 10:18
Slaufa auglýsingum á Stöð 2+ Frá og með 1. mars verður streymisveitan Stöð 2+ án auglýsinga. Engar auglýsingar verða spilaðar áður en efni fer í gang eins og verið hefur. Viðskipti innlent 22.2.2023 07:01
Methagnaður Landsvirkjunar fyrst og fremst sóttur til stóriðjunnar Landsvirkjun á núna Kárahnjúkavirkjun skuldlausa sem og allar virkjanir byggðar fyrir hennar tíma. Forstjórinn segir methagnað fyrirtækisins fyrst og fremst sóttan til stóriðjunnar en ekki til almennings. Viðskipti innlent 21.2.2023 22:30
Ráðinn til starfa í Hagfræðideild Landsbankans Hjalti Óskarsson hagfræðingur hefur verið ráðinn til starfa í Hagfræðideild Landsbankans. Viðskipti innlent 21.2.2023 14:14
Segir methagnað uppskeru af uppbyggingu virkjana Landsvirkjun skilaði fjörutíuogfimm milljarða króna hagnaði á síðastliðnu ári og leggur stjórn fyrirtækisins til að tuttugu milljarða króna arður verði greiddur í ríkissjóð, fimm milljörðum meira en fjárlög gera ráð fyrir. Forstjórinn segir þetta uppskeru virkjanauppbyggingar síðustu áratuga en endursamningar við stóriðju séu þó stærsti áhrifaþátturinn í góðri afkomu. Viðskipti innlent 21.2.2023 12:36
Í varnarham á opnum fundi Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri var í varnarham í morgun á opnum fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis um áhrif verðbólgu hér á landi, þar sem þingmenn spurðu hann spjörunum úr um aðgerðir Seðlabankans síðustu misseri. Viðskipti innlent 21.2.2023 11:39
Nýir stjórnendur hjá Nox Medical Íslenska tæknifyrirtækið Nox Medical hefur ráðið til sín fjóra nýja stjórnendur. Starfsmenn fyrirtækisins eru nú níutíu talsins og hefur þeim fjölgað um fjörutíu prósent á síðustu tveimur árum. Viðskipti innlent 21.2.2023 10:41
Adriana tekur við af Ásdísi Eir hjá Mannauði Adriana Karólína Pétursdóttir var kjörin formaður Mannauðs, félags mannauðsfólks á Íslandi. Hún tekur við starfinu af Ásdísi Eir Símonardóttur, mannauðsstjóra Lucinity, sem hefur verið formaður félagsins undanfarin þrjú ár. Viðskipti innlent 21.2.2023 10:26
Jónas Yngvi til Uniconta Jónas Yngvi Ásgrímsson hefur verið ráðinn til Uniconta Ísland. Jónas kemur til Uniconta frá DK hugbúnaði þar sem hann hefur starfað síðastliðin fjórtán ár. Hann kemur til með að leiða ráðgjöf, þjónustu og sölu til fagaðila og viðskiptavina félagsins. Viðskipti innlent 21.2.2023 08:26
Jón, Snorri Páll, Sylvía Kristín og Finnur hlutu stjórnunarverðlaun Fjórir einstaklingar hlutu Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi árið 2023 sem afhent voru við hátíðlega athöfn á Nauthól að viðstöddum forseta Íslands í gær. Viðskipti innlent 21.2.2023 07:38
Leggja til tuttugu milljarða arðgreiðslu Afkoma ársins var sú besta í sögu Landsvirkjunar. Hagnaður fyrir óinnleysta fjármagnsliði, sem er sá mælikvarði sem við lítum helst til þegar afkoma fyrirtækisins er skoðuð, var 44,9 milljarðar króna og hækkaði um ríflega 72% á milli ára í bandaríkjadal talið. Þetta kemur fram í ársreikningi Landsvirkjunar. Viðskipti innlent 20.2.2023 15:51
Bein útsending: Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi 2022 Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi eru veitt árlega stjórnendum fyrirtækja sem þykja hafa skarað fram úr á sínu sviði. Verðlaunin verða afhent í beinni útsendingu klukkan 16 í dag. Viðskipti innlent 20.2.2023 15:31
Karítas frá Mogganum og til Landsbankans Karítas Ríkharðsdóttir hefur gengið til liðs við Landsbankann sem sérfræðingur í samskiptum. Viðskipti innlent 20.2.2023 13:47
