Slot finnst sjaldnast gaman að horfa á enska boltann Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. mars 2026 10:33 Arne Slot, knattspyrnustjóri Liverpool, sést hér sparka í boltann á hliðarlínunni í sigri liðsins á West Ham United á Anfield um helgina. Getty/Michael Regan Arne Slot, knattspyrnustjóri Liverpool, kom með sína sýn á þróun mála í ensku úrvalsdeildinni á blaðamannafundi fyrir leik Liverpool í vikunni.
Á blaðamannafundi sínum fyrir leikinn á móti Úlfunum annað kvöld viðurkenndi Arne Slot að föst leikatriði væru „nýr veruleiki ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta“ og að honum þættu flestir leikir í deildinni ekki lengur ánægjulegir á að horfa vegna þess hve mikið væri reitt sig á þau. Lið hans var jafnt neðsta liðinu þegar kom að því að skora úr föstum leikatriðum (fyrir utan vítaspyrnur) frá byrjun tímabilsins til 31. desember, en frá áramótum hefur ekkert lið skorað meira úr föstum leikatriðum en Liverpool. Slot finnst leikmenn komast upp með of mikið gagnvart markverðinum í föstum leikatriðum. „Ég horfi enn á hollensku deildina og þar er alltaf dæmt á brot gegn markvörðum. Hérna máttu næstum því kýla markvörð í andlitið og leikurinn fær bara að ganga áfram,“ sagði Arne Slot. „Fótboltahjartað mitt kann ekki að meta það (í hvaða átt fótboltinn er að þróast). Ég hef oft sagt að ég hafði unun af því að horfa á Barcelona fyrir fimmtán árum,“ sagði Slot. „Fyrst og fremst verðum við bara að sætta okkur við þetta. Ég held að þetta sé aðallega hér í ensku úrvalsdeildinni, því ef ég horfi á aðrar deildir er ekki lögð jafn mikil áhersla á föst leikatriði,“ sagði Slot. „Flestir leikirnir í ensku úrvalsdeildinni eru ekki lengur ánægjulegir á að horfa en það er alltaf áhugavert þar sem samkeppnin er svo mikil. Það er það sem gerir þessa deild frábæra – hver sem er getur unnið hvern sem er,“ sagði Slot. Hann telur að þessi þróun mála muni hafa áhrif meðal yngri iðkenda. „Við munum samt ekki breyta því. Ég yrði bara ekki hissa ef þú færir að horfa á leik í utandeildinni núna eða að horfa á lið yngra en sextán ára einbeita sér algjörlega að föstum leikatriðum,“ sagði Slot. Hollendingnum líkar þetta kannski ekki en það er alveg ljóst að lið hans hefur ekkert val nema að tileinka sér það og það hafa þeir svo sannarlega gert. Sú staðreynd að Slot vonist til að Florian Wirtz verði kominn aftur í næstu viku er einnig hvetjandi fyrir Liverpool. Í ljósi óvissunnar síðustu viku voru efasemdir um að fjarvera hans gæti orðið lengri en Wirtz mun líklegast snúa aftur einhvern tíma í næstu viku, annað hvort gegn Galatasaray eða Tottenham. Arne Slot is not a big fan of how Premier League football has changed 💭🗣️ The Liverpool boss was speaking ahead of Liverpool's first trip to Wolves this week.📺 https://t.co/Pwg09VrkJL pic.twitter.com/5wxSHPh2FT— This Is Anfield (@thisisanfield) March 2, 2026
Liverpool FC Mest lesið Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Enski boltinn Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Fótbolti Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Enski boltinn Markvörður Eista meiddur Fótbolti Selfoss missir mikið efni Íslenski boltinn Littler tapaði óvænt á heimsmeistaramóti unglinga Sport Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins Fótbolti „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Fótbolti Dæmdur úr keppni fyrir að slá í áhorfanda Sport Fleiri fréttir Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Vill sjá breytingar svo það komi ekki annað klúður Littler tapaði óvænt á heimsmeistaramóti unglinga Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Mun Conte taka við Manchester United? Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins Frakkland - Belgía 4-1 | Varamennirnir björguðu Frökkum Selfoss missir mikið efni Dæmdur úr keppni fyrir að slá í áhorfanda Þrír framherjar sem Manchester United gæti sótt í janúar Hjólar yfir 350 kílómetra í næstu keppni Gylfi búinn að vera rifbeinsbrotinn í þrjár vikur Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Arnar sat fyrir svörum í Tallinn Dregur sig úr landsliðshópnum Hefur sitt 40. tímabil: „Eins og að bera saman epli og appelsínur“ Höfðingjarnir á mikilli siglingu Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Markvörður Eista meiddur Ráða nýjan yfirþjálfara eftir líkamsárás forverans Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Gylfi með til Eistlands Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Fljúga til Færeyja í hádeginu Meiddist í Portúgal „Skilgreinandi augnablik“ „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Dagskráin í dag: Allt sem þú þarft að vita fyrir ballið í Bónus-deildinni Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Sjá meira