Sport

Sigursteinn Arndal: FH liðið langt frá sínu besta
Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, var að vonum svekktur eftir sjö marka tap sinna manna gegn Val í kvöld. Lokatölur 23-30 í leik þar sem fyrirliði FH, Aron Pálmarsson, var fjarverandi.

Grótta tyllti sér á toppinn og KA fékk fyrstu stigin
Grótta er í efsta sæti Olís deildar karla eftir 32-30 sigur gegn ÍBV í kvöld. KA reif sig upp af botninum með 28-24 sigri gegn ÍBV. Afturelding lagði Fram örugglega með fimm marka mun, 34-29.

Uppgjörið: Álftanes - Keflavík 101-108 | Hasar og læti í framlengdum leik í Forsetahöllinni
Keflavík vann góðan sigur á Álftanesi í framlengdum leik þegar liðin mættust í 1. umferð Bónus-deildarinnar á Álftanesi í kvöld. Dramatíkin var allsráðandi undir lokin og tilfinningarnar miklar á vellinum sem og í stúkunni.

Uppgjörið: Tindastóll - KR 85-94 | KR-ingar mættir aftur
KR bar sigur orð af liði Tindastóls í Bónus Deildinni í dag á Sauðárkróki, lokatölur í leiknum voru 85-94, þægilegur sigur KRinga.

Bruno sá aftur rautt en Maguire bjargaði stigi í uppbótartíma
Tíu menn Manchester United rétt björguðu stigi í uppbótartíma á útivelli gegn Porto. Allt stefndi í tap þrátt fyrir að gestirnir hafi tekið tveggja marka forystu í fyrri hálfleik. Fyrirliðinn Bruno Fernandes sá rautt annan leikinn í röð.

Andri Guðjohnsen lagði upp í tapi gegn Chelsea
Andri Lucas Guðjohnsen lagði upp mark Gent í 4-2 tapi gegn Chelsea á Stamford Bridge í fyrstu umferð Sambandsdeildarinnar.

„Þarft að vera sami leikmaður og á Íslandi og bæta tuttugu prósentum ofan á það“
Arnari Gunnlaugssyni, þjálfara Víkings, fannst tapið fyrir Omonia í Sambandsdeild Evrópu vera of stórt. Hann sagði að sínir menn hefðu gert mistök sem þeir gera alla jafna ekki. Þá höfðu meiðsli Tariks Ibrahimagic mikil áhrif á gang mála að mati þjálfarans.

„Það var helvíti maður, Jesús kristur“
„Manni líður ekki vel,“ segir Danijel Dejan Djuric, leikmaður Víkings, eftir 4-0 tap liðsins fyrir Omonoia í Sambandsdeild Evrópu í fótbolta í kvöld.

Magdeburg missti heimsmeistaratitilinn
Ungverska liðið Veszprém er heimsmeistari félagsliða eftir 34-33 sigur gegn þýska liðinu Magdeburg í framlengdum leik. Magdeburg hafði unnið keppnina fjögur ár í röð og var ósigrað í síðustu fimmtán leikjum fyrir þennan.

Kristian meiddist | Elías hélt marki Midtjylland hreinu
Níu leikir fóru fram síðdegis í annarri umferð Evrópudeildarinnar. Kristian Hlynsson fór meiddur af velli, Elías Ólafsson hélt hreinu og Orri Steinn Óskarsson var í byrjunarliðinu.

Uppgjörið: Omonia - Víkingur 4-0 | Seig á ógæfuhliðina í seinni hálfleik
Víkingur tapaði fyrir Omonia á Kýpur, 4-0, í fyrsta leik sínum í Sambandsdeild Evrópu í dag. Andronikos Kakoullis skoraði tvö mörk og Senou Coulibaly og Saidou Alioum sitt markið hvor. Öll mörkin komu í seinni hálfleik.

Uppgjörið: Haukar - Höttur 80-108 | Ótrúlega öruggur sigur Hattar í Hafnarfirði
Höttur mætti til leiks í fyrstu umferð Bónus deildar karla og tóku gestgjafa sína í Haukum í bakaríið. Haukar voru eiginlega engin fyrirstaða fyrir fullorðna Hattarmenn sem unnu 80-108 sigur í leik sem var lítið spennandi í seinni hálfleik.

Martin mátti þola tap í fyrsta leik EuroLeague
Martin Hermannsson var í byrjunarliði Alba Berlin, sem tapaði 77-87 fyrir Panathinaikos, í fyrsta leik evrópukeppni félagsliða í körfubolta, EuroLeague.

Miðasala hafin á EM 2025 og skipulagning hafin fyrir 2029
Fimm formleg boð bárust til UEFA um að halda Evrópumót kvenna í knattspyrnu árið 2029. Frá Þýskalandi, Póllandi, Portúgal og Ítalíu, auk sameiginlegs boðs frá nágrannaþjóðunum Danmörku og Svíþjóð.

