Væri kominn í þúsund mörk ef hann hefði nýtt öll vítin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. mars 2026 12:31 Cristiano Ronaldo klúðraði víti og var ekki meðal markaskorara Al Nassr um helgina. Getty/Yasser Bakhsh Cristiano Ronaldo mistókst að nýta kjörið tækifærið til að bæta við markafjölda sinn í leik með Al-Nassr í Sádí-arabíska fótboltanum um helgina.
Al-Nassr vann öruggan 3-1 sigur á Al-Fayha en Ronaldo var ekki meðal markaskorara í þetta skiptið. Ronaldo tók vítaspyrnu strax á áttundu mínútu en skaut í stöng. Þetta var þriðja vítið sem hann klúðrar með félagsliði eða landsliði á þessu tímabili. Það þýðir jafnframt að hann stendur áfram í 965 mörkum eða 35 mörkum frá því að ná þúsund mörkum. Þegar menn fóru að glugga aðeins betur í tölurnar kom í ljós að Ronaldo er búinn að klikka á 35 vítaspyrnum á ferlinum. Ronaldo væri því búinn að upplifa drauminn sinn og kominn í þúsund mörk ef hann hefði nýtt öll vítin sín. Hann hefur skorað 182 af mörkum sínum úr vítaspyrnum og er því með 84 prósent vítanýtingu. Ronaldo byrjaði nýja árið í 957 mörkum og er því þegar búinn að skora átta mörk á þessu almanaksári. Þetta er 24. árið í röð sem hann skorar mark á almanaksári. Hann er líka kominn með fimm hundruð mörk síðan hann hélt upp á þrítugsafmælið sitt sem er meira en flestir af betri markaskorurum sögunnar náðu á öllum sínum ferli. Ronaldo mun ekki aðeins reyna að ná í þúsund mörkin með Sádí-arabíska félaginu Al-Nassr heldur einnig með portúgalska landsliðinu þar sem hann hefur skorað 143 mörk í 225 landsleikjum. View this post on Instagram A post shared by The Football VAR (@foot.var)
Sádiarabíski boltinn Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Æfir blindandi og skýtur á eigandann Sport Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Enski boltinn Salah mættur til Tyrklands Fótbolti „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn Fleiri fréttir Real nálgast samkomulag um Diomandé Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Paredes hleypti öllu aftur í bál og brand Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Wenger tjáir sig loks: Segist ekkert hafa vitað af áætlunum Infantinos Kristall sá til þess að viðtalið fór aldrei í loftið FIFA segir ekkert til í fréttum af neyðarsímtölum Infantinos til Trumps Sjá meira