Formúla 1

Kimi vann í Texas en þarf að bíða í viku til að verða heims­meistari

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kimi Antonelli er svo gott sem orðinn heimsmeistari eftir sigurinn í Texas í kvöld.
Kimi Antonelli er svo gott sem orðinn heimsmeistari eftir sigurinn í Texas í kvöld. Getty/Bryn Lennon

Kimi Antonelli jók forskot sitt í heimsmeistarakeppni ökumanna í Formúlu 1 í kvöld en hann vantar enn tvö stig til að tryggja sér heimsmeistaratitilinn í fyrsta sinn.

Hinn tvítugi Antonelli vann bandaríska kappaksturinn í Texas, kom í mark á undan þeim Charles Leclerc (2. sæti) og Max Verstappen (3. sæti) sem urðu í næstu sætum og með honum á pallinum.

Ítalski strákurinn átti nánast fullkomna keppni og vann mjög sannfærandi sigur. Þetta er hans ár og ekkert stoppar hann úr þessu.

Antonelli er kominn með 365 stig í stigakeppninni og hefur 123 stiga forskot á George Russell þegar aðeins 125 stig eru í pottinum.

Þetta er níundi kappaksturinn á tímabilinu þar sem Antonelli fagnar sigri en samt sá fyrsti síðan hann vann Spánarkappaksturinn í Madrid 13. september.

George Russell varð í öðru sæti fyrir þessa keppni en náði aðeins áttunda sæti og í fjögur stig. Lewis Hamilton varð fjórði sem gefur honum tólf stig. Russell er með 242 stig og Hamilton hefur 231 stig.

Antonelli verður heimsmeistari í Mexíkó í næstu viku ef Russell og Hamilton ná ekki að vinna þá keppni en það er eina leiðin fyrir þá til að halda keppninni lifandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×