Valinn í landsliðið í fyrsta sinn í sjö ár
Dominic Solanke, framherji Tottenham, var valinn í enska landsliðshópinn sem mætir Grikklandi og Finnlandi í Þjóðadeild Evrópu síðar í þessum mánuði.

Tapsár Jordan lögsækir NASCAR
Michael Jordan hefur lögsótt bandarísku aksturskeppnina NASCAR eftir langvinnar deilur. Lögsóknin er sögð geta haft sögulegar afleiðingar, og breytingar í för með sér.

Tottenham sótti sigur til Ungverjalands
Tottenham vann 2-1 á útivelli gegn Ferencvaros í annarri umferð Evrópudeildarinnar. Lundúnarliðið hefur unnið báða sína leiki í keppninni hingað til.

Hansen snýr aftur í lið Víkinga
Nikolaj Hansen, fyrirliði Víkings, snýr aftur í byrjunarlið félagsins fyrir leik dagsins við Omonoia í Sambandsdeild Evrópu.

Holdafarsummæli Guardiola sem myllusteinn um háls Phillips
Kalvin Phillips segir að ummæli Peps Guardiola, knattspyrnustjóra Manchester City, um holdafar hans hafi haft mikil áhrif á feril hans.

Messi skoraði tvö þegar hann vann 46. titilinn á ferlinum
Lionel Messi skoraði tvívegis þegar Inter Miami vann Columbus Crew, 3-2, og þar með stuðningsmannaskjöldinn í MLS-deildinni í Bandaríkjunum. Messi hefur nú unnið 46 titla með félagsliðum og landsliði á glæstum ferli.

Finnur Freyr í bann fyrir lætin í Keflavík
Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals, hefur verið dæmdur í eins leiks bann vegna framkomu hans í leik liðs hans við Keflavík í Meistarakeppni KKÍ síðustu helgi. Hann missir af leik Vals við Stjörnuna annað kvöld.

Heimir skildi stórt nafn eftir heima og Írar fagna
Heimir Hallgrímsson gerir heilar sex breytingar á leikmannahópi Írlands fyrir komandi leiki liðsins í Þjóðadeild karla í fótbolta. Írar töpuðu báðum leikjum liðsins í síðasta landsleikjaglugga.

Grænlensku börnin spiluðu tölvuleiki með stjörnur í augunum
„Það var smá feimni í gangi en aldrei að vita nema einhver vinasambönd hafi myndast,“ segir rafíþróttaþjálfarinn Daníel Sigurvinsson um heimsókn um 30 grænlenskra grunnskólabarna í Arena þar sem látið var á það reyna hvort hægt væri að nota tölvuleiki til þess að tengja þau við íslenska krakka sem þar æfa.

„Það verður allt dýrvitlaust“
„Ég held að menn séu vel stemmdir, það hlýtur að vera. Við erum búnir að bíða lengi eftir þessum degi sem félag, ég sjálfur og leikmenn,“ segir Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, um verkefni dagsins. Víkingur mætir Omonoia í fyrsta leik liðsins í Sambandsdeild Evrópu.

Svona var kynningarfundurinn fyrir úrslitaleikinn
Vísir var með beina útsendingu frá blaðamannafundi á Hlíðarenda vegna úrslitaleiks Vals og Breiðabliks um Íslandsmeistaratitilinn í fótbolta kvenna.

Kári með skoðunarferð fyrir Víkinga á Kýpur
Víkingar undirbúa sig fyrir fyrsta leik liðsins í Sambandsdeild Evrópu síðar í dag. Andstæðingurinn er Omonoia í Kýpur en Kári Árnason var leikmaður liðsins á sínum tíma. Þrátt fyrir að hafa stoppað stutt við þekkir hann til á svæðinu og kynnir menn fyrir landi og þjóð í dag.

Frumsýna nýja Evróputreyju
Víkingar verða í nýrri, sérstakri Evróputreyju í komandi Sambandsdeildarævintýri. Sú verður frumsýnd í leik dagsins við Omonoia frá Kýpur.

Sjáðu glæsimark Duráns, dramatíkina í Leipzig og allt úr Meistaradeildinni
Meistaradeild Evrópu sveik ekki frekar en fyrri daginn þegar annarri umferð deildarkeppninnar lauk í gær. Öll mörk gærdagsins má sjá í fréttinni.

Dæmdur í fjögurra leikja bann vegna árásar á ólétta konu
Von Miller, varnarmaður Buffalo Bills í NFL-deildinni, hefur verið dæmdur í fjögurra leikja bann af forráðamönnum deildarinnar vegna ofbeldis í garð óléttrar kærustu hans. Engin ákæra hefur verið gefin út á hendur leikmanninum.

Annað Schumacher-brúðkaup gæti verið í vændum
Dóttir Michaels Schumacher gekk í það heilaga um helgina og áður en langt um líður gæti sonur hans líka verið á leið í hnapphelduna.