Formúla 1

Fór fram úr Verstappen og svo fram úr sér

Valur Páll Eiríksson skrifar
Gera þurfti langa pásu og færa bíl Russells af brautinni.
Gera þurfti langa pásu og færa bíl Russells af brautinni. Getty

Max Verstappen var fyrstur í mark í skrautlegri sprettkeppni í Formúlu 1 í Singapúr í morgun. Ófarir George Russell halda áfram.

Miklar rigningar blöstu við mönnum á brautinni í Singapúr í morgun og fresta þurfti sprettkeppninni um rúman hálftíma sökum þess.

Afskaplega blaut braut hafði áhrif á keppnina þegar hún loks komst af stað og varð spretturinn nær því að vera skokk til að byrja með.

George Russell spratt aftur á móti úr spori og fór fram úr Max Verstappen í fyrstu beygju og tók forystuna.

Hann fór ekki aðeins fram úr Verstappen heldur einnig fram úr sér þar sem hann missti stjórn á bílnum í bleytunni og þeyttist utan í vegg. Eftir erfiða viku gengur allt áfram á afturfótunum hjá Bretanum sem missti af sínum eina möguleika á stigum um helgina.

Russell mætir nefnilega til leiks í kappakstur morgundagsins með nýja vél og því ræsir hann aftastur þar.

Vegna áreksturs Russells frestaðist keppnin enn frekar og ýmsir ökuþórar lentu í vandræðum í bleytunni. Heilir sex voru fallnir úr leik þegar keppni var ræst að nýju.

Verstappen leiddi til loka og kom fyrstur í mark. Lewis Hamilton á Ferrari var annar og liðsfélagi hans Charles Leclerc þriðji.

Þegar menn voru að rúlla lokahringinn tókst Lando Norris hins vegar að klessa á liðsfélagann Oscar Piastri með þeim afleiðingum að sá síðarnefndi féll úr keppni.

Líkt og áður segir er kappaksturinn í Singapúr á morgun og tímataka fyrir hann fer fram síðar í dag. Bein útsending frá tímatökunni hefst klukkan 12:55 á Sýn Sport Viaplay.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×