Hjalti Þór og Benedikt til eignastýringar LV Hjalti Þór Skaftason og Benedikt Guðmundsson hafa verið ráðnir í eignastýringu Lífeyrissjóðs verzlunarmanna. Viðskipti innlent 20.2.2023 12:59
Rætur nýs markaðsstjóra Icewear liggja til Víkur í Mýrdal Elma Bjartmarsdóttir hefur verið ráðin nýr markaðsstjóri Icewear. Elma er viðskiptafræðingur með meistaragráðu í markaðsfræðum frá Háskólanum á Bifröst og viðurkenndur stafrænn markaðssérfræðingur frá Akademias. Viðskipti innlent 20.2.2023 12:01
Benedikt Orri hjá Meniga orðinn forstjóri Rafnars Benedikt Orri Einarsson hefur verið ráðinn forstjóri haftæknifyrirtækisins Rafnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rafnar sem vinnur að því að auka aðgengi að úthöfunum með þróun nýrra haftæknilausna. Benedikt var áður framkvæmdastjóri fjármála hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Meniga. Viðskipti innlent 20.2.2023 11:57
Ráðin sviðsstjóri sölu- og markaðssviðs hjá dk hugbúnaði Margrét Sveinbjörnsdóttir hefur tekið við sem sviðsstjóri sölu- og markaðssviðs hjá dk hugbúnaði. Viðskipti innlent 20.2.2023 10:16
Eva Margrét og Guðrún Lilja nýir meðeigendur hjá LEX Eva Margrét Ævarsdóttir og Guðrún Lilja Sigurðardóttir hafa bæst í hóp meðeigenda LEX lögmannsstofu. Viðskipti innlent 20.2.2023 09:41
Þarf að greiða um hálfan milljarð í skatt eftir rannsókn sem hófst með Panama-skjölunum Sigurður Gísli Björnsson, fyrrverandi eigandi og stjórnandi Sæmarks, þarf að greiða tæpan hálfan milljarð í tekjuskatt og útsvar, vegna áranna 2010-2016, í máli sem nefnt hefur verið sem eitt af umfangsmestu skattalagabrotum sem upp hafi komið hér á landi. Yfirskattanefnd telur ljóst að Sigurður Gísli hafi vantalið tekjur frá tveimur panamískum-félögum í hans eigu upp á rúmlega einn milljarð króna á umræddum árum. Mál hans er til rannsóknar hjá héraðssaksóknara. Viðskipti innlent 19.2.2023 12:00
Skýrslan leiði til úrbóta í veitingu leyfa til fiskeldis Ítrekaðar frestanir á leyfisveitingum fyrir fiskeldi í Ísafjarðardjúpi valda því að örlög laxaseiða fyrir á þriðja hundrað milljóna króna eru í uppnámi hjá Arctic Fish. Talsmaður fyrirtækisins vonast til að viðkomandi stofnanir taki mið af ábendingum Ríkisendurskoðunar, fari að lögum og gefi út leyfin. Viðskipti innlent 18.2.2023 22:44
Engar eignir fundust í þrotabúi 24 miðla Skiptum er lokið á þrotabúi 24 miðla ehf., sem hélt um skamma hríð úti fréttavefnum 24 - þínar fréttir. Engar eignir fundust upp í ríflega níu milljóna króna kröfur. Viðskipti innlent 18.2.2023 14:04
Ekkert fékkst upp í 228 milljóna króna kröfur Skiptum er lokið á þrotabúi JL Holding ehf.. Lýstar kröfur í búið námu rétt tæplega 228 milljónum króna en ekkert fékkst upp í þær. Félagið var í eigu Margrétar Ásgeirsdóttur fjárfestis og var stofnað utan um hótelrekstur í JL-húsinu við Hringbraut. Viðskipti innlent 18.2.2023 12:35
Landsbankinn hækkar líka vexti Landsbankinn hefur ákveðið að hækka bæði út- og innlánavexti eftir 0,5 prósentustiga stýrivaktahækkun Seðlabankans. Hinir stóru viðskiptabankarnir tveir tilkynntu einnig vaxtahækkun í dag. Viðskipti innlent 17.2.2023 18:49
Arion hækkar sömuleiðis vextina Arion banki hefur tilkynnt um hækkun inn- og útlánsvaxta í kjölfar stýrivaxtahækkunar Seðlabankans. Vaxtabreytingarnar taka gildi næstkomandi þriðjudag, 21. febrúar. Viðskipti innlent 17.2.2023 14:31
Sekt Fossa stendur vegna bónusa í búningi arðgreiðslna Fjármálafyrirtækið Fossar markaðir braut lög þegar fyrirtækið greiddi út of háa kaupauka til starfsmanna sinna og kallaði þá ranglega arðgreiðslur. Þetta er niðurstaða Fjármálaeftirlitsins, héraðsdóms og nú Landsréttar sem kvað upp dóm sinn í dag. Viðskipti innlent 17.2.2023 14:07